Vikan


Vikan - 12.12.1974, Síða 21

Vikan - 12.12.1974, Síða 21
Sérhver ber þann grun I brjósti um sjálfan sig, að hann búi að minnsta kosti yfir einni höfuö- dyggð og er ég þar ekki undan- tekning: Ég er einn fárra heiðar- legra manna, sem ég hef þekkt. IV.KAFLI Sunnudagsmorgun einn, meðan klukkur hringdu til messu 1 kirkj- um sveitaþorpanna meðfram ströndinni, sneri heimurinn á- samt fylgikonum sinum til húss Gatsby og spigsporaði léttstfgur um landareign hans. — Hann er smyglari, sagði ein ungu kvennanna, sem reikaði milli hanastélanna hans og blómabeðanna. — Einu sinni réð hann mann af dögum, sem' komizt hafði áð þvl að hann væri þre- menningur viö von Hindenburg og náfrændi sjálfs fjandans. ’Réttu mér rós, ástin, og heiltu siðasta dropanum úr flöskunni þarna i kristalsglasiö. Einu sinni skrifaði ég niöur á milli lina i ferðaáætlun nöfn þeirra, sem komu til húss Gatsby þetta sumar. Þessi ferðaáætlun er nú komin til ára sinna og géng- in sundur um brotin, og efst á henni stendur: „Þessi skrá er i gildi til 5. júli 1922”. Ég gat enn lesið þessi gráu nöfn og munu þau gefa lesandanum betri mynd en lýsingar min sjálfs af þeim, sem nutu gestrisni Gatsby og gerðu honum þá ánægju til endurgjalds aö vita engin deili á honum. Frá Eystra Eggi komu Chester Beckers og Leechfólkið, ásamt manni sem Bunsen hét og ég kannaöist viö i Yale. Þá kom þar dr. Webster Civ^t, sem drukknaði siöastliðiö sumar uppi i Maine. Þá má nefna Hornbeam og Willie Voltaire og heilan ættbálk, sem nefndist Bláckbuck, og jafnan safnaðist saman i einu horni garösins og fýldi grön, eins og •geitum er tam.t, kærrii einhver nærri þeim. Og -þarna voru Isniayhjónin og Chrystiehjónin, sem réttara væri að nefna Hubert Auerbach og konu herra Chrystie, og Edgar Beaver, en þaö er han^sem varð hvithærður á einni ei'nustu vetrarnótt, 'án nokkdrrar sýnilegrar ástæðu. Clarence Endive var frá Eystra Eggi, ef ég man rétt. Hann kom aöeins einu sinni, klæddur hvitum reiöbuxum og lenti i slagsmálum við slána nokkurn sem Etty hét, I garöinum. Utar af eyjunni komu Cheadlehjónin og O.R.P. Schraederhjónin, ásamt Stone- wall Jackson Abrams frá Georgiu, að ógleymdum Fish- guards og Ripley Snellhjónun- um... Snell var þarna á ferö, þrem dögum áöur en hann fór I betrunarhúsiö, og var hann svo drukkinn, aö bifreiö frú Ulysses Swett ók yfir hægri hönd hans á malarborinni heimreiðinni. Dancie hjónin komu þarna lika og S.B. Whitebait, maður á sjötugs- aldri, og Maurice A. Flink og Hammerheadhjónin. Þar kom og tóbaksframleiöandinn Beluga og fylgikonur hans. Frá Vestra Eggi komu Pole- hjónin og Mulreadyhjónin, Cecil Robuck og Cecil Schoen, Gulick þingmaöur og I^ewton Orchid, forstjóri Par Exellence kvik- myndafélagsins. Ennfremur Eckhaust og Clyde Cohen, ásamt Don S. Schwgrts (yngri) og Arthur McCarty, og var allur þessi hópur I tengzlum við kvik- myndaiðnaðinn, á einn eöa.annan hátt. Enn má nefna Catlipshjónin og Bemberghjónin og G. Earl Muldoon, bróðir Muldoon þess^ senl síðar kyrkti konu sína. Fremdarmaöurinn Da Fontano vár þarna, og þeir Ed Legros og James B. (Rauðgörnin) Ferret og De Jongs og Ernest Lllly, Þeir komu þarna til að spila fjárhættu- spil, og þegar Ferret kom út I garöinn, táknaöi það að hann var blankur orðinn og að Sameinaða Flutningafélaginu væri hollast að skila drjúgum ágóða daginn eftir. Maður, sem Klippspringer hét, var þarna svo tiöur gestur og svo þaulsætinn, aö hann varð brátt þekktur undir nafninu „kostgang- arinn”. Ég éfast um að hann hafi átt annaö heimili. Af leikhúsfólki má nefna Gus Waize og Horace O’Donovan, Lester Myer og Georg Duckweed og Francis Bull. Frá New York komu Chrome- hjónin og Backhyssonhjónin og Dennickerhjónin. Þá og Russel Betty og Corriganshjónin og Kelleherhjónin og Scullyhjónin, S.W. Belcher og Smirkehjónin og Powenl’^. 50. TBL. VIKAN 21 Á

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.