Vikan


Vikan - 28.09.1972, Blaðsíða 6

Vikan - 28.09.1972, Blaðsíða 6
r r JESUS CHRIST SUPERSTAR Rokkóperan fræga með því nafni á nú að fara á svið í Lundúnum, og í hlutverk súperstjörnunnar sjálfrar hef- ur verið valinn Paul nokkur Nicholas. Er og talið trúlegt að hann verði í sama hlutverki þegar verkið verður kvikmyndað, en það skal byrjað í ísrael seint í haust. höfðu verið saman svo árum skipti og stóð til að þau gengju í hjónaband inn- an skamms. En í vor fórst Indovina í flugslysi við Palermo. Soraja býr nú hjá móður sinni í Múnchen. Hún fer ekki út, og eini gesturinn sem hún vill taka á móti er vinkona hennar Mon- ica Vitti. Myndin sýnir þau Soröju og Indovina saman í fríi í Grikklandi. AUGNAKEPPNI Ein fegurðarsamkeppnin í viðbót var nýlega haldin í Lundúnum, og kepptu þá sextíu kvenmenn um það hver þeirra hefði fegurst augu. — „Miss Beautiful Eyes“ var kjörin Teresa Flanagan, sem sést hér á myndinni. Tilgangurinn með keppninni var þó enginn hégómi, að sögn. Teresa á að heimsækja verksmiðjur um gervallt Stóra-Bretland sem aðalpersóna í bar- áttu fyrir aðgæzlu við starfið, sérstak- lega þó hvað augunum viðkemur. — Plaköt með mynd af augum hennar eiga líka að hanga alls staðar uppi. VERÐANDI BRETADROTTNING? Karl krónprins af Bretlandi hinu mikla hefur átt sér vinkonur fyrr, en Georgiana Russel virðist vera annað og meira en ein ný í þeirra röð. Hún er sú fyrsta af vinkonum prinsins, sem hefur fengið að sýna sig opinberlega með sjálfri konungsfjölskyldunni. Þeg- AUMINGJA SORAJA Um Soröju fyrrverandi keisaradrottn- ingu af íran má með sanni segja, að ekki sé ein báran stök. Persakeisari lét hana sem kunnugt er frá sér fara sökum þess að hún reyndist óbyrja, og síðan varð henni lengi fátt við hendur fast. Hún var orðuð við ýmsa menn, reyndi jafnvel fyrir sér í kvikmynda- bransanum, en allt gekk það frekar báglega. Eftir langa mæðu var þó svo að heyra að henni hefði tekizt að finna að nýju mann, sem hún gæti elskað til frambúðar. Sá var Franco Indovina, ítalskur kvikmyndaleikstjóri. Þau SIÐAN SIÐAST ar öll sú fjölskylda, þar á meðal Anna prinsessa, smáprinsarnir og meira að segja Margrét og Tony og þeirra börn, voru viðstödd hestaveðhlaupin í Bad- minton, var Georgiana í hópnum. Það segja Englendingar öruggt merki þess. að trúlofun sé á næsta leiti. Karl prins er nú tuttugu og þriggja ára, Georgi- ana tuttugu og fjögurra. Hún mun ívið lífsreyndari en hann; þannig sleit hún fyrir þremur mánuðum trúlofun sinni og bankamanns nokkurs er heitir Ric- hard Campton-Miller. Faðir Georgi- önu er af aðalsættum og um þessar mundir brezkur ambassador á Spáni. Móðir hennar er grísk og hefur verið fegurðardrottning. Georgiana er sögð tala sjö tungumál. Sem stendur vinnur hún á ritstjórn tízkublaðsins Vogue og býr í glæsilegu húsi, er faðir hennar á í Belgravia í Lundúnum.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.