Vikan - 07.06.1973, Side 39
VESTUR-ÞÝZKU SÓLGLERAUGUN
PRIMETTA 73
eru nú fáanleg i flestum verzlunum á landinu.
Primetta sólgleraugu eru SMEKKLEG VÖNDUÐ
FARA VEL
Primetta sólgleraugu VEITA ÖRYGGI í AKSTRI
ÞVÍ UMFERÐALJÓS SJÁST 20% BETUR EF ÞÉR
AKIÐ MEÐ PRIMETTA
PRIMETTA SÓLGLERAUGU ERU ALGJÖR-
LEGA í SÉIIFLOKKI
Innkaupastjórar, skrifið eða simið eftir myndalista
sem verður sendur um hæl.
Primetta umboðið
H.A. Tulinius, heilsverzlun
Austurstræti 14, simar 11451 — 14523.
svo að lesendur Vikunnar mega
eiga von á þvi að fá að kynnast
honum, þó við þorum ekki að lofa
þvi fastlega, að það verði i næsta
blaði, þvi að Þorbjörn staldrar
aldrei lengi við i Reykjavik
hverju sinni. Hans staður er nú
úti i Eyjum.
ÍRSKT BLOÐ
Framhald af bls. 22.
þá verður þú að hafa áhuga á öllu,
bókstaflega öllu, sem fram fer i
kringum þig og gaumgæfa vel
hvar beztur hagnaður fæst. Þú átt
margt eftir ólært, Joseph Francis
Xavier.
— Og þér ætlið að kenna mér?
sagöi Joseph ismeygilega.
Healey pirði augunum. — Ef ég
geri það, sonur sæll, þá verður
þaö þin hamingja. Ég hefi áhuga
á þér, vegna þess að þú ert frskur.
Það er gott aö vera af irsku bergi
brotinn. Það er alltaf hægt að
treysta Irum, ef þeir eru líkir þér.
— Sjáðu nú til, þú hjálpaðir
þessum dreng, þótt hann kæmi
þér ekki viö. Þú hefir líklega
bjargaö lifi hans. Þetta met ég
mikils, þótt ég sé kannske ekki
linis hrifinn af þvi. Myndir þú
kæra þig um að vera hjá mér.
— Það fer nokkuð eftir þvi
hvaða laun eru i boði, herra
Healey.
Herra Healey kinkaði kolli, eins
og til viðurkenningar. — Ef þú
hefðir sagt eitthvað annað, þá
hefði ég ekki eytt meiri tima á
þig. Peningar, það er aðgangs-
eyririnn. Mér sýnist að þessi
Tyrki þinn sé að vakna. Hvað
sagðiröu að hann héti? Haroun
Zieff. Það er heiðingjanafn. Ég
held við köllum hann — ja, látum
okkur sjá — Harry Zeff. Það er
ameriskara. Þýzkt. Það eru
margir Þjóðverjar i Pennsyl-
vaniu.
Hann sagði: — Jæja, Joseph
Francis Xavier — hvað sem þú
heitir nú fleira. Hvaö leggijr þú til
að viö gerum við þennan dreng-
sfaula, sem ekkert kemur okkur
við, hvað segiröu? Hann er ekki
vinur þinn. Eigum við að skilja
hann hér eftir og láta vagn-
stjórann um hann, láta fleygja
honum út, eins og öðru rusli?
Joseph leit á herra Healey,
augun dökk af reiði. — Ég þekki
engan mann I Titusville, sagði
hann. — Kannske þér þekkið ein-
hvern, sem getur séð um hann,
þangað til honum batnar. Ég get
borgað með honum.
— Sonur sæll, sagði herra
Healey, sem'nú var staðinn upp.
— Þú þekkir ekki Titusville. Það
er eins og frumskógur. Sótsvart
gullæðiö hefir gripið um sig þar.
Og þegar menn eru gripnir slfku
æði, þá gefa þeir dauðan og
djöfulinn i aðra menn, sér-
staklega ef þeir eru sjúkir og fá-
tækir. Alliræru önnum kafnir við
að fylla vasa sina og ræna ná-
ungann. Það fyrirfinnst ekki hótel
eða leiguhjallur, sem ekki er full-
s’etið og þar er ekki einn einasti
spftali, ef það er það, sem þú ert
að hugsa um.
Joseph beit á vörina, svo fast að
hún hvitnaði. Haroun rétti honujn
skjálfandi hönd sina, sem var heit
af sótthita.
— Jæja, Joe, við erum þá
komnir til Titusville. Kemur þú
meö mér?
Joseph sagði? — Ég get ekki
skilið hann hér eftir. Ég bjar^a
mér.
— Já, sagði herra Healey, —
þetta er mannlega mælt. Þú ert
ekki að væla eða biðja
miskunnar. Menn biðja mig
venjulega um ölmusu og ég svara
þvi venjulega á einn veg: Stattu
upp og hjálpaðu þér sjálfur, það
hafa milljónir manna gert á
undan þér.
Lestin hafði nú verið stöðvuð
við ömurlega brautarstöö og
mennirnir þyrptust niður á
pallinn. Herra Healey dokaði við.
En Joseph hafði varla hlustaö
eftir þvf, sem hann sagði. Hann sá
aö Haroun var farinn að skjálfa
og hann vafði jakkanum sinum
fastar að honum.
Lestarþjónn kom til þeirra og
Joseph kallaði til hans: —-
Heyröu, þú þarna, mig vantar
hjálp til aö koma þessum sjúka
vini minum út úr vagninum! Ég
verö aö finna eitthvert hæli handa
honum. Veizt þú um nokkurn
stað?
Herra Healey rumdi: — Hver
fjandinn gengur aö þér Joe, sagði
hann. — Er ég kannske ekki hér?
Ertu of stoltur til að spyrja mig,
ég sem er þinn trausti vinur, Ed
Healey!
Lestarþjónninn þekkti herra
Healey og flýtti sér til þeirra, með
höndina á húfunni. Hann horfði á
piltana tvo. — Eru þetta vinir
yðar, herra Healey? spurði hann
meö undrunarsvip, þegar hann
leit á þessa tötralegu náunga.
— Það geturðu bölvað þér upp á
Jim, sagði herra Healey. Er Bill
ekki þarna úti með vagninti
minn?
— Jú, herba, ég skal kalla á
hann.
Allir virtust þekkja herra
Healey og vagninn hans. Bill, sem
var Kentuckymaður, hjálpaöi
fyrst herra Healey niður úr
lestinni og upp i vagnsætið, siðan
bar þann Haroun og setti hann við
23. TBL. VIKAN 39