Vikan - 29.11.1973, Qupperneq 40
LIQUI - MOLY
AFTUR FYRIRLIGGJANDI
HVAÐA ÞYÐINGU HEFUR LIQUI-MOLY SMURHÚÐIN
FYRIR BIFREIÐAEIGANDANN?
Ein dós af LIQUI MOLY sem kostar
rúmar kr. 170,00 myndar slitlag á núnings-
fleti vélarinnar sem endist 4800 kílómetra.
Á þessu tímabili er rétt að skipta um olíu
eins og venjulega, en eíginleikar LIQUI
MOLY slitlagsins breytast ekki við það.
Þetta gífurlega sterka slitlag, sem er 50—
60% hálla en olía, smyr þvi betur sem
leguþrýstingurinn er meiri og engin hætta
er á að það þrýstist burt úr legunum eða
renni af og niður í pönnuna eins og olía
þó vélin kólni að næturlagi eða í löng-
um kyrrstöðum og útilokar því þurra
(ósmurða) gangsetningu sem talin er valda 90% af öllu vélasliti. LIQUI MOLY auðveldar
gangsetningu og eykur endingu rafgeymisins, jafnvel í 20° frosti snýst vélin liðugt.
LIQUI MOLY slitlagið minnkar núningsmótstöðuna, við, það eykst snúningshraðinn og vélin
gengui kaldari, afleiðing verður bensín- og olíusparnaður.
• Minnkar sótun vélarinnar.
• Veitir öryggi gegn úrbræðslu.
• Eykur tvímælalaust endingu vélarinnar.
• LIQUI-MOLY fæst í bensínafgreiðslum og smurstöðvum.
Nánari upplýsingar veittar hjá LIQUI MOLY-umboðinu á tslandi.
ÍSLENZKA VERZLUNARFÉLAGIÐ HF.
Laugavegi 23 — Sfmi 19943
kjánalegar og roönuðu, ef yrt var
á þær. En þú varst svo eðlileg og
þú flissaðir ekki eins og þær, Eftir
að við höfðum öll rabbað saman
um stund, varð það úr, að við
fórum öll til Denver og eyddum
þar kvöldinu saman, með þvi að
borða Pizza og drekka bjór.
Þessu lauk auðvitað með þvi, að
við skiptum okkur niður, tvö og
tvö, og ég fylgdi þér heim.
— Hvernig leit ég út þá?
— Hárið var styttra og þú varst
i siðari kjólum. Hljóðlát, svolitið
dreymandi. Ég reyndi ekkert til
að sálgreina þig. Hefði liklega átt
að gera það?
— Hvernig stóð á þvi, að við
giftum okkur?
— Ég veit það ekki. Slikt
skeður vist stundum. Ég var i
herbúðum rétt hjá Denver. Við
hittumst oft á næstu mánuðum og
okkur leið vel i samvistum hvort
við annað. Við leigðum ibúð rétt
hjá skólanum og...
— Biddu aðeins.. Elskuðum
við hvort annaö?
Hann elskaði þig aldrei. Hjóna-
bandið var ekki annað en mistök.
Henni fannst sem einhver
mannleg rödd hvislaði þessu að
henni. Hafði einhver sagt þetta
við hana?... einhvern tima fyrir
löngu siðan...Hún reyndi að muna
meira, en skyndilega vék það frá
herini, fjarlægt og eggjandi.
Michael kveikti i annarri
sigarettu og staröi á glóöina, án
þess að reykja
— Að elska einhvern. Það er
ekkert annað en heimsiculegt
glamuryrði, Laurel. Fólk notar
það til aö skjóta sér a bak við eitt-
hvað. Ég persónulega get ekki
skilgreint þetta hugtak. Ég man,
að ég var ákaflega hreykinn af
þér, og mér fannst ég hafa mikla
ábýrgðartilfinningu gagnvart
þér, — þún varst eitthvað svo
viðkvæm. Eins og þú þyrftir að
hafa einhvern til að hugsa um þig.
Mér leið vel i návist þinni, betur
en með öðrum stúlkum, sem ég
hafði kynnzt. Þessi tilfinning
hefði kannski getað þróazt til ein-
hvers miklu sterkara, ég veit það
ekki.
Krahba-
merkið
Hrúts
merkið
21. marz —
20. aprll
Övænt velgengni biður
þln eftir nokkurt tima-
bil, þrotlausrar vinnu
og mikilla vonbrigða.
Vertu vinum þinum
trúr og láttu ekkert
skilja þig frá þeim, þvi
að þeir eiga sinn þátt i
að gera drauma þina
að veruleika. Þú tekur
þátt i smS hrekk, sem
hressir upp á til-
veruna.
Nauts-
merkið
21. apríl —
21. mai
Ef þú ert einhleypur,
þá er ástæða til að
vara þig við vali þinu
á félögum, sérstak-
lega af hinu kyninu.
Sértu kvæntur (eða
gift) þá gættu þess vel
að vekja ekki gremju
eða afbrýðisemi hjá
maka þinum. Þú
verður heppinn i ein-
hverju lukkuspili og
græðir svolitið fé.
Tvibura-
merkið
22. mai —
21. júnl
Tilfinningar þinar
varna þér að nokkru
leyti rétts mats á að-
stæðum þinum. Þú
lendir I vandræðum
alveg að óþörfu vegna
fljótfærni. þinnar og
óyfirvegaðra athafna.
Reyndu að hafa taum-
hald á tilfinningum
þinum og varast allar
öfgar, hvort heldur er
til harms eða gleði.
22. júni —
23. júll
Þú öðlast hylli glæsi-
legrar og gáfaðrar
konu, sem mun
reynast þér hollur
vinur og ómetanlegur
ráðgjafi. Eins þarftu
samt að gæta vel. Það
er, að þessi góða kona
nái ekki of sterkum
tökum á þér. Ef þú
ferð ekki að ráðum
hennar, skaltu samt
halda þvi leyndu fyrir
henni.
Ljóns
merkið
24. júll —
24. ágúst
Vinátta einhvers, sem
þú metur mikils,
reynist þér illa, þegar
þú þarft á henni að
halda. Vertu vitur i
vali þeirra, sem þú
gerir að trúnaðar-
mönnum þinum. Ef þú
lætur á engu bera,
mun þér berast hjálp
úr óvæntri átt.
Meyjar
merkið
24. ágúst —
23. sept.
Þú færðalvarlega próf
raun viö að glima, ef
þú ferö ekki að ráðum
þeirra, sem þú treyst-
ir. Þú átt á hættu, aö
tilfinningar þinar
hlaupi meö þig i
gönur. Hugsaöu þig
tvisvar um, áður en þú
tekur ákvörðun, sem
hefur mikið að segja
varðandi framtiö
þfna.
\
40 VIKAN 48. TBL.