Vikan - 11.09.1974, Page 27
Meftal þess, sem CIA aöhafðist I
Vfctnam, var að reka málaliða-
her meö mönnum af Numætt-
flokknum, sem fengu rlkulega
umbunað með flugförmum af
vændiskonum og dósabjór.
CIAsérfræðingar unnu nákvæma
sálfræðilega skýrslu um Daniel
Ellsberg, sem kom hinum um-
ræddu Pentagonskjölum á fram-
færi viö fjölmiöla.
indreki annast CIAlæknir hann og
þurfi erindrekinn aö gangast und-
ir uppskurð, stendur samstarfs-
maöur hans viö sjúkrabeð hans
og gætir þess, að hann rjúfi ekki
þagnarheitið meðan hann er und-
ir áhrifum svefn- og deyfilyfja.
CIA er sérstaklega skilnings-
rik, þegar um það er aö ræða, aö
erindrekarnir fá taugaáfall eins
og kom fyrir Richard Helms, þeg-
ar hann var yfirmaöur sérstakrar
leynideildar CIA. Sálfræöileg
vandamál skilja ekki eftir sig
nein ör,hvað varöar starf CIAer-
indreka, enda annast CIAgeð-
læknar slika sjúklinga.
CIA er einnig umburðarlynd i
kynferðismálum. Kynferöisleg
sambönd erindrekanna og einka-
ritaranna eru tlöari I Langley en
viðast hvar annars staðar I opin-
berum stofnunum Bandarlkj-
anna. En kynvilla er þó strang-
lega bönnuö. CIAsjúkragæzlunni I
Vletnam, var fyrirskipaö að I-
þyngja ekki erindrekum, sem
fengið höfðu kynsjúkdóma, með
spurningum.
CIA sér I mörgu tilliti einnig um
einkallf erindreka sinna. Sérstök
ferðaskrifstofa a-nnast skipulagn-
ingu sumarleyfisferða erindrek-
anna og fjölskyldu þeirra og
feröalaga til heilsubótar. Og tóm-
stundaklúbbur sér um aö nóg sé
af iþróttaiðkunum, menningar-
Blökkumaðurinn Martin Luther
King, sem myrtur var árið 1968,
vissi ekki, að CIA tölva vann ævi-
sögu hans fyrir Johnson forseta.
og listsýningum og karatenám-
skeiðum á boðstólum fyrir erind-
reka. Og CIA rekur lika verzlun
fyrir þá.
Þó að erindreki láti af störfum
fær hann ekki frið fyrir leyniþjón-
ustunni. Það var Richard Helms,
sem átti hugmyndina að þvl að
greiða fyrrverandi starfsmönn-
um vel fyrir að skrifa endurminn-
ingar slnar og veita þeim aðstöðu
til þess. Með þvi losna þeir við á-
hyggjurnar, sem samvizkan kann
aö valda þeim, og dyggilega er
séö um það, að engin bókaútgáfa
komizt I handritin.
Það er ekki undarlegt, að CIA-
erindrekar skuli elska leyniþjón-
ustuna. Strangur aginn hlýtur að
skapa virðingu fyrir sér og allur
aðbúnaðurinn gerir erindrekana
háöa CIA. Hugmyndafræðin gerir
það aö verkum, aö erindrekum
finnst þeir gegna óviöjafnanlega
þýðingarmiklu starfi. Framar
ööru er það þó vald CIA, sem hef-
ur áhrif á starfsfólkiö.
CIAerindrekarnir eru hreyknir
af þvi, að þeirra eigin visinda-
menn og verkfræðingar skuli hafa
hannað og smiðað njósnaflugvél-
ina U-2, sem árum saman kann-
aði atóm- og eldflaugatækni So-
vétanna og Kinverja. Nú annast
þessar njósnir „himinnjósnar-
ar”, sem CIAverkfræðingar eiga
mikinn þátt i að framleiöa.
Og hver annar en CIA væri fær
um að reka styrjöld gegn komm-
únistum árum saman með 30.000
manna málaliöaher eins og CIA
hefur gert i Laos? Það fær ekki á
samvizku erindreka bandarisku
leyniþjónustunnar, að CIAflug-
vélar skuli hafa veitt laosiska
fjallakynþættinum Meos — en af
honum eru flestir málaliöarnir —
dyggilega aðstoð við að koma
ópiumframleiöslu sinni á ólög-
lega markaði. Málaliðunum af
kinverska landamæraþjóðflokkn-
um Num, sem CIA beitti fyrir sig
i átökum við Norður-Víetnama,
var einnig haldið við efnið með
sérstakri aðferð. CIA flaug með
birgðirvændiskvenna og dósabjórs
til þeirra á vígvöllinn, svo að
aldrei var skortur á slikum varn-
ingi.
Umfram allt annað er það vitn-
eskjan um hið viðfeðma vald CIA,
sem styrkir erindreka leyniþjón-
ustunnar i starfi þeirra. 1 Langley
hefur CIA yfir að ráða fullkomn-
ustu tölvumiðstöð heimsins, sem
IBMauðhringurinn sérsmiöaði
fyrir leyniþjónustuna. Auk fjölda
annarra upplýsinga, sem þar eru
unnar i tölvum, er þar rannsak-
aður bakgrunnur þúsunda
manna, sem afskipti hafa af
stjórnmálum, bæði innlendra og
erlendra. Þannig var einkalif
Martins Luthers King rannsakað
nákvæmlega og tölvuunnið i
Langley að undirlagi Johnsons
forseta. Og Nixon forseti fékk
CIAsérfræðingum það verkefni
að gera itarlega sálfræöilega
skýrslu um Daniel Ellsberg and-
stæðing Vietnamstriösins.
CIA heldur vitneskju sinni
leyndri fyrir bandariska þinginu,
sem þó á að hafa stjórnmálalegt
eftirlit meö leyniþjónustunni. ,Og
fæstir þingmannanna hafa hug-
mynd um aðgerðir CIA, enda
hafa fáir þeirra kjark til að reyna
að komast á snoöir um starfsem-
ina.
CIA telur sig ekki ábyrga gagn-
vart neinum nema forseta
Bandarikjanna. Sumir þeirra
hafa verið tortryggnir i garð CIA
— eins og John Kennedy og Harry
Truman, en hingað til hefur eng-
inn þeirra getað stillt sig um að
beita CIA fyrir sig, þegar um var
að ræða að ná stjórnmálalegum
markmiðum erlendis og þá hefur
engu máli skipt, þó að beitt væri
ólöglegum og oftsinnis ærið ó-
þverralegum aðferðum. Og þaö
er ekki fyrst meö tilkomu
Richards Nixon I forsetaembætti,
að tengslin milli CIA og forseta-
embættisins fengu á sig svipmót
samsæris.
I næstu grein um CIA veröur
einkum fjallað um afskipti leyni-
þjónustunnar af styrjöldinni i
Vietnam.
37. TBL. VIKAN 27