Vikan - 22.05.1974, Side 24
'r •
Pottaréttir
Pottaréttir hæfa öllum tækifær-
um. Rúmhelgum sem helgum
dögum og hvort heldur sem flóð
eða fjara er i peningabuddunni.
Fínn pottaréttur (fyrir 6)
1 1/2 kg. frampartur, t.d. hrein-
dýrakjöt
1 msk. smjör eða smjörliki
1 msk. olia
salt, hvitur pipar
paprika
2 msk. hveiti
2 msk. chilisósa
1 1/2 dl. kjötsoð
3 dl. rauðvin
100 gr. nýir sveppir (eða niður-
soðnir)
Skreyting eftir smekk:
1) ca. 100 gr. grænar og svartar
olifur, 3 tómatar
2) 3 sneiðar ananas
1/2 rauö paprika
græn vinber og valhnetukjarn-
ar
Skerið kjötið frá beinunum i
fremur stóra bita. Sjóðið kraft af
beinunum. Brúnið kjötið siðan i
skjör/oliublöndu og setjið i eld-
fast mót. Kryddið og hrærið vel i.
Þynnið siðan með kraftinu, chili-
sósunni og vininu og látið
krauma, þar til kjötið er meyrt.
Brúnið sveppina og setjið saman
við. Skreytið siðan réttinn, þegar
, hann er tilbúinn, en látið hann
krauma um stund með skreyting-
unni svo hún hitni.
Pólskur réttur með lifur og
nýrum
1 svinanýra
300 gr. flesk
200 gr. nautalifur
8 litlir laukar
1 selleri
smjör eða smjörliki
salt, pipar
2 msk. tómatpuré
2 dl. hvitvin (eða 1 1/2 dl. og safi
úr 1/2 sitrónu)
sósulitur
8 hanastélspylsur
Setjið nýrað i pott með köldu, létt-
söltu vatni og látið suðuna koma
upp. Þerrið vel. Skeriö siðan
nýra, flesk, lifur, selleri og lauk-
uripn látinn vera heill. Allt er
brúnað í potti. Sett i lögum i pott,
kryddað og tómatpúre sett i vinið
og soö af pönnunni. Allt látið
sjóða undir loki, þar til orðið er
meyrt. Kryddið ef þarf meira og
dekkið með sósulit. Aður en borið
er fram eru 8 litlar pylsur brún-
aðar á pönnu og settar saman við.
Beriö fram með súrkáli, sinnepi
og soðnum kartöflum.
Fleskpottur
150 gr. flesk
2—3 gulrætur
1/4 af meðalstóru kálhöfði
4—5 kartöflur
1/4 af meðalstóru sellerii
1 púrra
2 laukar
hvitur pipar, allrahanda
ca. 2 msk. tómatkraftur )puré)
salt,
1 1/2 ltr. kjötsoð
steinselja, klippt.
Flesk steikt við vægan hita, svo
það mesta af feitinni náist út úr
þvi. Setjið siðan saman við skor-
inn lauk og gulrætur, hráa kart-
öfluteninga og selleriteninga og
látið krauma i feitinni án þess að
brúnast. Setjið siðan kál niður-
sneitt og púrru saman við, tómat-
kraft og krydd. Hellið siðan kjöt-(
soði á þannig, að það næstum
hylji. Látið sjóða við vægan hita i
ca. 20 minútur. Þetta verður
meðalþykk súpa og pottamatur,
en allt i einum potti.