Vikan


Vikan - 11.09.1974, Side 30

Vikan - 11.09.1974, Side 30
dvaldist til morguns hjá ástkonu sinni. Smám saman slökuöu þau á gætni sinni gagnvart umheimin- um, og brátt vissu allir i bænum um samband þeirra — allir nema sjálfur eiginmaðurinn. En þar kom, að vinur Hughs Dyers hvislaði þvi að honum, að konan hans tæki á móti heim- sóknum, meðan hann sjálfur ynni fyrir heimilinu. Og kvöld nokkurt stakk hann af af vaktinpi, læddist inn á sitt eigiö heimili og kom aö þeim Carol og Eric hálfklæddum á leið i rúmið. Dyer var miklu stærri og kröft- ugri maður en Eric. Þegar hann réöst til atlögu, reyndi Carol að ganga á milli, en eiginmaður hennar baröi hana grimmdarlega frá sér. Þegar Dyer öskraði, að hann skyldi drepa bæði hana og barnið þeirra, þaut hún inn i barnaherbergið og sótti litlu stúlkuna. Þegar hún kom aftur, voru mennirnir tveir i hörku- slagsmálum i herberginu. Eric hlaut að biöa lægri hlut. Honum tókst að komast undan augnablik og hljóp til eldhússins, þar sem hann fann eldhússveðju til að verja sig með. Þegar Dyer birtist i dyrunum, kastaði Eric hnifnum. Dyer beygði sig, og hnlfurinn þaut yfir hann og beint i brjóstið á litlu stúlkunni, sem lá i örmum móður sinnar, en hún hafði elt mann sinn. Mennirnir tveir störðu á Carol, sem veinaði og grét. Dyer tók barnið og sagði : — Hún er dáin! An þess að Dyer eða Eric fengju áttaö sig, tók Carol hnifinn úr brjósti barns sins og stakk hon- um af afli milli rifja sér. Hún féll á grúfu við’fætur þeirra. Eric stóð sem lamaður, en Dyer tók undir sig stökk upp á loft, og innan stundar heyrði Eric skot að ofan. Eric Reardon fór beinustu leið til lögreglunnar og skýrði hrein- skilnislega frá málavöxtum. Þeg- ar lögreglan kom til heimilis Dyershjónanna, fann hún þau öll þrjú látin. Dyer hafði skotið sig I höfuðiö. Eric játaði að hafa kast- aö hnifnum, sem hæfði barniö, en hélt fast við, að það heföi verið slys. Samt sem áður var hann ákærður fyrir morð. Ákærandinn staðhæfði, aö það skipti ekki máli, hvort hnifnum heföi verið kastað i þeim tilgangi aö drepa einhvern eða ekki. Mergurinn málsins væri sá, að barnið var drepiö, og þaö var or- sök til dauða foreldra þess. Eric Reardon var fundinn sek- ur um morð og dæmdur i lifstiðar fangelsi. Móðir hans gamla kom til dóttur sinnar og bjó hjá okkur. Hún var næstum blind og far- lama. Ég skrifaði bréfin til Erics fyrir hana og las henni svarbréf hans. Það var ljóst, að hann var niðurbrotinn maður, og þaö, sem lá þyngst á honum, var aö hafa orðiö valdur að dauða litils barns. Þegar ég heimsótti hann I fang- elsiö, sagði hann við mig: — Ef ég aðeins gæti á einhvern hátt bætt fyrir þaö, sem ég hef brotið af mér. Þá liði mér kannski ekki svona illa. Ég skyldi gjarna láta líf mitt, ef ég gæti á þann hátt af- plánaö syndir minar. Ég heföi aldrei litið viö Carol, ef mér hefði nokkurn tima getað dottið I hug, hvaða afleiðingar það hafði. Nú er hún dáin, barnið hennar er dá- ið, maðurinn hennar er dáinn, og mér finnst ég eiga sök á dauöa þeirra allra. Ó, guð, ef ég bara gæti fært timann aftur á bak! Hann var náðaður áriö 1973. Fyrsta, sem hann gerði, var að heimsækja gröf móður sinnar. Svo keypti hann sér litinn kofa spölkorn frá bænum og settist þar að. Ég heimsótti hann stundum, en hann vildi sjaldan koma til okkar. Hann var gjörsamlega niðurbrotinn andlega. Þegar presturinn okkar heimsótti hann, hrópaöi hann einu sinni: — Hvers vegna lét Guð saklaust barn deyja? Hvers vegna lét hann þaö deyja fyrir minni hendi? Ef Guö er kærleikur, hvers vegna tók hann þá lif þessarar vesalings litlu stúlku? Fólk lét Eric afskiptalausan. Þá sjaldan hann kom til bæjarins, sýndu allir honum tillitssemi og vinsemd. Ollum fannst hann hafa tekið út sin syndagjöld. En það fannst honum ekki sjálfum. Þegar storminn haföi lægt næsta morgun, fórum viö nokkrir út að klettunum til að hyggja aö Eric. Við þurftum ekki að leita lengi. Hann lá i skorningi niðri við fjöruna. Allir bæjarbúar fylgdu honum til grafar. Meðan kista hans seig niður I gröfina, mælti presturinn þessi orð: — Lif hans var harm- leikur, eins og við öll vitum. Hann syndgaði, og hann varð að greiða þá synd dýru verði. Hann var dæmdur til fangelsisvistar, en sjálfur dæmdi hann sig til þyngri refsingar en nokkur annar. — Það er aðeins mánuður siðan ég heimsótti hann i kofann. Ég talaöi lengi við hann og bað hann að reyna að gleyma fortiöinni og byrja nýtt lif. Þá sagöi hann við mig: — Faðir, ég bið þess eins, að Guö heyri mina einustu bæn,aö ég megi greiða skuld mina viölifið. — Nú hefur Guð bænhe'yrt þennan hrjáða mann. Hann færöi þá stærstu fórn, sem nokkur mað- ur getur fært. Hann fórnaði sinú eigin lifi til þess að bjarga ööru. Við felum Guöi þennan mann, I þeirri trú, að honum hafi verið fyrirgefið, og I þeirri trú, að Eric Reardon hafi loksins fundiö þann frið, sem hann leitaði aö. *

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.