Vikan


Vikan - 12.12.1974, Síða 2

Vikan - 12.12.1974, Síða 2
Undanfarið hefur borið á þvi, að fegurðarsamkeppnir þættu litt samboðnar skyni gæddum ver- um, þetta væru gripasýningar. Eini munurinn á þeim og kyn- bótasýningum væri sá, að stúlkurnar i f°,’urðarsamkeppn- um sýndu ekni afkvæmi. En hvaða augum sem litið er á feg- urðarsamkeppnir, þ. er það stað- reynd, að ennþá streyma fallegar ungar stúlkur til þátttöku i þeim um heiminn þveran og endilang- an. 1 sumar hópuðust evrópskar fegurðardisir til Las Palmas á Kanarieyjum til að keppa um titilinn ungfrú Evrópa. Og hlut- skörpust varð Wenche Steen frá Noregi. Wenche Steen er ljósmyndafyr- irsæta að atvinnu og hún hefur svo sem áður tekið þátt i fegurð- arsamkeppni. Hún hefur naumast tölu á öllum þeim stöðum, þar sem hún hefur sýnt á sér kroppinn og brosaö framan i dómnefndir, en þó nefnir hún: Tokyo, Thai- land, Astraliu, Hollywood, London, Paris, Madrid, Barce- lona og auðvitað Kanarieyjarnar, þar sem hún þótti fallegust. Af upptalningunni sést, að það hefur ýmsa kosti að vera ásjálegur. Og ekki segist Wenche Steen sjá eftir þvi að hafa lagt út á þessa braut. Og siðan hún varð Ungfrú Evrópa þarf hún ekki að kvarta undan atvinnuleysi. Henni stend- ur til boða að leika i mörgum kvikmyndum og auk þess mörg freistandi ferðalög sem ljós- myndafyrirsæta. Við skulum bara vona, að henni gangi allt i haginn og framinn stigi henni ekki til höfuðs. Til vinstri: Ungfrú Evrópa 1974. Til hægri: Wenche ásamt spænsku stúlku'nni Rocia Martin, sem varð að láta sér nægja önnur verðlaUn. Að neðan: Blaðamannafundur. Wenche virðist ekki vera I vand- ræðum með aö svara spurningum blaðamannanna. vvciicne er ijosmynaaiyrirsæia ao atvinnu — þarna sýnir hún skiða- fatatiskuna. Til vinstri: Þá er að taka sig saman I andlitinu. Til hægri: Það kemur sér aö hafa sima á Kanarieyjum. Þá er sem best hægt að tala við kærastann hcima i Noregi, þó að óralangt sé til hans. UNGFRll EVRÓPA1974

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.