Vikan - 28.09.1972, Síða 42
hafa veriö stolinn. Það gæti
komið heim við þessar vonir
ungfrú Bartlett um væntanlegan
fjárgróða.
— Stolinn! æpti Hanslet. — Það
væri svei mér fjarri sanni! Ég
ætla að sfma til belgisku
lögreglunnar og spyrja, hvort þar
hafi verið framinn nokkur
gimsteinasjófnaður nýlegaþ
— Mér dettur ltka annað atriði i
hug, sagði Priestleu rólega. —
Þið munið, að þið sögðuö mér frá
samtalinu við ungfrú Carroll.
Hún sagði frá þvi, hvernig
vinkona hennar veriö eftir að hún
kom heim frá Waldhurst, og
hvernig hún talaði um gróða-
fyrirtæki, sem hún ætlaði sér að
veröa rlk á. En fáum dögum
siðar sagði hún, aö eitthvert babb
hefði komið i bátinn, svo að fyrir-
ætlun hennar tefðist eitthvað. Er
þetta ekki rétt munað hjá mér?
— Alveg rétt. En ungfrú
Carroll skildi það þannig, að
fyrirætlunin hefði mistekizt fyrir
fullt og allt, eins og svo margar
þær fyrri.
— Já, en við getum hugsaö
okkur þann möguleika, að ungfrú
Bartlett hefði sagt bókstaflega
satt. Og ef svo er, get ég hugsaö
mér, hvað þetta hefur verið, sem
hefur tafið fyrir henni. Til dæmis
þaö, að hún hafi frétt dauða
Vilmaes, og þá séð sig neydda til
aö breyta eitthvað fyrirætlunum
sinum.
— Biðið þér andartak,
prófessor, við skulum sjá, hvort
þetta getur staðizt, sagði Hanslet.
— Það kann að vera, að hún hafi
ekki getað losað sig við hlutinn,
eins og upprunalega var ætlunin,
nema með hjálp Vilmaes. Þá
hefur hún orðiö að finna út sjálf
einhverja aðferð til að hafa upp
úr honum. Það getur vel verið, aö
hún hafi átt við þetta með orðum
sinum við ungfrú Carroll.
— Einmitt. Og ef þetta stenzt,
má ganga skrefi lengra i
tilgátunum. Hún getur hafa - af
óvarkárni - sagt einhverjum
þriðjd manni frá hlutniim, og eins
og ég sagöi áður, getur það hafa
veriö bein orsök þess að hún var
myrt.
— En það gerir okkur
nauðsynlegt að rekja spor hennar
siðustu vikuna, sem hún lifði. Ég .
verð aö leggja mig allan i þaö.
fyrst um sinn, sé ég. Og svo er
annaö: Hafi hún vitað, að
Vilmaes var dáinn, hefur hún
ekki fariö til að hitta hann þann
10. Og til hvers fór hún þá til
Wargrave Hopse? Og í öðru lagi
— og það langar mig enn meir að
vita. — Hvernig komst hún
þangaö? 1 fyrra skiptið fór hún
eins og ekkert væri og tók sér
gistingu i „Hafgúunni”, ók siöan
til hússins eða fór gangandi.
Hversvegna fór hún ekki eins að
þann 10.
— Maður gæti haldið, að hún
hafi haft einhverja ástæðu til að
láta alls ekki sjá sig á þessum
slóðum, svaraði dr. Priestley. —
En hitt er ómögulegt að segja,
hvernig hún komst i húsið þennan
dag. Ef til vill væri hægt að fá að
vita það með þvi að þaulspyrja
þá, sem liklegastir eru. Nú, égsé,
að við erum rétt komnir til
borgarinnar.
Um kvöldið og daginn eftir
hafði Harold nóg að gera hjá
húsbónda sinum. Prófessorinn
var ekki vanur að leggja mikið á
minnið, og þvi las hann nú fyrir
fjöldann allan af atriðum, sem
hann þurfti að muna, til dæmis
samtölun, serrt hann hafði átt við
hina og þessa, eða hafði látið
endurtaka fyrir sig. öll þessi
minnisblöð, ásamt fjölda af
blaöaúrklippum voru sett i sér-
stakt hylki, þar sem hægt var að
gripa til þeirra.
Að kvöldi þess 13., eða
sólarhring eftir ferðina til
Wargrave House kom Hanslet
heim til prófessorsins, sem tók
honum tveim höndum. — Ég4er
feginn; að þér nenntuð að koma til
min, fulltrúi, sagði hann. — Ég
vona að þér komið i sambandi við
ungfrú Bartlett. Ég skal játa, að
málið er farið að vekja áhuga hjá
mér.
Harold, sem var vel geymdur
bak' viö hfeljarstórt skrifborð,
glotti út undir eyru. Honum
fannst viðmótið hjá hús-
bóndanum hafa breytzt heldur en
ekki, siöan Hanslet kom fyrst til
hans. Það var yfirleitt erfitt að
vekja áhuga hans, en væri hann
einusinni vakinn, unni hann sér
ekki neinnar hvildar fyrr en
gátan var ráðin.
— Já, prófesgor, ég er kominn
til aö skýra yöur frá dálitlum
árangri sagði Hanslet. — Nát-
túrulega er ég ekki langt kominn
enn, en ég hef gert nokkrar sjálf-
sagðar fyrirspurnir og vildi
gjarna láta yður dæma um
árangurinn. Ég hef ekkert heyrt
frá Everley, svo að viö veröum að
ganga út frá þvl, að honum hafi
ekkert orðið ágengt sin megin.
— Ég hef heldur ekki miklar
vonir um árangur hjá honum, ef
hann ætlar að binda sig við að
spyrja mannskapinn I Quarley
Hall. En mér þætti gaman að
heyra, hvers þér hafið orðiö
vlsari.
— Fyrst af öllu fór ég aftur að
hitta ungfrú Carroll. Ég fann
hana i skrifstofu þessa Vináttu-
sambands Kvenna. Ekki veit ég,
hvað sá félagsskapur hefur fyrir
stafni, og spuröi heldur ekki um
það, en vist er um hitt, að
ungfrúin hefur nóg aö gera I skrif-
stofunni. Samt sem áður skipaöi
hún að láta ekki trufla okkur, og
ég átti langt samtal við hana.
— Fyrst spurði ég hana, hvort
hún hefði samið skrána yfir
kunningja ungfrú Bartlett. Hún
kom strax með vélritaða skrá I
tveimur eintökum og sagði, að
annað væri handa mér, en hitt
handa Everley. Hún kvaðst hafa
vandað sig mjög að hafa skrána
sem Itarlegasta, og vera
nokkurnveginn viss um að hafa
ekki gleymt neinum, sem hún
annars vissi af. Samt varaði hún
mig við þvi; að auövitað kynni
ungfrú Bartlett að hafa þekkt
einhverja fleiri lltillega, án þess
"hún vissi.
— Ég þakkaði henni fyrir og
stakk skránni I vasann. Siðan
sagði ég henni, beinum orðum, að
ástæða væri til aö halda, að
ungfrú Bartlett hefði náð I ein-
hvernverðmætan hlut, meðan hún
dvaldi I Waldhurst. Hún játaði,
að þetta væri vel hugsanlegt, og
bætti þvi við, að vinkona sin hefði
oftar en einu sinni náð i ýmsa
merkilega muni fyrir lltið verð og
selt þá aftur með ágóða. Ég
spurði, hverjum hún hefði selt þá
og þá gaf hún mér upp nafn
nokkurra fornsala, sem hún hefði
skipt við.
— Hún sagði llka, að það mætti
merkilegt vera ef ungfrú Bartlett
hefði náö I nokkurn verðmætan
grip, án þess að segja sér frá þvi.
Venjulega hefði hún verið mjög
hreykin af slíkum fundum sínum
og haft gaman af að sýna þá sem
flestum. Ég spurði, hvar
liklegast væri, að ungfrú Bartlett
hefði geymt sllka hluti, og hvort
nokkur peningaskápur eöa þess-
háttar væri I Belmont Street nr.
14. Hún kvað ekki svo vera.
Ungfrú Bartlett hafði verið
hiröulaus um hluti, sem hún átti
og skilið þá eftir hér og þar, og
a'drei læst neitt niðri. Eftir
dauða hennar hefði hún sjálf
athugað eftirlátna muni hennar
og ekki saknað neins og ekki
heldur rekizt á neitt, sem hún
kannaðist ekki við áður. Hún
sagöist halda, aö ef ungfrú
Bartlett hefði haft eitthvað
dýrmætt, sem ekki var alltof
fyrirferðarmikið I fórum sínum,
hefði hún geymt það I hand-
töskunni sinni, en hana kvaðst
hún einmitt ekki hafa fundið.
— Og það er vist litil von um, að
hún finnist héðanaf. Sennilega er
þegar búið aö koma henni fyrir.
Spurðuð þér ungfrú Carroll aö
nokkru fleiru?
— Ég spurði hana, hvort ungfrú
Bartlett hefði átt bil. Hún kvað
svo ekki hafa verið, en þær hefðu
haft samning við bilastöð, rétt hjá
Belmont Street, sem útvegaöi
þeim bíl, hvenær sem þær þurftu
á aö halda. Ungfrú Carroll
kvaðst ekki sjálf kunna á bfl. svo
að hún fengi jafnan ökumann
með, en vinkona hennar heföi
heldur viljað aka sjálf.
— Þegar hér var komið, hafði
ég fengið að vita þaö, sem hægt
var, svo að ég baö ungfrú Carroll
að lána mér skó, sem vinkona
hennar hefði átt, og sagðist
mundu senda eftir þeim heim til
hennar. Siðanfórég. Næstfórég
I bilastöðina, sem mér hafði verið
vlsað á. Þegar maðurinn þar
hafði aðgætt bækur sinar, sagði
hann mér, að hvorug þeirra
ungfrúnna hefði leigt vagn þann
10., og heldur ekki alla vikuna þar
á undan. Mér hafði dottið i hug,
að hún hefði kannski ekið sjálf, ef
ekki til Wargrave House, þá til
einhvers staðar þar i nánd.
— Ef hún hefur gert það, er
ótrúlegt, að hún hafi leigt sér
vagn þar sem hún var vel þekkt,
sagði Priestley. — Allt bendir til
þess, að hún hafi ekki viljað láta
rekja slóð sina eða sjá, hvert hún
heföi farið. Ég býst ekki við, að
þér hafið fundið neinn, sem hún
hefur sagt frá þvl.
— Ekki enn — en ég hef heldur
ekki farið gegn um þessa skrá,
sem ungfrú Carroll gaf mér. Ég
tók eftir, að nafn málfærslu-
manns hennar var á skránni,
svo að ég fór og talaði við hann.
Það er heldur leiðinlegur kall, og
var móðgaður yfir þvl, að hann
var ekki strax látinn vita, þegar
manneskjan var dauð. Það lltur
helzt út fyrir, að ungfrú Carroll
hafi ekki sagt honum neitt fyrr en
hún kom heim eftir réttarhaldið.
Mig langaði mest að segja
honum, að fólk, sem hengir sig,
hafi ekki alltaf nafn málfærslu-
mannsins sins merkt i nærfötin
sin, og lögreglan geti heldur ekki
fundiö það á sér.
— Ég stillti mig nú samt og mér
tókst að fá hann góðan, svo að
hann fór að segja mér margar
sögur um þvermóðsku ungfrú
Bartlett, sem vildi aldrei fara að
ráðum hans. Hann virðist hafa
verið fjárhaldsmaður hennar og
hún hafi tekið af honum öll ráð,
jafnskjótt sem hún varð myndug.
Og það get ég ekki láð henni, þvi
að hann er einhver langorðasti
kjaftaskúmur, sem ég hef
nokkurntima verið svo óheppinn
að hitta. Ég var hér um bil
klukkutlma að koma honum að
efninu, en það var að fá að vita,
hvort ungfrú Bartletthefði nýlega
gert breytingar á erföaskránni
sinni. Að þvl er hann bezt vissi,
hefði hún ekki gert það. Ungfrú
Carroll erfir allt, sem hún lætur
eftir sig.
Framhald í nœsta blaði.
42 VIKAN 39. TBL.