Vikan


Vikan - 07.09.1972, Blaðsíða 20

Vikan - 07.09.1972, Blaðsíða 20
j MYRKRIÐ SKELLUR Á Spennandi saga í tveim hlutum Eftir Mary Kay Simmons Seinni hluti ‘ ÞAÐ SEM HEFUR SKEÐ: Fyrir f jórum árum var Janet að því komin að giftast Step- hen Latimer. I»að varð aldrei neitt úr því brúðkaupi, því að kvöldið fyrir brúðkaupið kom Janet að föður sinum myrtum á hinn hryllilegasta hátt. Henni fannst heimur hennar hrynja í rúst. Hún hafði verið flutt á sjúkrahús og þar hafði hún fengið rothöggið: fékk að vita að það var Stephen, sem hafði myrt föður hennar. Hún náði sér nokkuð fljótt og það var Bill, æskuvini henn- ar að þakka. Hann hafði annazt hana vel og innan skamms giftu þau sig. En það hafði liðið lang- ur tími, þangað tii hún gat fengið sig til að flytja aftur til Strangers Mill. Hú nvissi að það var reynsla en hún þurfti að sanna fyrir sjálfri sér að hún væri komin yfir áfallið og orðið sú kona, sem Bill átti sannarlega skilið að búa með. En þetta kvöld hringdi hann til hennar og sagði og sér hefði seinkað, hann myndi ekki koma fyrr en klukkan tíu. Og þá greip gamla hræðslan hana, sterkari en nokkru sinni fyrr. Hún er al- ein í húsinu. Allt í einu slokkna ljósin og hún heyrir hljóðlegt fótatak. Hún flýr, í angist sinni upp í svefnherbergið sitt til að ná í síma, en þá finnur hún að síminn er ekki í sambandi. Það er aðeins ein leið fyrir hana, að komast upp í leikstofuna á háaloftinu. Hann getur ekki vitað um þann felustað. Ef hún getur komizt þangað, er mögu- leiki á að hún geti falið sig þangað til Bill kemur . . . Hún hafði verið svo von- góð um að komast upp í felustaðinn, en nú gripu sterkir armar um hana aftan frá og hönd var lögð fyrir munn hennar. Hjartað barðist svo 1 brjósti hennar að hún fann til í brjóstholinu. Hún hafði fyllt lungun, til að geta öskrað, en nú fannst henni að lungun væru að springa. Hún barðist eins og hún gat, en það var til- gangslaust. Hann dró hana með sér aftur inn í svefnherbergið, sparkaði hurðinni aftur og studdi við hana með öxlinni. — Þegiðu, sagði hann, hásum rómi. — Öskraðu ekki! Heyr- irðu það, öskraðu ekki. Hún kinkaði ákaft kolli og reyndi að vera alveg grafkyrr, bað til þess að hann sleppti henni, áð- ur en lungu hennar myndu bresta og hjartað stöðvast. Hann virtist ánægður með viðbrögð hennar og losaði tak- ið, en hann hélt ennþá fyrir munninn á henni. Hún gerði eina tilraun til að losna, en þá herti hann takið á ný. — Hreyfðu þig ekki, sagði hann og skipandi róm og hún hlýddi. — Stephen, hvíslaði hún. — Hvers vegna? Hvers vegna? — Vegna þess að þú ert einn liður í áætluninni. Þú slappst síðast, en þú hefur alltaf verið liður í áætluninni. Áætlun? Hvaða áætlun? Eg get ekki haldið þetta út, hugs- aði hún, — ég get þetta ekki lengur. — ííg vildi óska að ég gæti séð framan í þig, sagði hann blíðlega. Hefurðu breytzt mik- ið, Janet? Hún gat ekki svarað honum. Hún kyngdi, en gat ekki komið upp nokkru orði. Það voru ein- hver hræðileg þyngsli fyrir brjóstinu og henni fannst hjarta sitt myndi bresta. Þegar hún leit upp, sá hún hann þar sem hann bar við gluggann, betur en hann sá hana. En andlitsdrættir hans voru óljósir í skímunni og henni sýndust augu hans lok- uð. Hann kom henni bæði kunnuglega og framandi fyrir sjónir. í henni togaðist á gamla ástin til hans og við- bjóðurinn fyrir því að þessar sömu hendur, sem nú héldu henni svo fast, hefðu líka svipt föður hennar lífinu. En hún reyndi ekkert til að losa sig. Nú, þegar hann var svo ná- lægt henni var hún ekki eins hrædd, jafnvel þótt henni væri ljóst hvað hann ætlaði að gera. — Ég veit ekki hvað ég á að gera, tautaði hann, eins og með sjálfum sér. — Ég vil ekki gera þér illt, ekki meiða þig, en ég á ekki annarra kosta völ. Hálfkæft hljóð kom úr hálsi hennar, en þá herti hann enn- þá takið, þrýsti andliti hennar upp að öxl sér og svo fór hann að tala, segja eitthvað sem hún varla skildi. — Mér er ljóst að ég elskaði þig, elska þig enn- þá, Janet . . . Rödd hans var hás og hann kyssti hárið á henni . . . hálsinn. — Það er svo langt síðan. Hún reyndi að snúa sér í örmum hans og hann sneri andliti hennar við, svo hann gat horft í augu hennar. — Þú elskar hann ekki . . . segðu að þú gerir það ekki, sagði hann í bænarróm og hún var alltof óttaslegin til að and- mæla honum, eða hreyfa sig, þegar hann beygði höfuðið og þrýsti heitum kossum á varir hennar. Hann kyssti hana aftur og aftur og hún hætti að berj- ast á móti. Hún varð að kom- ast undan. en hvernig . . . Hún var yfirbuguð, eitthvert furðulegt magnleysi greip hana — og í nokkur brjálæðisleg augnablik svaraði hún kossum hans. En allt í einu rankaði hún við sér, gripin æði yfir þessu tiltæki sínu og sleit sig úr örmum hans, ýtti honum um leið frá sér af öllu sínu afli. Þetta kom honum svo á óvart að hann féll yfir náttborðið.' Hún beið ekki boðanna en flýði í dauðans ofboði út úr herberg- inu og upp á loft. Hún komst framhjá leik- föngum og gömlu dóti og komst inn í klæðaskápinn, þar sem hún beygði sig niður og lokaði að sér. Þegar hún lá þarna í myrkr- inu, kom hræðslan yfir hana, , þessi ótti, sem hún hélt að hún væri laus við. í margar mínút- ur barðist hún við löngunina til að hrinda upp hurðinni og æða út úr skápnum, en þar sem hún vissi að dauðinn beið henn- ar, hikaði hún við það, viss um að Stephen myndi heyra til hennar, hversu hljóðlega sem hún reyndi að fara. Hann hlaut að vera að leita að henni, því að hann hafði örugglega heyrt til hennar þegar hún þaut upp stigann. Hann myndi koma inn í leikstofuna, þegar hann sæi að hún var ekki á ganginum. Hún heyrði að það brakaði í stiganum. Nú varð hún að grípa síðasta tækifærið. Hvort sem hann heyrði til hennar eða ekki, þá gæti hann ekki náð nógu fljótt til hennar, eftir að hún var komin inn í ganginn. Eftir loftleysið í skápnum fannst henni svalt á ganginum. Hún komst inn í þröng göng- in bak við leikstofuna og lagð- ist fram á hendur sínar og leyfði tárunum að streyma. Eitthvað af þessum tárum gat hún heimfært upp á ótt- ann, en eitthvert brot af þeim var söknuður eftir þeim draum- um, sem hún átti einu sinni með Stephen. Og smánin sveið hana, hún viðurkenndi fyrir sjálfri sér að tárin væru af ótta sprottin, en ekki hatri til hans. Hvernig hafði hún getað gleymt ódæð- inu, sem Stephen hafði framið og því sem hann ætlaði að gera nú, — eyðileggja þá hamingju, sem hún var að byggja upp með Bill. Smám saman hætti hún að gráta. Ofboðsleg hræðslan hafði þreytt hana, en það voru tak- mörk fyrir öllu. Hún hafði kom- izt að því. Hún hafði verið komin á yztu þröm, en var samt á lífi og með fullri rænu, 20 VIKAN 36. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.