Vikan - 28.09.1972, Qupperneq 14
MAGGIE BELL
(eða bara Magga Bjalla)
Hljómsveitin Stone The Crows
hefur nokkuB veriö I sviBsljósinu
aB undanförnu. 1 maí s.l. varB þaB
óhapp, aB gitarleikari hljóm-
sveitarinnar, Leslie Harvey, dó á
hljómleikum. Var þaB vegna
útleiBslu rafmagns I gltar, sem
hann hélt á. Var skýrt frá þvihér i
Vikunni i ágústmánuBi s.l. Leslie
Harvey var höfuBpaur Stone The
Crows. Þegar hann féll frá voru
margir þeirrar skoBunar, aB
hljómsveitin ætti ekki langt eftir.
Maggie Bell, söngkona hljóm-
sveitarinnar, varö hins vegar til
þess aö Stone The Ceows héit velli
og hefur aukizt aö mætti siöan.
Fyrir tilstilli Maggie Bell, varö til
innan hljómsveitarinnar sam-
staöa, sem hefur veriB órofin
hingaö til.
1 staö Leslie Harvey var ráöinn
Jimmy McCulloch og tók hann viö
sólogitarnum. Hann hefur s.l.
þrjú ár leikiB meö Thunderclap
Newman. Aörir meölimir Stone
The Crows eru nú: Ronnie Leahy,
oígel og piano, Steve Thompson á
bassagitar, Colin Allen á trom-
mur og svo Maggie Bell, en ég
ætla nú aB ræöa litillega um hana
og söng hennar.
ÞaB er oröinn viss atburöur á
öllum hljómleikum, sem Stone
The Crows halda, aö eftir nokkra
stund upphefjast köll eins og ,,We
want Maggie, We want Maggie”
eöa viö viljum Maggie. Maggie
Bell hefur áunniö sér slikt orö i
heimi rokksins og nafn hennar
mun seint gleymast. Eftir dauöa
Leslie rikti mikil sorg I búBum
Stone The Crows og þó sérstak-
lega Jijá Maggie. Samband
hennar og Leslie haföi veriB náiö.
En hún hefur nú snúiö sér aB
söngnum af enn meiri krafti en
áBur. Þaö er takmark hennar,
aB gera Stone The Crows aö þvi,
sem Leslie Harvey vildi.
Maggie var aBeins sautján ára,
þegar hún fyrst hitti Leslie. Þá
var hann meö hljómsveit, sem hét
Kinning Park Ramblers. Hún
varö strax mjög hrifin af hljóm-
sveitinni, auk þess aB verBa
ástfangin af Leslie. Þaö leiö þvi
ekki á löngu, þar til hún hóf aö
syngja meö shljómsveitinni af
fullum krafti. En þaö var þó ekki I
fyrsta skipti sem hún geröi þaB.
Hún söng i blóhúsum i Glasgow
þegar hún var tólf ára gömul, auk
þess aB syngja meB ýmsum dans-
hljómsveitum. Á þessum fimm
árum, eöa þar til hún byrjaöi aB
syngja meö Kinning Park
Ramblers, öölaöist hún þekkingu
á tónlist og sinni eigin rödd. Sú
þekking, auk hinnar frábæru
raddar hennar, hefur nú gert
hana aö einni af fremstu rokk-
söngkonum heims. Eins og
flestir listamenn, sem eitthvert
orö hafa á sér i rokkinu hefur
Maggie I hyggju aö gefa út plötu
upp á sitt einsdæmi. Hún hefur
lengi veriö tilbúin meB efni á
þessa plötu sina, en ekkert oröiö
edvard sverrisson
3m
músík með meiru
af ennþá. Þaö, sem á hefur
vantaB, eru réttu hljómlistar-
mennirnir, til þess aö leika undir
á píötunni. Talaö hefur veriB um,
aB Rod Stewart ætti aö vera
stjórnandi þeirrar upptöku, en
Maggie hefur falliB frá þvl. Eins
og er, mun allt I óvissu um hvort
þessi frábæra söngkona muni
senda frá sér sóloplötu á
næstunni.
Maggie hefur oft veriö liikt viö
Janis Joplin. Um þaö sagöi hún
eitt sinn. ,,Ég hef aldrei tekiB
nærri mér, þótt mér hafi veriö likt
viB.Janis. Ef til vill dálitiö undr-
andi fyrst, þvi ég haföi aldrei
heyrt um Janis Joplin. Þegar ég
svo fór til Ameriku, varB ég mjög
hrifin. Janis býr
Jimmy McCulloch,
hinn nýi gitarleikari
Stone The Crowns.
persónuhæfileikum, sem erfitt er
aB standast. Hún bjó yfir sér-
stökum töfrum.”
Aö lokum ætla ég aö gefa
Maggie Bell oröiö. „Ef ég á aB
segja sannleikann þá er ég
stundum smeyk um röddina
mina. Þó svo, aö ég sé eini
kvenmaðurinn I hljómsveitinni,
finnst mér mjög gaman. Mig
langar ekkert aö setjast i helgan
stein og eignast börn.Slikt hef ég
séB I Glasgow, ungar feitar
stúlkur meB börnin sin, lokuB inni
i eigin prisund. Hvaö um þaB, ég
er of ung til þess aö fara aö eiga
börn. ÞaB eina sem ég hef áhuga
á, er aö koma fram meö Stone
The Crows. Tónlistin og
strákarnir I hljómsveitinni eru
allt sem ég á eftir núna.”
Maggie Bell er nú talin
vera ein fremsta
rokk-söngkona I heimi.
Myndin er tekin
á hljómleikum fyrir skömmu.
14 VIKAN 39. TBL.