Vikan


Vikan - 28.09.1972, Page 9

Vikan - 28.09.1972, Page 9
„Mamma" með börnin sín fyrir utan húsið, þar sem þau iifa eðliiegu fjölskyldulifi. Engin hús- anna í bænum eru eins, til þess að allt liti út eins og í venjulegum bæ. Ofan t. v.: Karla Pansi, uppalin í Hinterbruhl, starfar nú við leikskólann þar. Neðan t. v.: Martin Kreil hefði ekki haft neina menntunarmöguleika, hefði hann ekki orðið „SOS-barn". T. v.: Fritz Haider, einn af brautryðjendum SOS- hreyfingarinnar, ásamt Herbert Stranner, sem starfar á fullorðinsaldri í gamla „barnabænum" sínum. ára afmælisdaginn sinn. Hon- um var vísað í lítið notalegt hús, þar sem hann hitti nýju „mömmuna" sína og sjö ný „systkini". — Ég fann undireins, að þetta var annað og betra en venju- legt barnaheimili, segir Mart- in Kreil. — Mér leið vel frá fyrstu stundu. „Mamma“ skýrði fyrir mér hugmyndina að baki þessa, og mér geðjaðist vel að henni. Nú hafði ég líka eign- azt mömmu aftur, næstum því eigin mömmu, ekki bara fóstru, sem ég yrði að deila með 40—50 öðrum börnum. — Auðvitað saknaði ég míns ' rétta föður. Því hafði ég að vísu þegar vanizt. En mér leiddist dálítið að hafa ekki einu sinni heimilisfang hans, svo að ég gæti skrifað honum. Hann skrifaði mér ekki heldur og heimsótti mig aldrei. Nokkr- um árum síðar frétti ég af hon- um, og það voru ekki beint skemmtilegar fréttir. Næst þegar ég frétti af honum, var það lögreglan, sem færði mér þessi boð: faðir minn hafði lát- izt í slysi. Fréttin barst mér viku of seint til að ég gæti verið viðstaddur útför hans. Martin Kreil segir frá rólega og án alls biturleika. Martin var 3% ár í Imst, en þá fluttist hann á skólaheim- ili í Innsbruck. Átta árum síð- ar tók hann þar stúdentspróf, og nú er hann í þann veginn að ljúka námi frá tækniháskóla í Vín. Hann er bæði stoltur og glaður yfir því að vera „SOS- barn“. — Ég hefði ekki haft neina menntunarmöguleika, hefði ég ekki komizt til Imst, segir hann. — Og ég hefði áreiðanlega ekki orðið hamingjusamur og nýtur maður. Hann segir einnig, að margt fólk hafi ranga afstöðu gagn- vart börnum í þessum barna- bæjum. Það láti í ljós vorkunn með þeim, en það sé bara tals- máti, það meini lítið með því. Martin finnst óþarfi að vor- kenna börnunum í barnabæj- linum, það séu foreldralausu börnin eða þau, sem eigi slæma foreldra, sem eigi bágt, —- ef þau komast ekki í barnabæ! Þeir níu barnabæir, sem eru í Austurríki, telja u. þ. b. 140 fjölskyldur. í hverri fjölskyldu er ein mammá —- en enginn pabbi! Er það ekki svolítið rangsnúið? — Svo gæti virzt, segir Fritz Haider, „bæjarstjóri“ í Hinter- bruhl. — Auðvitað væri æski- legra, að hvert heimili hefði bæði pabba og mömmu. En það er óhugsandi í framkvæmd. Við erum ekki í vandræðum með að finna barnlausar konur, sem vilja helga sig óskiptar „mömmu“-hlutverkinu. En það er útilokað að finna 140 barn- laus hjón, sem gætu hugsað sér að helga sig þessum störfum eingöngu. Þess vegna er það, að bæjar- stjórinn og karlkyns aðstoðar- menn hans verða oft að gegna föðurhlutverki gagnvart börn- unum. — Við leituðum alltaf fyrst og fremst til mömmu, segir Martin Kreil. En bæjarstjórinn var eins konar faðir okkar allra, og til hans leituðum við, ef mamma gat ekki leyst vand- ann. Martin heldur stöðugt sam- bandi við „systkini" sín frá Imst. Á hverju ári koma þau öll, ef þau mögulega geta, til Imst um jólin. Þau skrifast á, heimsækja hvert annað og eru viðstödd brúðkaup og skírnir hjá hvert öðru. Framhald á bls. 43. 39. TBL. VIKAN 9

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.