Vikan - 12.12.1974, Blaðsíða 28
Hljómsveitin Dögg var stofnuö
þann 4. október 1973 og átti þvi
eins árs afmæli fyrir stuttu slöan.
1 tilefni þess átti þátturinn kvöld-
stund meö hljómsveitinni i
æfingahúsnæöi hennar i
Vesturbænum. Dögg skipa þeir
Jóhann Þórisson, Rúnar
Þórisson, Kjartan Eggertsson,
Nikulás Róbertsson, Ólafur
Helgason og Páll Pálsson. Þeir
eru allir I Tónlistarskóla Sigur-
sveins Kristinssonar, sem er
nokkuö óvenjulegt af sex manna
rokk/popp hljómsveit að vera. En
þeir eru allir þess fullvissir að
hljómsveitin Dögg muni ná á
toppinn.áöur en yfir likur.
Þrir þeirra, sem I hljóm-
sveitinni eru.voru áður i hljóm-
sveitinni Tilfinningu; þeir
Kjartan, Ólafur og Páll. Upp úr
þeirri hljómsveit slitnaöi
snemma árs 1973,og Dögg sá fyrst
dagsins ljós þann 4. október 1973,
eins og áður sagöi. Það var I
Klúbbnum á SAM-komu. Að eigin
sögn heföi þeirra spilamennska
þar fariö öll I vaskinn.ef ekki heföi
veriö fyrir náunga nokkurn
ölglaöan.sem stillti sér upp fyrir
framan þá,og tók aö spyrja þá
spjörunum úr um hvaö hver héti
og á hvaða hljóðfæri hann spilaði.
Þetta var gert hátt og snjallt.og
áöur en varöi var allt stress á bak
og burt,og allt gekk eins og i sögu
þaö sem eftir var... Sföan er rúmt
ár,og Dögg hefur siðan vaxíð aö
visku og vexti eins og stendur I
fornum bókum.
Þegar hljómsveitin var stofnuö
voru I henni aöeins fimm menn.
Nikulás kom I hljómsveitina
seinna, þegar hann geröi
árangurslausa tilraun til þess aö
selja hljómsveitinni pianó, sem
hann átti. Þeir vildu ekki kaupa
en buöu honum aö spila á þaö
sjálfur meö hljómsveitinni.
Nikulás ákvaö aö vera hálfan
Dögg (mynd Sigurgeir)
mánub og sá hálfi mánuður varir
ennþá.
Aöstaða hljómsveitarinnar til
æfinga er mjög góð — einhver sú
besta(sem þátturinn hefur komið i
á Reykjavikursvæöinu. Þar æfa
þeir félagar svo ab segja hvert
kvöld frumsamið efni. jafnt og
annaö. Eins og er hafa þeir aðeins
örfá frumsamin lög I pró-
gramminu, en eru aö undirbúa
mun fleiri. Það er eingöngu
spurning um tima, hvenær Dögg
getur boðið upp á algjörlega
frumsamiö prógramm. Er Dögg
hélt upp á eins árs afmæli sitt i
Tónabæ snemma I október, léku
þeir m.a. það frumsamda efni,
sem þeir hafa á boðstólum.
Veröur ekki annað sagt en það sé
alveg prýðilegt og mjög i anda
þeirrar tónlistar.sem nú streymir
til okkar frá Bandárikjunum..'.
Allt prógramm hljóm-
sveitarinnar er byggt upp af
lögum frá bandariskum
hljómsveitum og lagasmiöum.
Þeir leika ekki eitt einasta lag
ættað frá Englandi.og verður það
aö teljast • timanna tákn, þvi
England er ekki lengur sá áhrifa-
valdur.sem það var hér áður fyrr
á timum Bitlanna.
Sex. manna hljómsveit eins og
Dögg gefur nokkuð marga mögu-
leika hvað Varðar hljóðfæra-
skipan. Nikulás telst t.d. vera
aöalpianóieikari hljóm-
sveitarinnar.en hann spilar jafn-
framt á saxófón og flautu. Þegar
hann er svo ekki viö pianóiö,geta
Kjartan eöa Páll tekiö við. Páll er
annars . söngvari hljóm-
sveitarinnar.Kjartan gitarleikari,
bræöurnir Jóhann og Rúnar
Þórjssynir spila á gitar og bassa
og Ólafur leikur á trommur. Þeir
syngja allir nema Ólafur og
leggja mikiö upp úr góðum og
fjölbreyttum röddum.
Þar sem eru svona margir
Dögg
saman I einni hljómsveit, koma
fram mismunandi sjónarmiö og
smekkur. Þeir segja sjálfir að oft
á tiðum standi nokkur styr um
lagaval,en aö sjálfsögðu næst
samkom'ulag að lokum. Það kom
fram i samtali okkar, aö þeim
fannst nú betri og betri tónlist
Ólafur Helgason trommuleikari (mynd BjÖrgvin)
28 VIKAN 50. TBL.
Rúnar Þórisson bassaleikari (mynd Björgvin)
Páll Pálsson söngvari (mynd
Björgvin)
Jóhann Þórisson gitarleikari (my