Vikan


Vikan - 28.09.1972, Síða 22

Vikan - 28.09.1972, Síða 22
<C en gat ekki merkt á svip hans. Hann var aðeins likur öðrum drengjum, sem ekki gátu látið vera að rifa ofan af sárum. . — Ég held ég reyni að losa mig við hana lika, hélt hann svo áfram og hjarta mitt sló hraðar af skelfingu. — En afi myndi nú ekki verða ánægður með það, bætti hann hugsandi við. — Hann les henni fyrir minningar sínar og hann þarf, að sjálfsögðu á henni að halda. Klemens frændi líka. Hann yrði nú alveg fjúkandi vondur ef ég geri henni eitthvaö. — Þaö vona ég sannarlega! Hann er aö gorta, hugsaði ég. Krakkar segja svo margt, án þess aö meina nokkuö með því. Það var ástæöulaust að hafa áhyggjur af þessu. En ég vildi samt fá hann I burtu frá húsinu, meöan lögreglan var þarna. — Eigum viö ekki að skreppa út að ganga? sagði ég. — Mig langar til aö hitta lögregluþjónana. — Þeir eru hérria til aö athuga slysið I nótt, þeir vilja aðeins tala viö sjónarvotta. Þú sást þetta ekki, eða var það? — Nei. Það var ekki nokkur svipbreyting bak viö stóru gleraugun. Við röltum um blómagaröinn, i hæfilegri fjarlægö frá blóma- beöunum, svo viltumst við, þaö er aö segja égþartil Claes sá aumur á mér og vísaði mér leiðina. Svo gengum við niöur I stóra garöinn. Mér datt I hug hve þetta svæði væri hentugt til útreiöa, en það þýddi ekki að hugsa um það, þar sem Claes var meö ofnæmi fyrir hestum. — Ég hringi heim til min og bið um að senda mér reiðhjólið mitt, þá getum við hjólað saman. — En ég á ekki reiðhjól. — Hvað, áttu ekki reiöhjól?. Ég starði undrandi á hann. — Égkann heldur ekki aö hjóla. — Það er auövelt aö kenna þér það. Hvernig fólk var þetta eiginlega, aö hafa ekki gefið drengnum reiöhjól? hugsaöi ég reiðilega. Þaö var fátæklegt llf fyrir barn, að enginn skyldi raunverulega kæra sig um það, innan um alla þessa ofgnótt. Aö minnsta kosti ekki nóg til að bera umhyggju fyrir honum, á þann hátt sem ég kallaði umhyggju. Heima gátum við ekki stært okkur af munaði og við vorum alltaf i peningahraki, en ástrlki og umhyggju hvort fyrir öðru, skorti okkur aldrei. — Ertu sniðug að hjóla? Hann skoöaði hrúður á hné sér með sllkum ákafa, að mér var ljóst að hann ætlaði að fara að kroppa i það, svo ég flýtti mér af stað með hann. — Já, þaðheld ég. Ég skal biðja afa þinn að kaupa reiðhjól. Hugsaöu þér hve margar spenn- andi skrámur þú getur orðiö þér úti um, sagði ég hlæjandi og fékk glettnislegt bros i staöinn. Lögreglumennirnir voru á leið út, þegar við komum inn. Ég hélt að þeir heföu ætlað aö tala við mig, en þeir heilsuðu lauslega og stigu upp I bilinn. Claes stóð kyrr og horföi á eftir þeim. — Þeir eru ekki einu sinni vopnaðir, sagði hann vonsvikinn. — Þeir hafa ekki búizt við aö þurfa að skjóta neinn. Hvað segiröu um að synda svolltiö fyrir hádegisverðinn? Ég fór i sundbol og baðkápu og barði svo að dyrum hjá Claes. Hann var aumkunarlega magur I sundskýlunni sinni, en þótt einkennilegt megi viröast, þá létti mér töluvert, þvi að það var mjög ósennilegt að þessi vesæla mannvera gæti gert fullorðnum manni mein. Sundlaugin var lögö bláum fltsum og lá'rétt viö vatnsborðið. Þaö voru engin blómstrandi tré, aðeins vel slegin grasflöt, sem þakti brattann niður að vatninu. Gabrielle íá I sólbaði viö sund- laugarbarminn. Hún settist upp og lyfti brosandi hendinni, þegar við komum. — Ég var einmitt aö vona eftir að einhver kæmi til að stytta mér stundir. Viö skulum rabba saman, systir, eða ætlið þér strax I laugina? — Nei, ég vil gjarnan sóla mig svolltið fyrst. Ég fleygði frá mér baðkápunni og gekk til hennar. Mér fannst Gabrielle dálitiö forvitnileg, langaði til aö sjá hvort hún væri jafn glæsileg I dagsbirtunni. Þaö var hún. Að vlsu voru nokkrar hrukkurIaugnkrókunum og hakan oröin nokkuö slök, en llkami hennar var mjúkur og ávalur og fótleggirnir ótrúlega fagurlagaöir. Mér fannst hún ennþá gæti sem bezt tekiö þátt I feguröarkeppni. — Eru lögreglumennirnir farnir? — Já, fyrir korteri. — Agætt. Það hljómar líklega frekar illa, en það eru töluverö hlunnindi að bera nafnið Ren- feldt, sagði hún brosandi. — Yfirvöldin koma öðru visi fram viö okkur en aðra. Að vlsu er ég raunverulega ekki I beinni llnu, en samt . . . Þetta með vesalings Hansson, hefði getað orðið óþægilegt. Claes hoppaði upp og niður á stökkbrettinu. — Horfið á mig! Horfiöámig! hrópaöi hann og viö horföum báðar á, þegar hann stakk sér. — Agætt! kallaði ég. — Stórkostlegt! Hann syndir líka vel, sagöi ég. Þá var það aö minnsta kosti ein iþróttagrein, sem hann getur státað af og það gladdi mig mikið. — Það er reglulega gaman að sjá hann haga sér eins og önnur börn á hans aldri, sagði ég. — Stundum finnst mér hann ekki vita hvernig það er aö vera barn. Gabrielle andvarpaði. — Hann hefir fariö á mis við margt og það er leitt. Faöir hans andaðist þegar hann var sjö ára. Carl-Jan var mjög greindur maður og góður sagnfræöingur. Þér þekkið kannske bækur hans. Það er sorglegt að honum skildi ekki auðnast lengra llf — við söknum hans mikiö. Sérstaklega Klemens. Þeir voru ákaflega nákomnir. Carl-Jan tilbað Claes og sýndi honum mikla umhyggju. — En móðir hans? — Yvonne dó ári slðar. Að ööru leyti var æska hans ósköp ven- juleg, eins venjuleg og hægt er á stað eins og þessum. Hún hló svo þaö skein I hvitar tennurnar. Við erum öll alin upp hérna, Axel og Carl-Jan, Klemens og ég og við áttum dásamlega æsku. — Já, en Claes er einmana. Hann þyrfti að eignast leikfélaga. Hún leit undan og ég haföi á til- finningunni að hún vildi ekki ræða þetta frekar. — Claes hefir aldrei kært sig um önnur börn. Svona Claes, vertu ekki að skvetta á okkur! Drengurinn hoppaði upp og niöur, blés út úr sér vatni, sneri svo við til aö synda aftur yfir laugina. Það var greinilega meira úthald i þessum granna llkama, en maður gæti trúaö. Sundláugin var stór, ábyggilega yfir fimmtlu metrar á lengd og hann var alls ekki þreyttur. — Já, ég hefi heyrt að honum hafi ekki samiö við skólafélagana, en hann hefir ekki farið þangað fyrr en foreldrar hans voru látnir? — Nei, honum var kennt hér heima. Hann kunni aldrei við sig i skólanum og það er skritið, þvl að hann er mjög greindur. Hann var búinn að lesa allar bækur hér I bókasafninu, þegar hann var tlu ára. Já, Claes, við erum að horfa á þig! Við biðum meðan hann fór heljarstökk af pallinum og klöppuðum fyrir honum. — Yvonne vildi ekki eignast börn, hélt hún áfram. — Hún var mjög fögur og henni var ákaflega annt um vöxtinn. Þér hugsið Hklega um steina og glerhús, þegar þér heyrið mig segja þetta, þvl aö ég hugsa mikið um hita- einingarnar. Ég var neydd til þess hérna áður og nú er þaö oröinn vani. Mig hefði samt langað til aö eignast barn, ef hjónaband mitt hefði verið far- sælt, en við Arvid Sterner áttum ekki vel saman. Arvid Sterner var næstum eins frægur nú og Jussi Björling haföi veriö. Þar aö auki var hann mjög glæsilegur maður. — Það var leiðinlegt, tautaöi ég. — Þið hljótið aö hafa verið glæsilegt par á leiksviðinu! Hún brosti. — Já, við áttum vel saman á sviöinu, en i einkalifinu kom okkur ekki saman. Astar- ævintýri sjötta áratugsins, var þaö kallað I blöðunum, þegar við giftum okkur. En það stóð ekki nema I tvö ár og hefði brostiö miklu fyrr, ef viö hefðu ekki veriö mikið fjarvistum á söngferöa- lögum, sitt I hvoru lagi. — Og þér hafið ekki fundið neinn annan? — Nei. Hún hristi höfuöið og það lýsti af gullnu hárinu undir sól- hattinum. — En Arvid hefir nú búið I hamingjusömu hjónabandi I fjórtán ár. Við hittumst oft og erum nú miklu betri vinir, en þegar við vorum gift hvort öðru. Hann á dóttur á aldur við Claes. — En elzti bróöir yöar, er hann ekki kvæntur? — Nei, Axel hefir alltaf verið of önnum kafinn til að hugsa um sllkt. Það held ég að minnsta kosti. Og Klemens, var komið fram á varirnar á mér, en ég fann hvernig blóðiö þau upp I kin- narnar á mér og ég var sjálfri mér reið fyrir bjánaskapinn og hætti við að spyrja um hann. Gabrielle geröi heldur ekkert til að upplýsa mig frekar um fjölskylduna. Ég stóð upp, rétti Claes höndina og dró hann upp úr lauginni. Hann var lafmóöur og skellti sér niöur viö fætur okkar. Framhald. á bls. 29. 22 VIKAM 39. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.