Vikan - 14.09.1972, Blaðsíða 23
var augljós. Þjóðverjar voru
komnir langl inn i Rússland.
Sovótrikin lögðu megináherslu á
að tryggja sér sem mestan
stuðning af hálfu Vesturveldanna
og vildu þvi ekki gera hið minnsta
þeim til styggðar. Og Vestur-
veldin studdu júgóslavnesku
útiagasijórnina i Lundúnum, og
sú stjórn hafði komi-- sér upp
eigin skæruher i Júgóslaviu undir
forustu Mihailovics ofursta.
Þessir skæruliðar, sem nefndir
voru sétnikar, voru langflestir
konunghollir Serbar og börðust
með enskum vopnum gegn
Þjóðverjum fyrir konung sinn,
Pétur annan. Ungmenni þetta
átti náðuga daga i Lundúnum
með fjölmennri hirð og flutti öðru
hverju eldmóðug útvarpsávörp,
ætluð til hvatningar liðsmönnum
heima fyrir.
Fljótlega komst það orð á að
sétnikar gengju miðlungi vel
fram i slagnum við Þjóðverja og
ttali, jafnvel að þeir semdu við þá
ef tækifæri byðust. Hinsvegar
tókst snemma fullur f jandskapur
með þeim og mönnum Titos, sem
kallaðir voru partisanar, og leið
ekki á löngu áður en þessi lið tóku
að skiptast á skotum. Sétnikar
börðust lika stundum við menn
Nedics hershöfðingja. Þessi
grályndi hershöfðingi var höfuð
serbneskrar leppstjórnar, sem
Þjóðverjar höfðu komið sér upp i
Beograd, og voru i þeirra stjórn
nokkrir ráðherrar úr konungs-
stjórninni, sem ekki höfðu náð
stökkinu til Lundúna. Nedic hafði
fullan fjandskap jafnt partisana
sem sétnika, en hélt hinsvegar
frið við ústasja.
Ustasjar voru fjórði hópurinn,
sem lét að sér kveða i Júgóslaviu
um þetta leyti, ef aðeins eru taldir
innlendir menn. Þeir voru
stormlið og lifvörður fasistafor-
ingjans Ante Pavelics, sem gerst
haföi rikisleiðtogi Króatiu undir
þýskri vernd. Ústasjar voru i
senn ofstækisfullir króatiskir
þjóðernissinnar og ofstækisfullir
kaþólikkar, svo að þeim var
jafnilla við menn Titos og
Mihailovics.
En af öllum þessum aðilum dró
Titó lengsta stráið, enda bestur
skipuleggjandi og hugrakkastur.
Á svæðum, sem frelsuð höfðu
verið undan Þjóðverjum og
öörum andstæðingum, reyndi
hann að koma á einhverskonar
borgaralegri stjórn, visi að þvi
júgóslavneSka alþýðulýðveldi,
sem koma skyldi. Hann lét stofna
skóla og reka áróður fyrir
hreinlæti til að forðast pestir. Og
hann varð aðnjótandi sivaxandi
aðdáunar, bæði af hálfu vina og
óvina. Einn hinna siðarnefndu,
brigöðuforingi i SS að nafni
Turner, yfirmaður þýsku her-
stjórnarinnar i Serbiu, sagði:
Framhald á bls. 40.
Nýja AJAX -
úppþvottaefnið
fjarlægir fituleifar án
fyrirhafnar. Teskellur
- eggjabletti - varalit.
Vinnur bug á lykt -
jafnvel fisk- og
lauklykt - heldur
uppþvottavatninu
ilmandi.
AJAX með
sítrónukeim -
hin ferska
orka.
W CITRON
OPVASK
B®tog®k nedbrydeligt
ferskt sem sítróna
37. TBL. VIKAN 23