Vikan


Vikan - 11.09.1974, Blaðsíða 6

Vikan - 11.09.1974, Blaðsíða 6
Blómabúö Eriks Benngs var upp- haflega hanzkaverzlun, en er nú þekkt fyrir stórkostlega blóm- vendi slna. Þaö eru engir venju- legir vendir, heldur eru þeir úr þurrkuðum blómum frá Fjóni. ■ ■ í Krónprinsgötu er ein af elztu búðum Evrópu, a.m.k. sú eina, sem verzlar eingöngu meö te. Tegundirnar, sem þar er boöið upp á, skipta hundruðum. i Boutique Viveka er hægt að kaupa handunnar danskar brúður fyrir 11-22 krónur — danskar að sjálfsögðu. r ■ ■ Hafið þið hugsað ykkur að skreppa til Kaupmannahafnar á næstunni? Þið skul- uð ekki gera því skóna að geta ráfað þar um hugsunarlaust i heilsubætandi iðju- leysi. Til þess eru aðrir staðir betri. En þar sem ýmiss konar framandi áhrif geta einnig endurnært þreyttar taugar, þá býður Kaupmannahöfn upp á marga möguleika til að njóta hressandi og f jör- legs sumarauka. Þar má jafnvel finna ánægju i þvi að höndla þ.e.a.s. ef maður ratar i réttu búðirnar. 1 Kaupmannahöfn er TIvoli og Dyrehavsbakken fyrir þá, sem jafnvel i frium sinum geta ekki slitiö sig frá hringiðu lifsins, En þar má einnig finna hljóð- láta gleði fyrir þá, sem t.d. kunna að meta frumlegt og smellið, gamansamt og heillandi verzlun- arlif. Við getum sagt i eitt skipti fyrir öll, að Kaupmannahöfn er ekki ódýr verzlunarborg. En ódýr og ekki ódýr — það eru reyndar ekki ailtaf verðmiðarnir, sem skera úr um það. Það er lika til nokkuð, sem heitir gleðin af að eignast hlutina, ánægja af skyndikaupum, minningin um hvernig hlutanna var aflað, stað- urinn og kringumstæðurnar. Við ætlum að fara með ykkur i nokkr- ar búðir, sem bera með sér sér- stakan blæ og andrúmsloft, en eru það miðsvæðis, að við getum litið inn I þær allar á tiltölulega stutt- um tima. An efa eru álika heill- andi verzlanir einnig til I öðrum hverfum, en við ætlum ekki langt frá miðdepli stórborgarinnar og byrjum búðarrölt okkar á Kong- ens Nytorv. Þið þurfið áreiðan- lega ekki á leiðsögumanni aö halda til að komast þangað. Ostabarinn er I Köbmagergade 32, og þar má fá ljúffenga osta hvaðanæva úr heiminum. Mmmm! 6 VIKAN 37. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.