Vikan


Vikan - 28.09.1972, Side 30

Vikan - 28.09.1972, Side 30
»Nei - heyrðu nú. Notarðu uppbvottalög Uppþvottalögurínn frá Palmolivc mýkir hendumar- meðan þér standið við uppþvottinn Já, hin sérstaka samsetning Palmolive verndar hendur yðar, meðan þér þvoið upp, og gerir þær mýkri en nokkru sinni. Uppþvottalögurinn hreinsar líka mataráhöldin, svo að þau verða skínandi björt - og þér þurrkið ekki af þeim. þar sem Granada hefir kvik- myndaverin. Það getur ekki kallazt neitt hjónaband að búa sitt i hvorri heimsálfu. Sheila Ashton trúði á ástina, en það geri ég ekki lengur, segir ('oraj. — Þar greinir mest á milli min og hennar. Sheila heldur alltaf að hjónaband hennar eigi eftir að lagast. — Er hún alltaf jafn ákveðin i að taka ekki ástum Colins, sem er ljómandi geðugur maður og kemur einstaka sinnum fram á sjónarsviðið i sjón- varpsþáttunum? — Já, hún er það. En það hafa orðið svo breyttar skoðanir á lifnaðarháttum fólks, siðan á striðsárunum, svo ég er ekki sammála höfundinum á þvi sviði. Þá var strið og enginn vissi hvort hann lifði til næsta dags. Og Sheilu var alltaf ljóst hvernig David hagaði sér. En hún bjó alltaf ein og tilvera hennar var ósköp aum. Mér finnst þetta ákaflega óeðlilegt og ég hefi átt i strlði bæði við John Finch, höfundinn og leikstjórann, til að reyna að fá þá til að breyta þessu, en þeir eru á öðru máli. — Þú ert þá ekki hrifin af höfundinum? — Ég er mjög hrifin af John Finch sem höfundi. Mér finnst hann sýna mikinn skilning. Það er aðeins þetta með vináttu Sheilu og Colins, sem ég get ekki skilið og finnst i hæsta máta óeðlileg. Eg hefi reyndar sjálf haft tröllatrú á ástinni, svo ég á ekki erfitt með að setja mig i spor Sheilu. En ástandið á striðsárunum var svo allt öðru visi. — Hefir þá trú þin á ástinni dofnað? — Það var reiðarslag fyrir mig, þegar ég skildi við fyrri manninn. Eg var i mörg ár að ná mér eftir það. Nú hefi ég lært meira, eftir annað hjónabandið. Ég held ég gifti mig aldrei aftur. Það þarf mikinn þroska hjá báðum aðilum til að hjónabandið verði gott. Ég hélt, eins og margir aðrir, að maður ætti að hjálpast að, hjálpa hvort ööru til að vinna bug á erfiðleikum og sálar- flækjum, sem ef til vill hafa fylgt manni lengi. Það hefir reyndar verið eitt, sém mér hefir alltaf leiðst i leik minum i Ashtonfjölskyldunni: það er þessi stöðugi uppþvottur og öll tedrykkjan. Ég hefi and- styggð á heimilisstörfum. t fyrra hjónabandi minu ætlaði ég að vera góð eiginkona upp á gamlan móö og mér fannst ég vera að elda mat og þrifa allan daginn. Mér fannst það óþolandi. Ég hefi nú i fimm ár lagt stund á sálfræði og mig langar til að halda áfram á þeirri braut. Það er i gegnum sálfræðina og vegna ömurlegrar æsku minnar að ég 30 VIKAN 39. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.