Vikan - 28.09.1972, Síða 4
f Hvað er verið ^
1 að skamma mann?
íru þetta ekki Sommer-leppin,
vfrá Lilaveri sem þola alltóif'S
Teppin sem endastendast og endast
á stigahús og stóra gólffleti
Sommer teppjn eru úr naelon. Það er sterkasta teppaefnið
og tírindir bezt frá sér óhreinindum. Yfirborðið er með þéttum, lá-
réttum þráðum. Undirlagið er áfast og tryggir mýkt,
sfslétta áferð og er vatnsþétt.
Sommer gólf- og veggklæðning er beimsþekkt. Sommer teppln
hafa staðizt ótrúlegustu gæðaprófanir, m. a. á fjölförnustu
járnbrautarstöðvum Evrópu.
Við önnumst mælingar, lagningu, gerum tilboð og gefum
góða greíðsluskilmála. Leitið til þeirra, sem bjóða Sommer verð og
Sommer gæði.
LITAVER
GRENSÁSVEGI 22-24
SÍMAR: 30280 - 32262
PÓSTURINN
Er Pósturinn á
réttri braut?
Vinir, rómantíkussar, samlandar!
Ástæðan til skrifa minna er ekki
sú, að ég sé ófrísk og/eða Z
hafi yfirgefið mig. Ekki heldur
sú, að ég ætli að rægja þá, sem
vita ekki, hvert þeir eiga að
snúa sér eftir ástarófarir sínar,
heldur til að spyrja ykkur, hvort
ykkur finnist ekki, að Pósturinn
sé í núverandi mynd hættur að
þjóna nokkrum tilgangi.
Hins vegar er vel hugsanlegt, að
fólk það, sem leitar ráða hjá
ykkur, bíði hnekki við það að
fara að ráðum ykkar. Svo segir
mér hugur, að „svaramaðurinn"
sé ekki sérfræðingur á sviði sál-
fræði, félagsfræði eða skyldra
fræða. Eru engin lög um, hverj-
um leyfist að gefa svona ráð?
Er, og hver þá, grundvöllur fyrir
því, að slík mál séu höfð til
lestrar fyrir almenning? Er til-
gangurinn e. t. v. sá að halda
íslendingum í þjálfun við sína
gamalkunnu iðju: sköpun „þjóð-
sagna" eða að sanna ennþá bet-
ur hina auknu þörf fyrir fræðslu
og útbreiðslu félagslegrar og
sálfræðilegrar hjálpar, t. d. í
gegnum skóla?
Nei, Pósthornið væri betur nýtt
í þágu almennari mála eða a.
m. k. mála á breiðari grundvelli.
Með það í huga óska ég ykkur
farsællar endurnýjunar.
Auk þess legg ég til, að áróður
til að opna augu almennings
fyrir hættum mengunar haldi
áfram og verði aukinn. Bésgé.
i.--------^______ ^
C—^
Bréfin, sem viS birtum hér í
Póstinum, eru aðeins lítið brot
af öllum þeim bréfum, sem yfir
okkur hellast, og flest fjalla þau
um þessi sömu vandamál, sam-
skipti kynjanna á unga aldri. Þar
er þá væntanlega kominn grund-
völlurinn, sem þú spyrð um og
um leið greinileg vísbending um
hina auknu þörf fyrir fræðslu og
útbreiðslu félagslegrar og sál-
fræðilegrar hjálpar, svo við not-
um þín eigin orð. Vonandi ferðu
ekki að lögsækja okkur! Lestu
heldur næsta bréf.
Hún man þá tíð!
Kæra Vika!
Ég vil byrja á því aÖ þakka þér
fyrir allt gott efni, sem í þér er
og þá sérstaklega „Mig
dreymdi", sem mér og fleirum,
sem trúa á drauma, þykir gott
efni.
Eg hef einu sinni skrifað þér áð-
ur og þá í þáttinn „Mig
dreymdi", en ég fékk ekkert
svar. Hvort það hefur verið út
af því, hvað draumarnir virtusf
ómerkilegir eða einhverju öðru,
skiptir ekki máli, því þeir eru
ráðnir.
En þá er bezt að reyna að koma
sér að efninu. Ástæðan til þess
að ég skrifa ykkur í annað sinn,
er að þessu sinni vil ég þakka
ykkur fyrir hönd hinna „ást-
föngnu", hvað þið eruð almenni-
legir og skilningsgóðir að svara
öllum þessum bréfum frá þeim
ástföngnu. Ég hef sjálf verið 12
—13 ára og man vel, hvernig
líðan það er að ,vera hrifin og
vita varla í þennan heim eða
annan. Ég vona, að þið skiljið
mig, en haldið mig ekki orðna
gamaldags eða eitthvað annað.
Þessar kaldhjörtuðu manneskjur,
sem skrifa þér og tala ekki um
annað en pólitík og lokunartíma
verzlana og annað í sama dúr,
ættu að skammast sín og reyna
að hugsa svolítið aftur í tímann.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
H.S.J.O.
P.S. (Það sama og allir). Hvað
heldurðu að ég sé gömul, og
hvað lestu út úr skriftinni?
Við þökkum bréfið, og draum-
arnir þínir hafa áreiðanlega ekki
verið ómerkilegir, við höfum
einfaldlega ekki tök á að birta
allt, sem okkur berst. Við gizk-
um á, að þú sért rúmlega tví-
tug, og út úr skriftinni má lesa
jákvæða skapgerð, en getur ver-
ið, að þú sért svolítið þráablóð?
Til hamingju!
Elsku Póstur!
Okkur langar til að kvabba svo-
lítið á þér. Við erum ungt par,
nýlega trúlofuð. Okkur langar
til að vita, hvernig Fiskarnir og
Bogmaðurinn fara saman og
leitum þess vegna til ykkar. Við
þökkum um leið hið dásamlega
blað Vikuna. — Með fyrirfram
þakklæti fyrir birtinguna. Hvað
lestu úr skriftinni?
Tvö dauðástfangin.
4 VIKAN 39. TBL.