Vikan


Vikan - 07.09.1972, Blaðsíða 17

Vikan - 07.09.1972, Blaðsíða 17
„synthesiser” mikið.) Eno játar einnig að eiga nokkurn þátt i söngnum. — ,,Ég gerði mér snemma grein fyrir þvi, að til voru viss svið tónlistar, sem ég gat náð valdi yfir án þess að læra nokkurn tima á hljóðfæri. Og á þeim aldri, sem ég var þá var eitt öruggt og það var, að ég hafði engan áhuga á að læra á hljóð- færi.” Þarna er átt við notkun segulbands eða „synthesiser”, og þremur árum hafði hann komizt yfir 30 slik tæki, þ.e.a.s. segul- bönd. Nú hefur hann fjögur segulbönd i studioi heima hjá sér, þar sem hann mixar saman ýmis- legt góðgæti, sem hann setur svo á eina kasettu, fyrir hverja hljómleika. Þá er lokið þætti Eno. Andy Mackeysérum saxafóninn. Hann byrjaði sitt tónlistarlif með þvi aö spila á óbó i Skólasym- fóniuhljómsveit Lundúnarborgar. Arið 1970 brá hann sér til Italiu og var þar i um eitt ár og kenndi ensku, auk þess að semja tónlist. Þegar hann sneri heim langaði hann skyndilega til að fara að spila rokk. ,,— Ég heföi getaö orðið klassiskur óbóisti, en ég uppgötvaöi skyndilega, aö það ætti ekki við mig. Það var ekki nógu frjálslegt, svo ég sneri mér bara að.poppinu.” Andy Mackey hefur töluverð áhrif á stil hljóm- sveitarinnar. ,, —Ég hefði orðið mjög hissa siöastliðið ár, hefði ég vitaö, aö það sem við vorum að gera þá væri orðiö tizka i dag. Tónlistin virtist ákaflega fram- andi þá, en nú virðist hún túlka tilfinningar fjöldans. Stefna hljómsveitarinnar var fastmótuð F'ramhdld á bls. 25. edvard sverrisson músik með meiru CLAIREHAMILL svar enskra við Melanie. Tiu ára gömul vann hún sina fyrstu söngkeppni. Siðan hefur leiðin upp verið bein og greiðfær. Verðlaunin voru 21 pund sagt er, að hún hafi verið i vandræðum með að eyða þeim. 1 dag, rúmum sjö árum seinna eru launin öllu hærri, getan öllu meiri og vin- sældirnar aukast stöð- ugt. Hún elskar að koma fram og syngja fyrir fólk. — ,,Ég myndi syngja fyrir hvern sem er, hvar sem er, eins lengi og ég gæti og eins lengi og nokkur entist til að hlusta á mig. Þegar ég er einu sinni byrjuð að syngja vil ég helst ekki hætta.” Fallega stúlku með slikan vilja er tæplega hægt að stoppa, auk þess sem hún syngur eins og eng- ill. Hún spilar á gitar og piano. Nokkuð hefur hún samið af lögúm i samvinnu við Michael Coles vin sinn og svo ein sins liðs. Fyrsta platan hennar kom út i janúar á þessu ári og bar heitið „Flowers for Grand- ma”, og er á Island Records. Hljóðfæraleik- arar með henni á þess- ari fyrstu plötu eru ekki af verri endanum, e\ þeir eru: Paul Buck- master, sem leikur á selló. Hann er mjög þekktur fyrir undirleik sinn hjá Elton John. Terry Reid á mandolin, banjo, gitar og fiðlu og svo John Martyn á gitar. Hvort Claire Hamill kemur til með að njóta einhverra vinsælda hér skal ósagt látið. Vin- sældir hennar aukast stöðugt erlendis en það er engin trygging fyrir vinsældum hérlendis. En hún er ekki nema 17 ára ennþá, svo timinn er nægur og hver veit hvað býr i skauti Fram- tiðar. Claire Haniill. Ilún er gædd mikluni hæfileikum. svo miklum að hún er sögð standa Melanie fyllilcga á sporði.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.