Vikan - 14.09.1972, Síða 5
RAFTORG SÍMi: 26660
RAFIÐJAN SÍMi: 19294
Segðu honum upp sem snarieg-
ast, þetta getur hvort sem er
ekki gengiS lengi svona, fyrst
þú ert ekki hrifin af honum ieng-
ur. ÞaS verður þá aS hafa þaS,
þótt hann verSi óvinur þinn í
bráSina, en þaS ætti aS jafna
sig þegar frá líSur.
Skriftin er snotur, en stafsetn-
ingin ekki gallalaus. Úr skrift-
inni má lesa vilja til aS hafa alla
hluti í röS og reglu. Astarævin-
týri krabbastelpu og vogar-
stráks verSur oft mjög ánægju-
ieg reynsla fyrir þau bæSi, en
endist oft skammt. Jú, maSur
má vist flytjast aS heiman sext-
án ára.
Ekki fengið
blæðingar í hálft ár
Kæri Póstur!
Ég vil byrja á að þakka þér fyr-
ir allt gamalt og gott. Ég hef
áður skrifað þér og fékk mjög
gott svar þá, og ég vonast eftir
hinu sama nú. Þannig er mál
með vexti að ég hef ekki feng-
ið blaeðingar í hálft ár. Þetta
hefur komið fyrir mig áður, en
ég hef ekki leitað læknis við
því, þar sem ég veit að þetta er
mjög algengt. Nú langar mig að
spyrja þig: Getur maður fengið
meðal við þessu símsent? Ég hef
oft fengið símsent resept, en
bara ekki í þessu tilfelli. Það er
nefnilega þannig að ég er ekki
úr bænum og kemst eiginlega
engan veginn vegna vinnu minn'-
ar. Hvað heldur þú að svona
muni kosta? Ef þú ert ekki full-
viss í þessu, viltu þá Póstur
góður ráðfæra þig við einhvern
sem er þér fróðari í þessu efni.
Ég vona að þú getir einhvers
staðar hliðrað til fyrir þessum
snepli mínum, því að þetta er
mjög áríðandi. Mig langar bara
að vita hvort þetta er hægt. Að
lokum, hvernig eiga tvíburarnir
og meyjan saman og Ijónið og
nautið?
Með fyrirfram þakklæti fyrir
svarið. Ein tímabundin.
P.S. Hvernig er skriftin og hvað
lestu úr henni?
Þú ert full kærulaus um þetta
að okkar dómi; þótt hugsazt
geti að hér sé ekkert alvariegt
á seiði, þá ættirðu samt ekki að
hætta á neitt og leita læknis
þegar í stað. Þar ættirðu að
geta fengið úrskurð um, hvað
þessu veldur, og þá væntanlega
viðeigandi læknisráð.
Tvíburarnir og jómfrúin eiga
heldur illa saman, en geta þó
stundum bætt hvort annað upp
í samstarfi og náð góðum ár-
angri. Naut og Ijón eiga miður
vel saman. Skriftin er heldur
falleg og má lesa úr henni
snyrtimennsku og regiusemi.
Vinnur á sama stað
og frændi minn
Kæri Póstur!
Ég þakka þér fyrir allt gamalt
og gott. Það liggur svo á að ég
er hrifin af strák (eins og flest-
ar), ég held að hann sé hrifinn
af mér. Við höfum verið einu
sinni saman. Við tölum alltaf
saman þegar við hittumst.
Hann vinnur á sama stað og
frændi minn sem ég bý hjá eins
og er, ég fer þangað alltaf þeg-
ar ég má vera að til að hitta
hann. Ég tek það fram að ég er
fjórtán ára en hann seytján.
Hvernig á ég að fara að því að
krækja í hann aftur?
Ég vona að þetta bréf lendi ekki
í ruslinu.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna. Ein hrifin.
P.S. Hvernig er skriftin og hvað
lestu úr henni?
Sennilega er hann ekkert yfir-
máta hrifinn af þér, fyrst hann
sýnir engan sérstakan áhuga, og
hlýtur þó að vita að þú ert hrif-
in af honum, eftir það sem á
undan er gengið. Ætli honum
finnist þú ekki heldur of ung
fyrir hann? Og það er ekki
fjarri öllum sanni. Reyndu að
bíða og sjá hvað setur.
Skriftin er frekar óregluleg og
ekki gott að lesa neitt úr henni.
37. TBL. VIKAN 5