Vikan - 07.06.1973, Síða 8
MKIKIMIIMfí KllA El [M MKlTI
SÍÐAN
LAGÐIST
ALLT
í RÚST
Nasistar aðstoðuðu geðveilan mann, sem haldinn var íkveikjuæði,
við að brenna þinghúsið í Berlín til grunna. Úlfaþyturinn, sem
bruninn vakti, veitti Hitler tækifæri til þess að binda endi á lýðræðið
og verða einræðisherra.
Að kvöldi mánudagsins 27.
íebrúar datt óvænt kyrrð á í
Berlín, höfuðborg Þýzkalands.
Hlé virtist hafa orðið á stöðug-
um götuerjum milli nasista og
kommúnista.
Samt lá mikil spenna í loft-
inu. Foringi þjóðernissinna-
flokksins, Adolf Hitler, hafði
orðið ríkiskanslari í janúar. En
þingið, þar sem nasistar og
fylgismenn þeirra höfðu þó
meirihluta, var í upplausn. 5.
marz átti að efna til nýrra
kosninga og óvíst var talið,
hvort Hitler og flokki hans
tækist að bera sigur úr býtum
8 VIKAN 23. TBL.
í þeim. Útlitið var ekki of
glæsilegt fyrir þá. Þá þegar
hafði fjöldi Þjóðverja misst
trúna á ofstopa nasistaleiðtog-
ans.
Umrætt mánudagskvöld var
Hitler í kvöldverðarboði hjá
áróðurssérfræðingi sínum, dr.
Josef Goebbels. Hermann Gör-
ing þingforseti, sem jafnframt
var innanríkisráðherra Prúss-
lands og um leið yfirmaður lög-
reglunnar var staddur í em-
bættisíbúð sinni rétt hjá þing-
húsinu.
Þjóðhöfðinginn, Paul von
Hindenburg marskálkur, þá
hniginn að aldri, var í kvöld-
verðarboði hjá Franz von Pa-
pen, leiðtoga íhaldsflokksins og
varakanslara.
Þinghúsið. sem byggt hafði
verið í lok nítjándu aldar, var
autt og yfirgefið, þegar Hans
Flöter stúdent og rithöfundur-
inn Werner Thaler gengu fram
hjá því á kvöldgöngu.
Allt í einu heyrðu þeir brot-
hljóð og sáu að maður var að
brjótast inn í veitingahúsið í
þinghúsinu. Þeir hlupu af stað
til þess að gera lögreglunni að-
vart og sáu um leið að eldur
var laus í byggingunni.