Vikan - 12.12.1974, Blaðsíða 29
nd Björgvin)
Kjartan Eggertsson gitarleikari
(mynd Björgvin)
Nikulás Róbertsson planóleikari (mynd Björgvin)
koma frá erlendum hljómsveitum
og þá sérstaklega bandariskum.
Páll sagöi jafnframt, aö liklega
heföi aldrei verið efns erfitt að
vera söngvari og i dag. Þau lög,
sem eru hvað vinsælust i dag.gera
miklar kröfur til söngvara.
Þaö bar margt á góma þessa
kvöldstund með D'ögg, m.a.
frumsamin ljóð og lög, æfinga-
aðstaða, Völlurinn og afturhalds-
semi og sinnuleysi FIH gagnvart
popptónlistarmönnum og þeim
vettvangi.sem þeir starfa á. En
hvers vegna t.d. syngja islenskir
popparar yfirleitt frumsamin lög
með enskum textum? Svarið við
þessu er yfirleitt, að viðkomandi
vonast til að ná til fleiri aöila,
meö þvi að syngja á ensku.sem er
jú nokkurs konar móðurmál
popptónlistarinnar um viða
veröld. tslenskan er einnig
afskaplega stirð. þegar hún er
sungin, nema textahöfundur sé
þeim mun lagnari og hæfur
Islenskumaður. Fram kom m.a.
að væntanlega finnst íslenskum
poppurum það minnkun að
syngja á Islenskri tungu,þegar öll
skurðgoð popptónlistarinnar
syngja á enska tungu. Einnig kom
fram það sjónarmið, að hvort
sem er, þá skildi fólkið hvort eð er
ekkert i textunum, þegar þeir
væru sungnir og þar af leiðandi
skipti það ekki máli hvort þeir
væru á ensku eða Islensku. Það
eina.sem máli skipti væri.að þeir
hljómuðu nægilega vel. En
endanleg niðurstaða var, að
vissulega væri gaman að geta
sungið góðan popptexta á
Islensku með frumsömdu lagi,
gallinn væri bara sá, áð það
vantaði manninn til þess að
semja hann.
Keflavikurflugvöllur er alltaf
vinsæll meðal Islenskra hljóm-
sveita, og eiga skemmtistaðirnir
sjálfir þar uppfrá væntanlega
mestan þátt I þvi frekar en ódýrt
vin og bjór. Þar tiðkast
samkvæmismenning, sem vissu-
lega mætti sjást utan Vallrins.
Þar uppfrá er hlustað á það.sem
Islenskar hljómsveitir hafa upp á
að bjóöa. Þær eru metnar að
verðleikum og fá þar það aðhald,
sem skortir á islenskum
samkomustöðum.
Nú kann margur að spyrja hvað
þetta á skilið við hljómsveitina
Dögg. Staðreyndin er sú,að þetta
bar á góma I samtali okkar og er
ofarlega á baugi hjá flestum
hljómsveitum þó ekki sé mikið
um það rætt. Sú aðstaða, sem
Dögg.og þar með allar aðrar
Islenskar hljómsveitir, starfa viö
hérlendis, er til háborinnar
skammar og þar kemur inn i
myndina FIH, en þar sem þessi
málaflokkur er væntanlega alltof
viðkvæmur fyrir viðkomandi til
þess aö hægt sé að ræða hann á
opinberum vettvangi veröur
settur puntkur hér og nú....
Hljómsveitin Dögg mun halda
áfram á settri braut. Þeir hafa
sett markið hátt og einsett sér að
ná þangaö hvaö sem þaö kostar.
Tónlistarnám þeirra sexmenn-
inga og góöur félagsandi ber þess
greinilega merki,að þeir leggja af
stað með gott vegarnesti og mun
ekki veita af á ferðalagi um veg-
leysur islenzkrar popptónlistar.
EDVARÐ
SVERRISSON
SONY-
(jDsUagjcifm á
Söliinum t ár /
JpCudíónssan hf,
SkúlagÖtu 26
50. TBL. VIKAN 29-