Vikan - 22.05.1974, Síða 41
slnar, urðu margir hverjir að sjá
á bak öðrum ættingjum slnum
llká. Sumir misstu börn sin i
slysinu, sumir misstu mæður
sinar, sumir systur. Einn maður
missti þrettán ættingja I slysinu
og annar missti tólf.
„Það væri of mikið að segja, að
fólk hafi orðið að byrja nýtt lif hér
I þorpinu”, segir Márgaret
Tucker. ,,En það hefur orðið að
aðlaga lif sitt þessum hörmulegu
aöstæðum.”
„Það eru öll smáatriðin, sem
fólk varla tók eftir að gerðust
áður, sem eru hætt að vera hluti
daglegs lifs,” bætir Shirley
Vincent við. „Fólkið, sem fórst,
var svo margs konar, sumir voru
framámenn i félagssamtökum og
bæjarlifinu. Mér bregður enn illa
við, þegar ég geng um Axbridge
og 'nem ekki staðar til þess 'að
hlusta á gamanyrði Urchs, sem
rak töskubúðina. Hann var svo;
skemmtilegur og léttur i lund.
„Það varð endalaust starf.”
„Þegar slysið varð, hafði ég of
mörgu að sinna til að mér yrði i
rauninni fullkomlega ljóst, hvað
hafði gerzt. Ég hefði farið sjálf i
ferðina, hefði ég ekki heldur
viljað eyða peningunum i helgar-
ferð með manninum minum og
börnunum. Ein kvennanna hafði
ekki átt fridag árum saman.
Þe.tta var stór dagur fyrir hana og
hún var búin að hlakka til hans
mánuðum saman.”
„Mig langaði mest til að að-
stoða við barnagæzluna og það
varð endalaust starf. Ég varð
ekki vör við, að sumarið leið. Ég
vaknaði einn daginn um haustið
og vissi að sumarið var liðið, en
ég hafði ekki orðið þess vör.”
Einhvern veginn hefur fólkinu
verið gefið hugrekki til að komast
gegnum þrekraunirnar. Þeim,
sem áttu ung börn, hefur tekizt að
friða hugann nokkuð við umönnun
þeirra.
Eldra fólki hefur veitzt öllu
erfiðara að koma lifi sinu i eðli-
legt horf. „Hvað hef ég til að lifa
fyrir?” spurði maður á sjötugs
aldri, sem missti bæði konu sina
og dóttur. „Hvað getur komið i
staöinn fyrir 30 ára hjónaband?”
Þeir, sem liföu slysið af, liía
með skelfinguna og hryllinginn I
brjósti sér. Jafnvel kemur fyrir,
að þeir ásaki sjálfa sig fyrir að
vera á lifi: „Hvers vegna lifði ég
slysið af, en ekki hún?”
„Hefðum við skipt um sæti,
væri hún á lifi núna.”
David Besley getur ekki gleymt
þvi, þegar flugvélin hrapaði til
jarðar og trjátopparnir brutu
rúðurnar á vélinni. Ekki heldur,
þegár hann skreið milli likanna af
ferðafélögum sinum. Við eigum
erfitt með að imynda okkur,
hvernig slikt getur gerzt. En
David Besley minnist þessa
atburðar meðstöðugum hryllingi.
Pills á sér huggun til að hjálpa
sér til að sofna á kvöldin. Honum
vár veittur silfurskjöldur fyrir
hetjudáðina, sem hann drýgði,
þegar hann dró móður sina og
nokkra aðra, sem komust lifs af,
út úr brakinu, áður en hann gekk
tólf milna veg i snjónum til að
sækja hjálp.
Frú Ivy Besley móðir hans,
dvaldist i fimm vikur á sjúkra-
húsi i Sviss og fer nú daglega á
sjúkrahús til að þjálfa fótinn.
Heimili hennar, eitt elzta húsið i
Axbridge, mun brátt standa autt.
Hún segist finna hjá sér þörf til að
skipta um umhverfi. „Við höfum
ákveðið að flytja — ekki of langt
burtu, en þessu húsi eru of
margar minningar tengdar.”
Frú Besley er hlýleg og glaðleg
kona, sem vann einlæga aðdáun
alls starfsliðs sjúkrahússins i
Sviss fyrir hve mikið hugrekki
hún sýndi og hve mikla alúð hún
lagði i að hvetja aðra slasaða og
hughreysta á sjúkrahúsinu.
Þegar flugvélin hrapaði, missti
sextán ára skólastúlka að nafni
Brenda meðvitund, en áður en
það varð, sá hún móður sina og
frænku liggja við hlið sér. Hún lá
föst og bjargarvana i brakinu,
unz björgunarmenn fundu hana.
Elsta og reyndasta málningavöruverzlun landsins i
nýjum húsakynnum aö Grensásvegi II — simi
83500. Erum einnigá gamla staönum Bankastræti 7
simi 11496.
Vatnsbera-
merkið
Vogar-
merkið
24. sept. —
23. okt.
Þaö gætir nokkurs
kala I samskiptum
þlnum við einhverja
nána ættingja. Sökin
er þln og þú skalt
kippa þessu i liðinn hið
bráðasta. Eðlileg
samskipti fólks, sem
þarf að umgangast
mikið, eru auðvitað
nauðsynleg. Sýndu
meiri alúð og vin-
gjarnleika.
Dreka-
merkið
24. okt. —
23. nóv.
Það kann að vera, að
fyrstu dagar vikunnar
verði dálltið erfiðir, en
ef þú leggur þig allan
fram og gerir allt sem
þú getur til að sigrast
á þeim, þá spá stjörn-
urnar góðum árangri.
Þú skalt ekki óttast að
framkvæma nytar
hugmyndir, þvi aö þær
veröa þér til góða.
Bogmanns-
merkið
23. nóv. —
21. des.
Þú hefur verið alltof
eirðarlaus og léttlynd-
ur I öllu, sem þú hefur
komið nálægt i seinni
tið. Reyndu að bæta
þetta og taka hlutina
réttum tökum. Lifið er
ekkert spaug. Alvaran
biður jafnan við næsta
íeiti.
Geitar-
merkið
22. des. —
20. jan.
Blómleg framtlð virö-
ist bfða þin. Margir
munu liösinna þér,
þegar þú þarft á þvi aö
tialda, meira að segja
menn, sem þú vissir
alls ekki, að væru þér
hliðhollir. Þú skalt
forðast deilur út af
smámunum. Þær
gætu eyöilagt allt
saman.
21. jan. —
19. febr.
Stjörnurnar segja, aö
þessi vika verði mjög
hagstæð að öllu leyti.
Þér er þess vegna ó-
hætt að taka svolitið
dirfskufullar ákvarð-
anir. Ahættan borgar
sig.
Fiska-
merkið
20. febr. —
20. marz
Ef þú getur komið i
veg fyrir aö ergja þig
út af smámunum, þá
er útlit fyrir, að þetta
verði mjög hagstæð
vika. Föstudagurinn
mun einkum veröa þér
til heilla.
Stiör
mspa
21. TBL. VIKAN 41