Vikan - 07.09.1972, Qupperneq 18
HVERNIG MYNDUÐ
ÞÉR DÆMA
GEORGE DIENER?
Georg Diener hafði náð takmarki sínu.
Hann bjó nú með konu sinni og sonum
í fallegu, vel búnu húsi. En það sem var öðru
ofar, hann átti son. Smám saman
breyttist líf hans í martröð, sem endaði í
hræðilegum harmleik. Georg Diener skaut son
sinn, - en var sýknaður. Lesið þetta
greinarkorn og íhugið hvernig þér
mynduð hafa dæmt...
Hin dæmigerða „ameriska fjölskylda", mynd af Dienerhjónunum og
sonum þeirra, nokkrum árum áSur en sorgirnar dundu yfir þau.
Fyrir 18 árum. 6. júlí árið
1954, fæddist Richie, eldri son-
ur hjónanna Georgs Edwards
Diener og Carol konu hans.
Foreldrarnir þekktust frá því
þau voru börn, alin upp í sömu
leigublokk, í ömurlegu hverfi
í New York. Þegar vinir þeirra
spurðu síðar, hvernig þau
hefðu kynnzt, þá svaraði Ge-
org alltaf hlæjandi og leit
glettnislega á konu sína:
— Ég var svo latur. Ég
kvæntist stúlkunni úr næsta
stigagangi.
Carol lauk skólagöngu sinni,
sérhæfði sig til að verða mót-
tökustjóri og fékk, að því
loknu, vinnu í einni banka-
höllinni í Wall Street. En Ge-
org lauk ekki skólagöngu.
Hann hætti í skóla, nokkrum
árum fyrir lokapróf og fór til
sjós. Hann var ungur og hald-
inn ævintí'raþrá og vonaðist
til að hagnast í róti eftirstríðs-
áranna. Þegar hann hafði verið
á siglingu um öll heimsins höf
í sjö ár, setti Carol honum stól-
inn fyrir dyrnar og sagði að
ef hann hugsaði til sambúðar
Georg Diener rétt fyrir
réttarhöldin.
við sig, yrði hann að koma í
land.
Richie var kátur strákur með
eldrautt hár.
Carol var íhaldssinnuð og
gekk í félagsskap, sem kallaði
sig DAR. (Dauthers of the
American Revolution). Hún
var stolt af félagi sínu og
hengdi félagsskírteinið upp á
vegg. Þau tóku á leigu litla
íbúð, þegar þau giftu sig og
hún setti sitt stolt í að halda
henni snyrtilegri og hún sá líka
til að heimilispeningarnir
hrykkju til.
Georg Diener var rólegur ná-
ungi, frekar þrekinn með
dökkt og liðað hér. Það fyrsta,
sem maður tók eftir, var að
hann hafði látið tattóvera
bandaríska fánann á annan
handlegginn. Það var fullur
tattóveringameistari, sem hafði
gert þetta, þegar Georg var 15
ára. Georg var mjög hressileg-
ur í tali og þegar hann talaði,
ljómuðu augu hans og hann
baðaði mikið út höndunum.
— Mér þykir aðeins gaman
að því sem ég get gert, var
hann vanur að segja.
Honum þótti gaman að skipu-
leggja skemmtiferðir með