Vikan


Vikan - 19.09.1974, Side 29

Vikan - 19.09.1974, Side 29
2. atvik: Maðurinn sekk- ur sé. niður I lestur blaðsins meðan hann biður þess, að lestin leggi af stað. Töskuna hefur hann lagt frá sér. Þarna fá töskuþjófarn- ir kærkomið tækifæri og þeg- ar maðurinn hefur lokið lestri blaðsins, eru taskan og þjófurinn á bak og burt. Þótt ýmsum þyki nóg um hraö- an vöxt Reykjavikur og tali um stórborgarvandamál i borginni, er eitt vandamál stórborganna svo til óþekkt hér: vasaþjófnað- urinn. Slikur þjófnaður er tæpast stundaður hér, en vegna tiðra ferða Islendinga til útlanda og stórborganna þar.er ekki úr vegi að gefa nokkrar ráðleggingar um varnir gegn vasaþjófum: — Þegar þið setjist inn á knæpu eða vinstofu til að fá ykkur hress- ingu, hengið þá aldrei yfirhafnir ykkar á stólbakið. Ef ekki er fata- vörður á staðnum, haldið þá á yf- irhöfnunum i fanginu. — Ef þið eruð á bifreið, gætið þess þá að skilja aldrei við hana nema vandlega læsta og hafið rúðurnar ætiö dregnar upp. Skilj- ið aldrei nein verðmæti eftir i bif- reiðum ykkar yfir nótt. — Feröatékkar eru mjög vin- sælir af vasaþjófum, og þið skul- uð þvi gæta þeirra sérstaklega vel. Skrifið aldrei undir þá, nema þegar þið skiptiö þeim eða greið- ið meö þeim. — Geymið peningaveski aldrei i rassvasa. — Geymið peningaveski aldrei i innkaupatöskum. Slikt er vasa- þjófum og þeim, sem ætla sér að gerast vasaþjófar, óskapleg freisting. — Hafiö handtöskur ykkar ætið undir hendinni, eða haldið þeim framan við ykkur, einkum þar sem mannþröng er. Úrum og skartgripum er oft stolið i þétt- setnum strætisvögnum, án þess að nokkur verði var viö. 3. atvik: Þetta er gamalt og notadrjúgt bragð kven- vasaþjófa og skýrir sig sjálft. 4. atvik: Leggið peninga- veskið aldrei of- an á innkaupa- töskuna eða strandtöskuna. Slikt er allt of freistandi. 5. atvik: í aftursæti bils- ins liggur jakki og upp úr jakka- vasanum gægist seðlaveski. Ökumaðurinn er hvergi nærri, og hafi hann skilið eftir ör- litla rifu á rúð- unni, sér hann seðlaveskið sitt aldrei framar. 38. TBL. VIKAN 29

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.