Vikan - 11.09.1974, Side 18
KYN BARNA
Tveir visindamannahópar — annar i
Þýzkalandi og hinn i Bandaríkjunum —
hafa fundið upp aðferð til þess að ráða
kynferði barna. Einn bandarisku lækn-
anna, Charlotte Hedrick, segir hér frá
rannsóknunum.
Ef þú fengir sem foreldri aö
velja kynferði barnsins þins,
hvort myndir þú þá velja stúlku
eða dreng? 1 Austurlöndum og á
meðal Araba yrði valiö vafalaust
drengur, en þegar við könnuðum
viðhorf timmhundruð hjóna, urð-
um viö hissa á, aö hlutfallið skyldi
veröa f jórir drengir á móti hverri
einni stúlku.
Þaö er staðreynd, að Arabar og"
fleiri Austurlandaþjóðir lita á
stúlkubörn sem byrði og óska sér
þar af leiðandi sveinbarna. En
flestir munu álita, að stúlkubörn
séu jafn velkomin i Evrópu og
Bandarikjunum. Þess vegna hlýt-
ur undrun okkar að vera auðskil-
in.
Könnun þessi var gerð árið 1971
I tengslum við rannsóknir okkar á
vali á kynferði barna. Við rann-
sóknir okkar var nauðsynlegt að
fá til samstarfs hjón, sem óskuðu
eftir að eginast barn og voru fús
til að vinna með okkur. Tilgangur
tilraunanna var að kanna, hvort
unnt væri að ráða kynferði barna.
Fræöilega vorum við sannfærð
um, að það væri unnt I 70 til 80%
tilfella. Og vitaskuld vorum við á-
fjáð I að vita, hvort fræðikenning-
in reyndist rétt.
Visindamennirnir, sem unnu að
rannsókninni, voru fjórir læknar
auk min, og við vorum ekki i nein-
um vandræöum með að verða
okkur úti um það sæði, sem við
þörfnuöumst til rannsóknanna.
Við gengum út frá þeirri stað-
reynd, aö það er sæðisfruman,
sem ræður kynferði barnsins.
Rannsóknir okkar urðu að fara
fram með leynd, svo að við bök-
uðum okkur ekki reiði sértrúar-
safnaða og annarra hópa, sem
fordæma allar tilraunir sem þess-
ar. Og þrátt fyrir allt verður að
viðurkenna það, að náttúran sjálf
hefur séð um visst jafnvægi I kyn-
ferði fæddra barna, og það var
aldrei tilgangur okkar að raska
þessu jafnvægi.
Dr. med. Chariotte Hedrick.
Heilbrigð og hraust börn.
Við vorum I stöðugu sambandi
við aðra vísindamenn, sem beittu
sömu aðferðum og við, og einkum
þó Scheringrannsóknarstofuna I
Berlin. Við skiptumst á skoðunum
um reynslu okkar frá degi til
dags. í starfi okkar áttum við
ekki einungis I höggi við sértrúar-
söfnuði, heldur einnig stóran
hluta læknisfræðivisindamanna,
sem álitu, aö tilraunir okkar gætu
haft I för með sér mikla ógæfu
fyrir mannkynið.
í desember 1972 höfðum við náð
áttatiu prósent öryggi. Og þá á-
kváðum við aö hefja leit að hjón-
um, sem væru fús til að taka þátt I
tilrauninni. Það reyndist auð-
veldara en við höfðum búizt við,
þó að við tryggðum okkur skrif-
18 VIKAN 37. TBL.