Vikan - 11.09.1974, Qupperneq 5
'er. Stundum er svolltiö erfitt aö
taka nýja tónlist til flutnings, þvi
að hún krefst sérstaklega góörar
tónheyrnar. Ég valdi fimm
limrur eftir Þorstein Valdi-
marsson og geröi viö þær lög,
áöur en viö fórum i Evrópu-
feröina. Þegar ég var aö byrja að
æfa þetta meö kórnum, kom fyrir
að kórfélagarnir sögöu: Þetta er
ekkert lag. En eftir þvi sem leið á
æfingarnar gekk þetta betur, og
ég er alveg hissa á : hve vel
limrunum hefur verið tekið.
— Mér dettur i hug út af
limrunum, að fólk er mjög vana-
fast i tónlist — kannski enn vana-
fastara en i öðrum listgreinum.
Fólk býr i mjög nýtizkulegu
húsnæði — sum eldhúsin eru
þannig úr garði gerð, að við
liggur að sérstakra leiðbeininga
sé þörf til að vita hvaða takka á
að snúa. En mjög fáir leggja á sig
að fylgjast með nútimatónlist.
Þeir hlusta á Bach, Beethoven og
Brahms, sem er gott út af fyrir
sig, en fordæma svo kannski allar
tilraunir til nýrra aðferöa i
tónlistinni, án þess að kynna sér
Mér finnst ég verða
að leggja mig allan
fram til að tónlistin
sé flutt eins vel og
fallega og unnt er.
Hún er svo þýðing-
armikil. Hvemig
væri heimurinn án
tónlistar?
Fjórða sinfónia Tchaikovskys
sett á fóninn.
til hlitar, hvort um vönduö vinnu-
brögö og góöa tónlist er aö ræöa
eða ekki.
— En hvað hefuröu aö segja
um poppiö?
— Ég held, aö margar góöar
popphljómsveitir séu starfandi,
þó aö þvi fari fjarri, aö allt popp
sé gott. í sumum popp-
hljómsveitum starfa menn, sem
fylgjast með timanum, og mér
finnst gaman aöfinna, aö þeir eru
að reyna aö gera eitthvað af viti.
Auðvitaö nota þeir önnur vinnu-
brögö en notuö eru i klassiskri
tónlist, en klassisk tónlist væri
ekki mikils viröi, ef hún þyldi þaö
ekki.
— Hefuröu nokkurn tima séð
eftir þvi að hafa lagt út á
tónlistarbrautina?
— Nei, ég gæti ekki hugsað mér
neitt annaö starf. En ef svo færi,
að ég liti eingöngu á tónlistina
sem brauöstrit, myndi ég hætta á
stundinni, Mér finnst ég veröa aö
leggja mig -allan fram til aö
tónlistin sé flutt eins vel og
fallega og unnt er. Hún er
þýöingarmikil. Hvernig væri
heimurinn án tónlistar? Tónlistin
getur hjálpaö svo mikiö. Sértu
þreyttur eöa i slæmu skapi
geturöu endurnærzt viö aö hlusta
á tónlist, sem hæfir skapinu. Ef
þú hlustar þá á þunga tónlist liður
þér enn verr á efti”, en hlustiröu á
létta og upplífgandi tönlist
gleymist þreytan og skapiö
batnar.
Tról.
37. TBL. VIKAN 5