Vikan


Vikan - 12.12.1974, Blaðsíða 31

Vikan - 12.12.1974, Blaðsíða 31
Jón Gíslason n •• Sogn um Sortadrauginn Sortinn i Hraungerðishreppi er eitt af sérkennilegustu mýra- og engjaflæmum á Suðurlandi og um leið landsins alls. Hann er einn af þremur frægum og miklum láglendismýrum Flóans, sérkenndum af hraunflæminu mikla, Þjórsárhrauni, er rann fyrir árþúsunum niður fjörðinn mikla, sem áður teygði sig langt til landsins og náði inn á milli fjallanna. Hin tvö mýraflæmin eru Breiöamýri og Miklavatnsmýri, og er það fyrsta mun stærst. A öllum þessum mýrum, voru góðar engjar áður fyrr, sérstak- lega góðar. Þangað var sóttur mikill heyfengur sumar hvert. Þær eru frjósamar Flóa- mýrarnar, grasgefnar og góðar til beitar á öllum árstiðum, svo framarlega, að fénaöurinn gæti sætt sig við fábreyttan gróður þeirra sér til lifsviðurværis. Beitin á mýrunum var góð áður fyrr, meðan hún var ein aðal- undirstaöa búskapar hér I land- inu. En nú er öldin önnur, sem betur fer. Á Sortanum eru kennileiti fá, aðeins tveir hólar, fremur lágir, um hann miöjan og heita hvor- tveggja Smalaskóli, efri og neðri. Frá hausti og langt fram á vor, meðan nótt er hæfilega dimm og löng, veröur þar mjög drauga- legt, og myrkriö verður hvergi jafn svart og þar. Haustmyrkriö er sérstaklega svart og dimmt á Sortanum. Sortinn er þvi mjög villugjarnt svæði til feröar, þvi' þar er fábreytileikinn rikjandi i veldi slnu og mekt. Þar eru nætur dimmastar og kvöldin drunga- legust. Þaulkunnugur maður getur auðveldlega villst þar lang- timum saman, fyllst ótta og hryllingi i fyllingu dimmunnar á stuttri leið. Hann getur lent þar i miklum erfiðleikum, þrátt fyrir það aö vera vitandi þess, að hann þekkir Sortann eins og stofugólfiö heima hjá sér. Það er aöeins eitt, sem getur afhjúpað villuna, en það er roði nýs dags, er veitir sjón um landið til fjalla og bæja. Aöur fyrr þótti það stundum ekki einleikið, hve villa var gjörn ferðamönnum á Sortanum. Jafnvel þaulkunnugir menn, þekkjandi hverja þúfu, hvern rima og hverja dæl , gátu villst þar illa um. Þeir gátu gengið næturlangt i eintóma hringi, án þess að kenna sig til áttar og leiðar, án þess aö skilja eöa skynja auðveld kennileiti i rima og við dæl, þekkjandi jafnvel ekki dælar, er þeir höfðu sjálfir slegið og heyjað á liðnu sumri. Aður fyrr varð villtur ferða- maður á Sortanum oft var undar- legs kumpáns I ferð sinni. Hann fór gjarnan undan honum og lagði þaö gjarnan i vana sinn að tæla feröalanginn með sér i undar- legum seiði, þar til hann vissi ekki sitt rjúkandi ráð og kunni engan veg léngur, helaur fór tóma hringi. A stundum varð ferðamaðurinn gripinn ótta, og þaut um af ákafa, þangaö til hann var orðinn yfir sig þreyttur. Þá varð það fangaráö að setjast i blautri mýrinni, óvist- legri og án afdreps eða skjóls, og biða komu nýs dags. Oft var það óttaleg bið, og setti þá gjarnan hryllilegan kulda að ferða- löngum. En aldrei hef ég heyrt, aö alvarleg slys hafi hent undir slikum kringumstæðum. En það mun sennilega hafa stafað af þvi, að Sortadraugurinn var fremur kulvis, hafði sig litt I frammi, nema i hlýviðri. Hann var sem sagt samhæfður veðurfari mýra og engja, blautlendinu. Hinn ósýnilegi fylgdarmaður ferðamanna um Sortann var venjulega nefndur Sorta- draugurinn, enda fór hann aldrei út fyrir Sortann. Hann var þvi óvenjulega tryggur heimkynnum sinum og var sannur og sjálfum sér samkvæmur I öllum atvikum og hátterni. Enginn veit uppruna hans, og enginn kunni að lýsa honum nákvæmlega, en sumir þóttust þó vita búning hans. Hann átti að vera á stærð við fermingarstrák, laúsgirtur og lafsalegur. Hann var klæddur mórauðum va ðmá lsstakki, slitnum og tötralegum. Hann var loöinhærður og stuttur til klofsins,. enda sögðu menn, að hann væri genginn allt að hnjám. En fóta- búning hans vissu menn ekki, þvi stakkur hans var siður vel. Sortadraugurinn hafði einkenni móranna, prjónahúfu á höfði, og átti hún aö vera vel upplituð. Hann sýndi ferðamanni aldrei áreitni, en hafði aðeins hug á að villa hann og tæla til göngu um heimkynni sin, langa og erfiöa göngu, endalausa og þreytandi. I æsku heyrði ég nokkrar sögur af Sortadraugnum, og voru þær allar af þeirri art, sem þegar er getið, en samt sem áður hver og ein með vissum svipbrigöum og sérkennum, aö minnsta kosti þótti mér vera svo þá. Aldrei varö hans vart á sumrin eða þegar vora tók og dagur fór að verða langur og nóttin björt. Hann var aöeins á ferli i myrkri eöa þoku, og kjörveöur hans var grá og þykk vetrarþokan, sem oft hylur mýrar Flóans undarlegri blæju, er hausta fer og veturinn er á næsta leiti. Hann var fyrir marga hluti óvenjulegur i hópi drauga, hafði sin takmörk, skynvitleg og föst. Aldrei villti hann menn, sem voru að gæta fjár eða voru með kinda- hóp i rekstri. Aldrei villti hann rlöandi fólk. Gamla fólkið sagði af honum og háttum hans margar sögur, og talaði um hann eins og kunningja, er var þekkur og skemmtilegur I umgengni. Eftir aö skurðir og flóögarðar Flóaáveitunnar komu á Sortann, átti Sortadraugurinn erfiöara með að villa menn á ferð sinni um mýrarnar. Samt sem áður kom þaö fyrir, að menn urðu fyrir smáyilíum og undarlegu föru- neyti um Sortann. En kennileiti uröu af skurðunum og flóð- görðunum, og gátu þvi villurnar ekki orðið aö verulegu ráði. Varð þvi villa af völdum hans ekki aö neinu marki eftir aö Flóaáveitan var gerð. Svo verða breytingar meö nýjum háttum og nýjum framkvæmdum. Litlu Reykir i Hraungerðishreppi eru rétt austan við Sortann, og er enginn bær i hreppnum i jafn nánu sambýli við hann og Litlu Reykir. Fjárhús eru rétt fyrir utan bæinn og mega heita á mörkum Sortans, enda gengur féð frá þeim til beitar út i Sortann, og var það mikil búbót áöur fyrr, meðan búið var við beit. Maður er nefndur Astgeir Björnsson. Hann ólst upp á Litlu Reykjum hjá barnlausum 50. TBL. VIKAN 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.