Vikan - 28.09.1972, Qupperneq 19
er frá stríðsárunum og keyptur á
flóamarkaði, eins og flest fötin
sem leikararnir i Ashton-
fjölskyldunni nota. Hann gæti
alveg eins verið úr minum eigin
klæðaskáp, segir hún, vegna þess
að fatnaður frá þessu timabili, er
mjög i tizku i London núna.
Coral Atkiná býr i
brúðaribúðinni á Hótel Saga, i
þessari stuttu heimsókn sinni til
Noregs. Coral vill alls ekki
segja til um aldur sinn, en hún er
samt nógu gömul til að muna
striðsárin. Hún var send út i sveit,
alveg eins og börn Sheilu og hún
var ekki samvistum við foreldra
sina i nokkur ár. Hún bjó i
norðurhluta London og það
heyrist á mæli hennar, það er
ekki beint Oxfordenska, sem hún
talar. En hún talar ekki heldur
Liverpoolmállýzkuna, sem hún
talar i myndinni.
Hún hefir verið gift tvisvar og á
einn son.
— Fyrri maðurinn minn var frá
Liverpool, svo það var ekkert
erfitt fyrir mig að tala og haga
mér eins og Liverpoolbúi, segir
hún. — Liklega eru það áhrif frá
striðinu, aö mér finnst æskuár
min hafi verið nokkuð ömurleg.
Meöan ég var i barnabúðum i
Wiltshire, var mér sagt að
foreldrar mlnir hefðu farizt i
loftárás. Það reyndist ekki rétt,
en það hafði haft sin áhrif á mig á
frétta það. Faðir minn var list-
málari, svokallaöur land-
lagsmálari. Hann var meðlimur
I AAR, en það er félag
listamanna, sem standa undir
konunglegri vernd og það er
mikill heiður að heyra til þeim
félagsskap. Hann vildi að ég færi
lika út á þá braut og ég var I
listaskóla I tvö ár. En svo strauk
ég aö heimanþegarég var sautján
ára og komst I ferðaleikflokk.
Þá varð ég ástfangin af einum
leikaranum og við giftum okkur.
Nú er ég fráskilin I annað sinn,
en mér kemur vel saman við báöa
Framhald á bls. 29.
Coral og Harry sonur hennar fyrir framan húsið, þar sem hún bfður
barnanna tiu, sem koma til hennar siðast I september.
- Til að skilja sjálfa mig betur, fór ég að lesa sálfræði f frtstundum,
segir Coral Atkins, sem hefir farið úr kjólnum hennar Sheilu og farið f
nýja buxnadragt.
39. TBL. VIKAN 19