Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 29.11.1973, Qupperneq 46

Vikan - 29.11.1973, Qupperneq 46
Þáfc nýjasta frá Húsgagnavérzlun Reykjavíkur Hlaðrúmin vinsælu, til i mörgum litum og mismunandi stærðum. Borðstofuborð og stólar úr furu, fáanlegt i mörgum litum. Húsgagnaverzlun Reykjavikur Brautarholti 2 - simi 11940. gera það. Og menn geta líka sigið og hrapað niður. Þjóðfélag nútímans er sérlega opið fyrir slikum breytingum, opnara en fyrri þjóðfélög, er höfðu eldri gerðir stéttaskiptingar. Þrátt fyrir þessa hreyfingu milli stétta fæðast flestir, lifa og deyja i sömu stétt. Og þeir, sem hreyfa sig, ná fæstir eins langt og stundum er haldið. Algengastar eru tiltölulega stuttar hreyfingar eftir mannfélagsstiganum. Við fæðingu erfa menn stétt föðurins. Svo fará menn i skóla og siðan út i lifiö á eigin spýtur. Langstærsti hópurinn heldur áfram að vera i slétt föðurins, en aðrir hækka sig upp. Fæstir eru þeir, sem falla niður. ■ Hin hægfara hreyfing upp stig- ann getur verið með þessum hætti. Sonur þurrabúðarmanns- ins (undirstétt) verður iðnaðar- maður (miðstétt) og eignast son, sem verður ráðuneytisstjóri (yfirstétt). Flutningurinn getur þó oft tekið fleiri kynslóðir en þetta. Mest er hreyfing meðal mið- stéttanna, sem taka við þeim, er klifra upp úr undirstéttunum, og þeim, er hrapa niður úr yfir- stéttunum. Einkum á þetta við um efri hluta miðstéttanna. Þar er mikil togstreita um stöðu i mannfélaginu. Sú togstreita kemur fram i ýmsum myndum, snobbi og áherzlu á stöðutákn eins og bila og hibýli. Stundum er þvi halþið fram, að þjóðfélag nútimans sé stéttlaust, að minnsta kosti á Vesturlöndum. Er þá vitnað til þess, að allir séu jafnir fyrir lögunum. En það eru ekki formlegu reglurnar, sem skipta mestu máli, heldur hinar óskrifuðu reglur og venjur Stéttaskiptingu er fekki hægt aö leggja niður með lögum og reglu- gerðum. Og hún Uer- við beztu heilsu riú á timum, þótt hún þafi á sér losaralegri blæ en stéttas'kipt- ingar fyrri tfma. SÉRKENNI STÉTTANNA Ýmsar leiðir eru notaðar til að finna stétt manna. 1 Bandarikj- unum er algengt, að félags- fræðingarnoti sjö atriði: Peninga, ætterni, staðsetningu ibúðar, dvalarlengd á staðnum, atvinnu, menntun og trú. Auður, eignir og tekjur skipta að sjálfsögðu verulgu máli i peninga- og neyzluþjóðfélagi nútimans. í Bandarikjunum eru þessi atriði talin hafa mest áhrif á stöðu manna i mannfélagsstig- anum. En ekki er vist, að það gildi um önnur vestræn þjóðfélög. Ætterni og fjölskyldutengsli skiptu meira máli fyrr á timum. En þau eru enn i miklu gildi. Menn fæðast altend ennþá inn i stétt föður sins. Og það er enn gott að eiga góða að, þegar út i lifið er komið. Menntun hefur mikil og vax- andi áhrif á stéttarstöðu manna. Langskólamenntun er ein auð- veldasta leiðin til að hlaupa upp mannfélagsstigann. f Banda- rikjunum fá menn ekki lengur að- göngu að yfirstéttunum, nema þeir hafi að minnsta kosti B.A.- próf frá háskóla. Trúarbrögð manna hafa áhrif á stöðu þeirra i Bandaíikjunum, enda rikir þar trúfrelsi, og kirkju- deildir eru margar. Þar sem þjóðkirkjur eru, eins og hér á landi, skipta trúarbrögð litlu máli i stéttaskiptingunni. Svo skiptir atvinnugrein manna lika nokkru máli. Um það gilda ýmsar venjur i ýmsum þjóð- félögum. Sums staðar eh her- mennska i mestu áliti, annars staðar viðskipti, embættis- mennska, stjórnmál, skóla- mennska eða einhver önnur grein. Stjórnmálaskoðun manna hefur á Vesturlöndum ekki veruleg áhrif á stöðu þeirra I mannfélags- stiganum. 1 Sovétrikjunum og fylgirikjum þeirra ræður hins vegar aðild að Flokknum úrslitum um stöðu manna. Þa éru eftir þau tvö atriði, sem nánast eru tengd félagsfræði borga, staðsetning Ibúðar og dvalarlengd á staonum. Sumir hlutar borga eru taldir finni en aðrir. Menn geta komizt I yfirstéttina á heimilisfanginu einu saman. Þess vegna reynir rikisfólk að kaupa sig inn á virðu- legustu götu borgarinnar til þess að afla sér þess álits, sem pening- arnir einir geta ekki veitt. Viða skiptir ekki minna máli að vera fæddur i borginni og helzt að geta rakið ættir sinar þar aftur I timann. Á það minnir sú kerskni, að menn geti ekki gerzt Akur- eyringar, fyrr en i þriðja ættlið. Þótt þessi sjö atriði ráði stétta- skiptingu i Bandarikjunum, er þar með ekki sagt, að þau geri það hér á landi. En upptalningin er samt fróöleg fyrir þá sök, að hún sýnir, hve margvisleg atriði geta haft áhrif á stéttaskiptingu. Auðæfin ein nægja ekki. í fljótu bragði má ætla, að menntun og ætterni skipti hér á landi meira máli en I Banda- ■'í rikjunum, og að peningar og eignir skipti minna máli. MEÐ HVERJUM ER SNÆTT? Stéttirnar eru efnahagslega háðar hver annari og starfa hlið viö hlið. En félagslega eru þær aðskildar. Menn lifa einkalifi sinu innan sinnar stéttar. Menn verja fristundum sinum innan hénnar. Stéttaskipting er ef til vill greinilegust i makavali og vali á borðfélögum. Menn bjóða yfirleitt ekki öðrum heim til miðdegis- verðar en þeim, sem eru á svipuðu þrepi I mannfélags- stiganum. Erlendis sýnir töl- fræðin, að menn kvænast lika yfirleitt innan sinnar stéttar, þrátt fyrir rómantiskar hug- leiðingar, sem ganga I aðra átt. Máltæki: „Segðu mér, hverja þu umgengst, og ég skal segja þér, hver þú ert”, á vel við á þessu sviði. Þaö einkennir lika stéttir, að þær hafa tilhneigingu til að einoka þau störf, sem falla undir svið þeirra. Einn forstjóri veit, að laus deildarstjórastaða er hjá öðrum forstjóra, sem hann þekkir, og mælir með syni sinum I hana. Hinn á erfitt með að neita þeirrr ósk. Hins vegar mundi sami faðir liklega ekki geta' komið syni sínum að hjá slökkvi- liðinu. Þar ráða annarrar stéttar menn og einoka störfin á sama hátt. Þessi starfaeinokun stétta gildir I öllum þjóðfélagsstiganum og dregur úr hreyfingu manna milli stétta. Stéttasamheldnin kemur þannig fram i hjónaböndum, vinskap og starfaeinokun. Hin frjálsa samkeppni er vissulega til og skiptir verulegu máli. En stéttasamheldnin takmarkar hana. Þaðan koma kunnings- skaparsjónarmiðin, sem menn kvarta stundum um. ISLENZK - STÉTTASKIPTING I borgarlifi Islendinga er stéttaskipting ekki áberandi, þótt finna megi merki hennar. Hún er ekki eins áþreifanleg hér og viða erlendis. Svo virðist t.d., þótt engar tölur séu til um það, sem hjónabönd á tslandi séu ekki eins stéttvis og alnfjpnnt er erlendis. Þess verður ekki heldur vart, að yfirstétt búi hér i aðskildum hverfum á sama hátt og tiðkast erlendis. t Reykjavik eru vissar götur taldar finni en ‘aðrar. En þær götur eru á við og dreif um borgina og mynda ekki heil hverfi. Einnig eru sumar götur taldar ófinni en aðrar, en þær eru sömuleiðis á -við og dreif um borgina án þess að mynda hverfi. Ennfremur er ljóst að enginn verður ýfirstettar fyrir það eitt að búa við Vesturbrún eða Ægissiðu. Aöskilnaður stéttanna er þannig, landfærðilega séð, langt 46 VIKAN 48. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.