Vikan

Útgáva

Vikan - 18.01.1973, Síða 35

Vikan - 18.01.1973, Síða 35
FRAMHALDSSAGA EFTIR DOROTHY DANIELS ÁTTUNDI HLUTI Það hafði sýnilega borizt út meðal farþeganna, hverjar við vorum. Milli stöðvanna fóru þeir að ganga eftir ganginum, rétt til þess að fara framhjá okkur og fá að sjá stúlkuna, sem hafði verið horfin i fimmtán ár, en var nú komin aftur til fjölskyldu sinnar . . - Já, þaö er liklega satt. Ég fór ofurlitiö aö skjálfa vegna kuldans, sem kom meö sólar- laginu. Lance tók strax eftir þvi. - Þaö færi miklu betur um okkur i útsýnisturninum. - Þá skulum viö fara þangaö, sagöi ég með ákafa. Hann stóö upp, drap i vin- dlingnum sinum og rétti mér höndina. Ég hikaði sem snöggvast en þó ekki lengi, afþvi aö úr úr svip hans skein svo barnslegur ákafi að þóknast mér, aö þaö heföi verið durgsháttur af mér aö taka ekki eftir þvi. 9. kafli. Þetta áttstrenda sumarhús var I miöjum garöi meö allavega litum rósum. Handan viö hann höföu veriö gróðursettir runnar sem voru nógu háir til þess að hægt væri að vera þarna i næöi., en þeir voru klipptir nægilega mikið til þess, að rósirnar gætu notið sólarinnar. Og handan við runnana voru þessir allstaöar- nálægu eitursveppir - háir, tigulegir - og i minum augum hræðilegir. Viö gengum inn og ég sá, aö þarna voru þrir tágastólar og legubekkur úr reyr, auk föstu bekkjanna meöfram veggjunum. Skrautlegar japanskar luktir héngu I loftinu. Ég leit kringum mig, þvi að eitthvað hreyfðist i huga minum, og ég tók aö velta þvi fyrir mér, hvort ég mundi hafa leikiö mér þarna þegar ég var lltil telpa. Viö settumst niður hvort and- spænis öðru og ég horfði kring um mig og drakk i mig alla fegurðina, sem þarna var aö sjá. Þetta er fallegur staður, sagöi ég- , - Já, svona útsýnisturn er tilvalinn staður til aö tala saman, Jane. - Þar er ég á sama máli. En núna vildi ég samt heldur hlusta. Segiö mér eitthvaðum hann fööur minn. - Það er þá fyrst til að taka, aö hann byggöi ekki Skuggagil. Það geröi Pétur nokkur Snyder, land- námsmaður hér um slóöir, snemma á timum. Rikur maöur, sem gat látið eftir sér svona stórt hús. Faöir yöar keypti þaö eitt- hvaö sextiu árum eftir að þaö var byggt, og mér skilst hann hafa fengið þaö mjög ódýrt vegna þess, hve afskekkt það er. En svo haföi hann bráölega vel efni á þvi. Hann var I fasteignasölu I Albany og haföi vit á aö kaupa fasteignir, sem svo tifölduöust i veröi. Hann lagöi lika fé I silfurnámu i Utah og hitti á málmæö, sem gaf nægilega mikiö af sér tii þess að hann gæti fariö aö fást viö stjórnmál. - Faöir minn hefur nú lika þá persónutöfra til að bera, sem eru nauösynlegir hverjum stjórn- málamanni, sagöi ég hugsi. - Já, það hefur hann sann- arlega. Og hann sannaði það bezt meö þvi að sigra I rikis- stjórakosningunum, meö miklum meirihlut'a fram yfir keppi- nautinn. Svo reyndist hann ágætur rikisstjóri og sigraði þá auöveldlega aftur meö enn stæíri meirihluta. - Haldið þér, aö hann sigri I öldungadeildarkosningunni? - Já, og meö enn meiri meirihluta en I rikisstjóra- kosningunum. - Hver er ástæöan til þess? - Þér sjálf. Þér gengduö miklu hiutverki I fyrri kosningunum og komiö til aðgera þaðenn meir nú. - Ég? Mér fannst þessi hugmynd aiveg fáránleg. - Þér hurfuö rétt um það kosningunni var að ljúka. Vitanlega var þetta mikiö i fréttum, og blöðin skrifuöu um þaö heilar langlokur, og foreldrar yöar nutu mikillar samúöar. Ég held, aö margir kjósendur, sem annars heföu kosið andstæöinginn hafi kosið fööur yðar, til þess aö láta I ljós samúö sína. - Ég vil nú heldur halda, aö hann hafi veriö kosinn vegna eigin veröleika. - Ég vil nú ekki segja, aö þetta hvarf yöar hafi unnið kosninguna fyrir hann, en mikið gagn hefur það áreiöanlega gert honum. - Jæja, fátt er þá svo meö öllu illt . . . En segiö þér mér þá eitt- hvaö um hana móður mlna. - Hún var af Pendletonættinni frá Ebglewood I New Jersey. Hún menntaöist erlendis og giftist fööur yöar, rétt eftir aö hún byrjaöi I samkvæmisllfinu. Frænkur mínar segja mér, að hún hafu verið falleg og fjörug stúlka. Hún er enn ungleg og þið eruö alveg furöanlega likar. - Já, svaraöi ég hugsi. - Ekki fannst mér hún nú fjörug, heldur alveg þaö gagnstæöa. - Þér veröið aö muna, aö hún haföi misst barnið sitt. , - Vitanlega, flýtti ég mér aö segja. - Ég var alveg búin aö gleyma þvl. En kannski veröur hún nú sjálfri sér llk aftur, eftir aö ég er komin heim. - Kannski. Hún heldur nú flna dansleiki heima hjá sér, þrátt fyrir allt. Ég held, aö þegar þér eruö búiin að koma yöur fyrir, haldi hún einn dansleik yöur til heiðurs. Hvernig þætti yöur það? - Ekki nema gott, sagöi ég dreymandi. - Ég hef aldrei farið á dansleik og ef þaö yröi gert mér til heiðurs mundi mér finnast ég vera eins og hún öskubuska. Lance hló. - Já, að ööru leyti en þvi, aö þér munduö ekki stinga af á slaginu klukkan tólf á miönætti. Ég gat ekki annað en hlegiö meö honum. - Ég vildi gjarna mega hjálpa til eftir þvi sem ég get. Til dæmis ættuö þér aö læra að riöa og losna viö þessa hræöslu viö hesta. Ég er alveg viss um, að þér gætuö oröiö ágætis reiðmaöur. - Nei! sagöi ég snöggt og hrollur fór um mig alla. - Ég get ekki þolað hesta og gæti aldrei pint mig til aö fara á bak neinum þeirra. Ég gæti ekki um annað hugsaö en aö ég mundi detta af baki og verða troöin undir fótum. Ég vissi, aö hræðslan skein út úr andlitinu á mér og bæöi skammaðist min og var örg út i sjálfa mig, en ég gat bara ekki losnað viö þessa hræðslu. Hann seildist eftir hendinni á mér og hélt henni i báðum sinum höndum. Svipurinn á honum sýndi iörun eftir aö hafa gert mig svona órólega og hann sagöi meö innilegri samúö: - Ég biö yöur fyrirgefningar, Jane. Þaö var illa gert af mér aö minnast á það. Ég hristi af mér hræðsluna og sendi hinum uppörvandi bros. - Þér þurfið ekki aö beiöast af- sökunar, afþvl aö þetta er alveg rétt hjá yöur. Ég ætti að sigrast á þessari hræðslu og eina ráð- iö til þess er að læra aö riöa. Kannski verö ég einhverntima nógu hugrökk til aö biöja yöur aö kenna mér þaö. - Ég er reiöubúinn. Hann laut fram og kyssti á hönd mlna, en sleppti henni svo aftur. - Þakka yöur fyrir, Lance, sagöi ég. Hann ljómaði allur, þegar ég nefndi hann skirnarnafni. - Og þér ætlið að koma og heilsa upp á frænkur mlnar? - Þaö skal ég gera, lofaöi ég. - Undir eins og ég slepp frá saumakonunum. Og þá ætla ég lika aö vera sem mest meö móöur minni, svo aö við getum kynnzt almennilega. Kannski get ég þegið þetta vingjarnlega boö yöar eftir svo sem þrjá daga. - Agætt, sagði hann og brosti ánægjulega. Ég stóð upp. - Jæja, nú verö ég aö fara heim aftur. - Já, auövitað, sagöi hann. Fra.Tnha.ld á hls. 42. 3. TBL. VIKAN 35

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.