Vikan

Tölublað

Vikan - 29.11.1973, Blaðsíða 16

Vikan - 29.11.1973, Blaðsíða 16
- brot aföllum sem maöur kynnist „Maöur gripur þetta bara úr tóminu. Ég var aö lesa kvæöi eftir örn Arnar og meöal þeirra var Grjót-Páll. Lagiö varö bara til, ' i eins og ég heföi gripiö þaö úr tóm- , inu”. Þaö var Litiö eitt eöa öllu heldur íitiö eitt af Litlu einu, sem áttu viötal viö þáttinn fyrir nokkru siöan. Tilefniö var nýút- komin L.P. plata þeirra, sem heitir bara Litiö eitt.Þaö voru orö Gunnars Gunnarssonar, sem upphófu þennan pistil, en auk vern hans skipa Litið eitt þau Jón Árni Þórisson, Steinþór Einarsson og .Berglind Bjarnadóttir. Grjót-Páll, lag Gunnars viö texta Arnar Arnar, er eitt 12 laga á þessari L.P plötu. Lögin eru eftir Gunnar, Jón Arna og nokkra erlenda höfunda og þeirra á meö- al Dylan. Lagiö hans, The times they are changin er i izlenskri gerð Haröar Zophaniassonar skólastjóra I Viöistaöaskólánum. „Þetta var alltaf fyrsta lagið, sem viö sungum, þegar viö kom- um fram, svo þaö þótti viöeigandi aö byrja plötuna á þvi”, sagði Jón Arni m.a. Að sögn gekk erfiölega aö finna réttan hljóm eða rétt sánd í gitarana, þegar upptakan var gerö, en hún fór fram I Goos- berry Studios i Englandi. En þegar sándiö var komiö á hreint, þá rann þetta inn. „Piparsveinninn er irskt þjóö- lag og textann geröi Valur ösk- JOHN John Miles Set hefur nú yfirgef- iö land og þjóö i bili. Ekki er hægt aö segja annaö, en aö hann hafi gert lukku pilturinn sá. Hæfileik- ar hans sem söngvara, gitarleik- ara og pianóleikara eru slikir, aö liklega hefur hann skotiö öllum fyrri heimsóknaraöilum ref fyrir rass. Hljómleikarnir i Austur- bæjarbiói fimmtudaginn 1. nóv- ember, þar sem John Miles Set kom fyrst fram opinberlega á ts- landi, munu lengi I minnum verða sökum þess hve góöir þeir voru og sökum þess hve fátt lét sjá sig. Ég á bágt meö aö trúa, aö áhugi okk- ar á hljómleikum sem þeim sé ekki meiri. Meöfylgjandi mynd var tekin á umræddum hljómleik- um og er af John Miles. arsson, kennari I öldutúnsskólan- um”, hélt Gunnar áfram. „Ég átti að spila sóló og rythma á git- arinn i þessu lagi, en það gekk ekki betur en svo, að ég rak alltaf gitarnöglina i gitarkassann. Jón Arni ætlaöi sér nú aldeilis að bjarga þvi við og kom með svampbút, sem hann setti á kass- ann fyrir neðan strengina. En ég rak nöglina eftir sem áöur I svampinn, svo vel heyröist, svo það þýddi ekki neitt. Þá tókum viö upp á þvi, að láta svampbút- inn alveg. undir strengina og dempa þannig hljóminn I strengj- urium og viti menn, þar kom al- veg splunkunýtt sánd. Og Jón fékk að spila sólóið”. Segulband með öllum lögunum var leikiö, meðan viö áttum þetta tal saman og næsta lag, sem upp kom var Tvö ein, textinn eftir Val, en lagið eftir Stookey, áöur flutt af Peter, Paul og Mary. ,',Viö fluttum þetta I sjónvarpinu hérna MILES I eina tiö”, sagði Gunnar. „Linda syngur þetta afburðavel, en það var bramboltið á okkur hinum viö upptökuna maður”. Þaö blandast engum hugur um þaö, að upptaka 12 laga i erlendu stúdiói, skapar mikið „bram- bolt”. Þau eru eflaust mörg vand- kvæöin, sem upp koma þegar á hólminn er komiö, en eftir árangrinum að dæma, viröast þau I Litið eitt hafa sloppiö vel frá sinu og án þess aö hafa gert ein- faldan hlut flókinn, sem er ekki á hvers manns færi, þegar tónlist á hlut að máli. „Þetta var allt ööruvisi i upp- hafi”, hélt Jón áfram og það var lagið Sjómannsástir, sem leikið var af bandinu. „Ég íék það inn á spólu I upphafi, en svo breyttist lagið á æfingu hjá okkur. En það endaði i sinni upphaflegu mynd á plötunni. Það var eins konar Viki- vaki, sem kom út úr þessu i rest- ina og fólki er velkomið að dansa eftir þessu”. Sjóniannsástir, bæði lag og texti, er eftir Jón Árna og það verður að segjast eins og það er, að lagið er bara ágætt. Textinn er saminn eftir erlendri fyrirmynd, saga um sjómanninn og stúlkuna, sem bað hann um að giftast sér. Sjómaöurinn átti enga skó, til að gifta sig I, ekki klæðin fin né far- kostinn, til að aka i. En stúlkan átti þetta allt saman og var reiðu- búin að gefa honum, ef hann vildi giftast henni. En sjómaöurinn var ekki allur þar sem hann var séöur og siöasta visan er svona: Dýrar gjafir mikils met og mun ég vel þær geyma. Samt ég gifst þér aldrei get þvi giftur er ég heima. örn Arnar samdi eitt sinn jóla- kvæöi. Jólhét það, gullfallegt og rómantlskt. Við þetta kvæði hefur Gunnar nú samið iag, alveg ágætt og hefur það fengið skemmtilega meðferð á plötunni. Fiðlur og celló gefa laginu skemmtilega léttan blæ. „Hann var algjör snillingur i þessu, fiöluleikarinn”, upplýsti Gunnar. „Hann heitir Robin Williams og lék aldeilis frábærlega. Steinþór syngur' þetta lag, sem er fallegt jólalag”. Þau eru nokkur Irsku þjóölögin, sem hafa fengið aö fljóta meö. Meöal þeirra er Hæ Kalliog text- anngeröi Hörður einnig. „Já, það má segja aö strákurinn hafi kom- iö upp i honum Herði i þessum texta”, sagði Jón. Og það er vist ekki fjarri lagi. „Þetta er ofsa fjörugt og ég átti náttúrlega að syngja þetta”, (þaö er Gunnar sem hefur orðið) „og ég átti aö.fá tvo bjóra aö launum, borgaöa fyrirfram. Jón skrapp út á pub og náði I bjórinn, en á meöan söng ég 16 VIKAN 48. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.