Vikan


Vikan - 28.09.1972, Page 11

Vikan - 28.09.1972, Page 11
Jókoj bjó sér til matarílát 09 suðuáhöld úr matarkössum frá hernum. Til hægri á borðinu eru kókostref jar, sem hann ætlaði að flétta reipi úr. við kvíðann, sen> hrjáði móður hans. Hann hafði unnið í stór- borginni, séð marga æsku- menn senda í stríðið og fannst ekkert eðlilegra. — Ég kem aftur, sagði hann. — Við sigrum óvinina. Keisar- inn, afkomandi sólgoðsins, get- ur ekki beðið ósigur . . . ' Aðeins nokkrum vikum áður hafði móðir hans valið honum brúði. Það var falleg og dug- I leg stúlka frá einu grannþorp- inu. Hann hafði séð hana bæði á mynd og ljóslifandi, en í sið- ara tilfellinu aðeins álengdar. Þau höfðu aldrei talað saman, en ættingar hans höfðu orðið sammála um að hún væri kven- kostur góður. Jókoj roðnaði af feimni þegar hann hugsaði um hana. Slæmt að þurfa að fara burt einmitt núna . . . Tveimur vikum síðar gekk Sjóitsji Jókoj um borð í her- flutningaskip í höfn Nagoja ásamt fjórtán hundruð nýlið- um öðrum. Mikill mannfjöldi kvaddi þá með fagnaðarlátum og herhljómsveit lék á hafnar- bakkanum. Svo lá leiðin til Múkden í Mansjúríu. Ekki hvarflaði þá að neinum að þrjátíu og eitt ár ætti að líða unz Jókoj ætti afturkvæmt. Stríðið var það sjálfsagðasta af öllu sjálfsögðu fyrir Japani þeirrar kynslóðar. Kórea, Kína, Sovét — það var talið eins kon- ar náttúrulögmál að stríð væri hafið tíunda hvert ár. Hernað- arandinn hafði alla á valdi sínu, unga sem gamla. Raunar kölluðu Japanir það þjóðernis- hyggju. Enginn, og Jókoj klæðskeri auðvitað ekki fremur en aðrir, hugleiddi ástæðurnar til allra þessara styrjalda. Og enginn efaðist um rétt keisarans til að ráðast með báli og brandi inn í annarra manna lönd. Allir voru reiðubúnir að ganga í dauðann fyrir keisara 'sinn. Það var skylda og heið- ur . . . Ungir menn gáfu sig í tug- þúsundatali fram í sjálfsmorðs- sveitir. Margir fórnuðu sér sem sjálfsmorðsflugmenn til að tryggja að sprengiefnið, sem þeir flugu með, hitti í mark. Þegar skraddarinn Sjóitsji Jókoj fór út að stríða hafði Japan þegar lagt undir sig stórar spildur af Asíu. En sam- búðin við Bandaríkin varð æ erfiðari, og stríðið í Kína gekk ekki nógu vel. Leiðtogarnir i Tókíó voru örvæntingarfujlir, vissu naumast sitt rjúkandi ráð. Baráttuþrek hersins virt- ist rokið veg allrar veraldar, og gagnrýnar raddir heyrðust. Hreinsanir og herdómstólar dugðu ekki til að bægja frá hættunni. Það var þá sem hermálaráð- herrann alræmdi, Hídeki Tod- sjó (sem bandamenn tóku af sem stríðsglæpamann 1947). kom fram með svonefnda „laga- grein um heiður og samvizku", ætlaða hermönnum í þjónustu: „Þeir sem kunna að blygðast sín eru sterkir. Hugsaðu alltaf um að vera föðurlandinu, ná- grönnum þínum og fjölskyldu til sóma. Hertu upp hugann og láttu engan verða fyrir von- brigðum með þig. Láttu aldrei taka þig til fanga, sættu þig aldrei við auðmýkingu. Dey með sóma.“ Jókoj var settur í herflokk, sem sá um birgðaþjónustu að baki víglínanna í Kína. Veturn- ir í því landi norðanverðu eru harðir og birgðaflutningarnir frá Japan voru stopulir, svo að hermennirnir voru oft illa haldnir af kulda og sulti. En Jókoj þoldi harðréttið vel — hafði raunar aldrei vanizt sæl- lífi. Sennilega hefur hann tek- ið þátt í ránsferðum japanska hersins um kínversku sveitirn- ar, en þeir leiðangrar urðu í framkvæmd slík fjöldamorð, að fá hafa orðið meiri í sögunni. Nitjánda febrúar 1944 var Sjóitsji Jókoj, þá orðinn lið- þjálfi, sendur af stað til Gúam, og þangað kom hann tveimur vikum síðar með tuttugasta og níunda herfylki keisaralega hersins. Suðurhafseyjan Gúam, sem kölluð hefur verið „lykillinn að Kyrrahafi", hafði fengið að kenna á stríðinu tíunda desem- ber 1941, aðeins tveimur dög- um eftir árásina á Pearl Har- bor. Á báðum stöðum kom árás Japana jafnmikið á óvart. Sex hundruð manna lið bandarískt var fyrir á eynni, en það hafði ekkert ráðrúm til að skipu- leggja vörnina. Um það bil fjögur hundruð Bandaríkja- menn, þeirra á meðal land- stjóri eyjarinnar, voru teknir Framhald á bls. 43. 39. TBL. VIKAN 11

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.