Vikan - 22.05.1974, Page 8
Þegar Roger Daltrey sendi frá
sér sólóalbum i fyrrasumar,
komu mörg nöfnin á umslaginu ó-
kunnuglega fyrir sjónir. Roger
fór alveg ótroönar slóöir i laga-
vali, þ.e.a.s. hann fékk óþekkta
lagasmiöi til þess aö semja fyrir
sig. Einn þeirra bar nafniö Leo
Sayer. Eftir aö platan hans Rog-
ers var komin á markaö, vöktu
lagasmiöarnar veröskuldaöa at-
hygli og augu manna beindust aö
lagasmiöunum sjálfum. Kom þá i
ljós, aö hljómplötufyrirtæki eitt
átti þegar hljóöritaða plötu meö
Leo Sayer og ársgamla I þokka-
bót. En hún var þegar gefin út og
hlaut nafniö „Silverbird”. Dave
Courtney nokkur hafði samiö
töluvert meö Leo Sayer, en Dave
Courtney var aöeins nafn fyrir
nokkrum mánuöum, nákvæmlega
eins og Leo Sayer. Enginn kann-
aöist viö nöfnin. Nú eru þau á
hvers manns vörum.
Leo Sayer hefur valiö sér hlut-
verk trúösins. Þegar hann kemur
fram opinberlega er hann klædd-
ur sem trúöur og málaöur eftir
þvi. Alhvitur i framan meö til-
heyrandi rauöum deplum i kinn-
um og svarta málningu kringum
augun. Þannig kemur hann fyrir
sjónir almennings. Myndirnar
tvær hér i opnunni sýna greini-
lega tvær ólikar persónur. Um
leiö og hann hefur klæðst trúös-
búningnum, er hann annar maö-
ur. En hver er forsaga þessa
trúös? Leo Sayer haföi reynt
margar leiöir til aö ná takmarki
sinu. Hann áleit sjálfan sig lista-
mann, en var ekki viss um, I
hvernig formi hann ætti aö tjá sig.
Hann byrjaöi sem rithöfundur.
Hann skrifaöi skáldsögu, en meö
litlum árangri. Þá tók hann til við
aö mála, en ekkert gekk. Þarnæst
byrjaöi hann að skrifa texta og
semja lög, og þá fór gæfuhjóliö
hægt og hægt aö snúast.
Áhrifavaldar Leo Sayer teljast
vera þeir félagar Leadbelly og
Captain Beefheart, ef einhver
skildi kannast viö nöfnin. Þessir
tveir eiga töluvert sameiginlegt
með blues og hinni svokölluöu
„gospell” tónlist eöa guöspjalla
tónlist. Dave Courtney, félagi
hans, sækir hins vegar áhrif sin til
Bltlanna.Beach Boys og Randy
Newmann. Þeir koma úr sitt
hvorum garöinum, en tekst ágæt-
lega aö vinna saman. Þeir semja
tónlist, sem sker sig úr. L.P. plat-
8 VIKAN 21. TBL.