Vikan - 22.05.1974, Page 22
1.
Myndskreyttur bómullarbolur og Denim-
buxur meö baggysnifti frá IN WEAR.
2.
Hómullarblússa frá IN WEAR. Flauelsbuxur
frá EVU.
3.
Síftur velourkjóil frá ANNE GIERMAN
DESIGN.
4.
I.éttur sólkjóll úr bómull frá IN WEAR.
Klossarnir frá DRANELLA
Fyrstu verðlaun: Mallorkaferð með
SUNNU.
Evelyn West er 19 ára og á heima á
Borgarholtsbraut 62 i Kópavogi. Þar til fyrir
tveimur árum átti hún heima á Englandi, en
þar kynntist hún unnusta sinum, Guðmundi
Grimssyni, sem stundaði þar nám. Hún býr
nú með honum hjá foreldrum hans, og eiga
þau litla stúlku, sem fæddist 11. nóvember
s.l.
Aður en Evelyn kom til tslands starfaði
hún við barnagæzlu i heimalandi sinu, milli
þess sem hún svalaði ferðaþránni. Það gat
hún á fremur ódýran hátt vegna starfa móð-
ur sinnar hjá B.E.A. flugfélaginu brezka.
Hún kveðst hafa fariö viða, m.a. til Spánar.
Eitt sinn eyddi hún leyfi á eynni Menorca, en
til Mallorca hefur hún enn ekki komið.
Fyrsta áriö sitt á tslandi vann Evelyn i
verksmiðju íspan.hf. Siðar meir langar hana
til aö læra einkaritarastörf, en um. nokkurt
skeið ætlar hún þó að helga sig óskipta
heimili og barni. Þau Guðmundur eru að
byggja litla Ibúð i sambýlishúsi I Kópavogi og
vonast til að geta stofnsett þar eigið heimili
fyrir árslok.
1 fristundum hefur Evelyn gaman af að
dansa eöa sjá kvikmyndir, og svo segist hún
prjóna mikið. Einnig hefur hún yndi af að
ferðast, bæöi utan lands og innan. Hún er
mjög hrifin af landinu, en vegirnir okkar fá
ekki hennar beztu meðmæli. Þó ætlar hún aö
ferðast eitthvað um landið I sumar.
Evelyn kveðst ekki munu setja það fyrir
sig, þó hún þurfti að skipta um nafn, ef hún
fær Islenzkan rikisborgararétt. Hún hefur
m.a.s. tilbúið nafn: Eva skal það vera.
— Mér likár mjög vel hér á Islandi, segir
hún. íslendingar eru vingjarnlegir og þægi-
legir I umgengni, og ég hef m.a.s. ekkert út á
veðráttuna að setja.
22 VIKAN 21. TBL