Vikan

Issue

Vikan - 07.06.1973, Page 21

Vikan - 07.06.1973, Page 21
TAYLOR CALDWELL 2. HLUTI BLÓÐ hann gat ekki stillt sig um að brosa. — öll min jarðnesku auðæti eru sex skildingar, sagði Haroun, — ég er reiðubúinn til að skipta þeim á milli okkar, ef þú vilt. Joseph varð undrandi. — Hversvegna ættirðu að gera það? bú þekkir mig ekki einu sinni. Haroun glotti. — Það væri kristilegt, eða finnst þér það Það var biturleiki i hjarta Josephs, þegar hann virti fyrir sér þetta glæsilega hús og dekurbarnið, sem skoppaði um grundina. Sá dagur myndi koma, að hann gæti losað systur sina frá munaðarleysingja- heimilinu og öllum þess ömurleika og flutt hana í svonaglæsilegt hús. Sádagur myndi lika upp renna, að eigandi þessa húss myndi knékrjúpa fyrir hon- um....... ekki? — Ég er ekki beinlinis kristinn, sagði Joseph. — Ert þú kristinn? — Grisk-kaþólskur. Það er fjöl- skylda min lika, við erum frá Libanon. Þar var ég skirður itfflj PÍ^fp® - Wmm *. lwráESafi * i/p® I V Haroun Zieff. Ég var aðeins árs- gamall, þegar við komum hingað til Wheatfield. Pabbi var vefari, en bæði hann og mamma urðu fljótlega veik og þau dóu bæði. Joseph virti hann betur fyrir sér. — Segir þú öllum, sem þú hittir, sögu þina. Það gæti verið hættulegt. Þvi minna sem aðrir vita um þig, þvi minni likur eru til að þú verðir grátt leikinn. Haroun hristi höfuðið i ákafa. — Ég hata þetta lif, sagði hann og það var töluverður æsingur i rödd hans Skyndilega heyrðist hávaðinn i lestinni til Titusville, sem kom skröltandi upp að pallinum og þá kom allur mannfjöldinn æðandi út og það leit helzt út fyrir að margir myndu troðast undir i ‘öllum hamaganginum við að komast upp i vagnana. Joseph fann að Haroun greip fast i hann og hann hafði mesta löngun til að hrista hann af sér, en sá sig um hönd. Hann vissi að hvorugur þeirra myndi komast upp i lestina, nema með mikilli á- reynslu. Hann greip þvi fast um lurkinn, sem hann hafði ætið með sér, og barði sér bókstaflega braut gegnum þröngina og togaði Haroun með sér. Joseph stóð á öndinni, ermin var næstum rifin frá jakka hans og hann hafði týnt húfunni. Hann tautaði: — O, fari það bölvað. Haroun reyndi að brosa. — Það er þó gott að við skulum hafa komizt svona langt, sagði hann, — það er sannarlega þér að þakka. Hvað heitirðu: — Joe, sagði Joseph. Lestin tók kipp og skrönglaðist af stað Piltarnir tveir höfðu komizt upp á einskonar rennipall milli tveggja vagna. Þessir rennipallar voru nýlega teknir i notkun til að fyrir- byggja slys. Þetta voru tvær málmplötur, festar yfir hengslunum milli vagna. Þær voru hreyfanlegar, en féllu saman, þegar lestin var komin á ferö. Plöturnar voru hálar og Joseph varð að halda sér i handfang á fremri vagninum. Haroun hallaði sér að aftari vagninum, hann stóð á öndinni af mæði og reyndi að fá góða fótfestu á pallinum, sem var á mikilli hreyfingu. En hann horfði á Joseph með aðdáunar- augum og brosti. En svo rak Haroun upp átakanlegt sársaukavein. Annar fótur hans hafði lent um ökkla milli málmplatanna. — Guð minn góður! Asninn þinn! Hversvegna hélztu þér ekki i handfangið? öskraði Joseph. Hann sleppti kassanum sinum og lagöist á hnén. Þegar plöturnar hreyfðust svolitið, togaði hann i fótinn, en hann var fastur. Þá kom honum i hug að nota lurkinn. Hann beið, þar til svolitið bil myndaðist, þá stakk hann lurknum á milli. Svo stakk hann 23.TBL. VIKAN 21

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.