Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 07.06.1973, Qupperneq 43

Vikan - 07.06.1973, Qupperneq 43
— Ég er mikið búinn að velta því fyrir mér hvað þetta er. Nú getið þér pantað það og svo prófum við það saman! — í gær varð ég að taka vinnu heim með mér, en í dag tek ég húsverkin með mér í vinnuna! — Nei, elskan, þú tefur mig ekkert, ég var bara að strauja svolítið uppi á lofti! — Ég get það ekki, mamma, ég fæ alltaf sand í augun! — Það er þó munur að hafa eitthvað til að stinga í! I SlÐAN LAGÐIST ALLT I ROST Framhald af bls. 10. Og það var einmitt af svölum þinghússins, sem tilkynnt hafði verið um stofnun Weimerlýð- veldisins. Miklar deilur milli sósíalista og íhaldsmanna, sem margir vildu endurreisa keisaradæm- ið, settu svip sinn á árin eftir stríðið. Stjórnir risu og féllu, verð- bólgan svarf að efnahagi fólks, ofstækismenn til hægri og vinstri börðust á götunum og öll þjóðin gat búizt við hverju sem var. Ægilegt atvinnuleysi jók enn á ókyrrðina. Nær sex milljónir manna voru atvinnu- lausar. Þetta örvæntingarfulla fólk var auðveld bráð æsinga- mönnum nasista. Lýðræðið náði aldrei að þró- ast. Jafnvel sósíaldemókratísk- ar ríkisstjórnir í forsetatíð Eb- erts voru þvingaðar til þess að stjórna með aðstoð lögreglunn- ar og þess hers, sem Þjóðverj- um var leyft að hafa eftir stríð- ið. — Morgundagurinn ber frelsi og brauð í skauti sér, var sagt í baráttusöng nasista, Horst Wessel. Þetta var hríf- andi boðskapur fyrir soltnar og auðmýktar manneskjur, sem voru harðsvíraðir andstæðing- ar kommúnista. 21. marz 1933 kom þingið saman í Krollóper- unni og þar átti Adolf Hitler eftir að flytja margar frægar ræður. Þinghúsbruninn var öllum í fersku minni og andrúmsloftið á þinginu var þrungið spennu. Hitler og nánustu samstarfs- menn hans ræddu við leiðtoga annarra flokka og lofuðu öllu gegn því að þeir veittu þeim þann stuðning sem til þurfti til þess að gera þær breytingar á stjórnarskránni, að Hitler fengi mjög aukin völd. Þetta tókst. Stjórnarskrárbreytingin var samþykkt með 441 atkvæði gegn 94. Það voru aðeins sósíaldemó- kratar, sem greiddu atkvæði gegn henni. Adolf Hitler var orðinn einræðisherra — jafn vel þótt hann. væri enn ekki þjóðhöfðingi. Lögin veittu honum heimild til þess að stjórna sumum ríkj- um ríkjabandalagsins beint þótt þau væru sjálfstæð að nafninu til. Yfir einstök ríki voru settir sérstakir nasistískir „ríkisstjór- ar“. íhaldsöflin, sem studdu Hitl- Framhald af hls. 49. Fæst hjá nasta bóksala HILMIR HF. SIÐUMÚLA 12 POSTHÖLF 533 SIMI 35320 REYKJAVlK 23. TBL. VIKAN 43

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.