Vikan

Útgáva

Vikan - 07.06.1973, Síða 6

Vikan - 07.06.1973, Síða 6
SIÐAN SIÐAST sinni í mánuði kemur hann til London, til að hitta sína hjartadrottningu. Þá hafa þau oft sézt á gönguferðum í Green Park og þar sem þau borða saman á einhverju veitingahúsinu í Mayfair, tvö ein. Ekkjudrottningin og hertoginn hafa þekkt hvort annað í mörg ár, en þau hittust á ný, þegar hertoginn tók þátt í kappreiðum hersins fyrir utan Lond- on, í fyrra. Síðan hefur hann oft ver- ið gestur hennar, meðal annars dvalið í einkavillu hennar í garðinum við Windsorhöll og hann hefur líka verið gestur Elisabetar drottningar og Phil- ips prins við fasanaveiðar á Balmoral. Síðari hluta júnímánaðar í sumar, SPÁNSKUR HERTOGI ÁSTFANGINN AF DROTTNINGAR- MÖÐURINNI Nú er það drottningarmóðirin, sem hefur slegið út Önnu prinsessu, dóttur- dóttur sína í fréttunum. Það er sem sagt staðreynd að í heilt ár hefur hún átt aðdáanda, spánska hertogann Bel- tran d‘Albuquercue, sem er tíu árum yngri en hún. Hertoginn, sem er spánskur aðalsmaður, býr á stóru sloti fyrir utan Sevilla. Hann sendir henni heilu hlössin af blómum flugleiðis í hverri viku og að minnsta kosti einu fer hún svo að heimsækja hertogann, bæði til hallar hans í Madrid og líka til Sevilla. Drottningarmóðirin missti mann sinn, Georg konung VI. fyrir tuttugu árum og hertoginn missti konu sína fyrir tíu árum. Hann á aðeins eitt barn, dótturina Mariu Teresu, sem gengur á skóla í Englandi og eyðir oft fríum sínum hjá drottningarmóður- inni. Líklega verður hér ekki um hjú- skap að ræða — hertoginn er kaþo- likki og drottningin mótmælandi og þess utan mjög trú minningunni um eiginmann sinn. En það er engum vafa bundið að þessi vinátta við hertogann styttir henni stundir í einmanaleikan- um. MARC CHAGALL segist vera mjög ánægður með fram- kvæmdirnar á hinu mikla „Message Biblique“ safni í Nissa, þar sem mörg af verkum hans verða til sýnis. Safnið á að opna 7. júlí og þá verður meistar- inn sjálfur viðstaddur. Sá dagur er fæðingardagur hans og verður hann að sjálfsögðu heiðursgestur. NÝSTÁRLEGIR HÆLAR Dömu- og herraskór með lifandi gull- fiskum í gegnsæjum, holum hælum voru nýlega sýndir á tízkusýningu í New York. Þeir eru sagðir kosta 25 dollara parið og skósalar segja söluna ganga afbragðs vel.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.