Vikan - 02.01.1976, Qupperneq 5
arstjórastarfsins. Samræmist það
hugmyndum þínum um jafnrétti?
— Það er nú erfitt að svara
slíkri spurningu. Ég er mjög fylgj
andi jafnrétti kynjanna, og ég býst
við því, að mér hefði þótt súrt
í broti, ef ég hefði verið búin
að mennta mig til einhvers starfs,
sem ég hefði svo ekki getað stund-
að vegna starfs mannsins míns.
— Gætir þú hugsað þér að taka
við stjórn borgarinnar af manni
þínum, eins og dæmi eru til um
konur til dæmis í Bandaríkjunum?
— Nei, það gæti ég ekki hugsað
mér, vegna þess að ég veit hve
starfið er erfitt.
— En hvaða málum þefðir þú
helst beitt þér fyrirsem borgarstjóri?
— Ég hef áhuga á málefnum
barna, bæði dagvistunarstofnunum
og skólum, ekki síst fyrir þroska-
heft börn. Mikið vantar af sér-
hæfðu fólki á þvl sviði. Ég hefði
einkum beitt mér fyrir slíkum
málum.
Þegar hér var komið sögu, voru
litlu tvlburasysturnar orðnar dálítið
órólegar yfir þvl, hvað mamma
þeirra var upptekin að spjalla við
alls ókunnuga konu. Svo vissu þær
líka af súkkulaðitertu — þeirri
bestu I heimi — sem þær áttu
að fá bita .af okkur til samlætis,
þegar við teldum nóg komið af
spjallinu. Hér setjum við þvl
punkt. K.H.
ætlar hún virkilega að fara að
tala við mig, og hvað á ég nú að
segja? Að vísu hafði ég talað við
hana fyrr I veislunni að Kjarvals-
stöðum, en það voru bara almenn
kurteisisorð. En ég hefði getað
sparað mér skrekkinn, drottningin
var ákaflega elskuleg og þakkaði
mér kærlega fyrir boðið að Kjar-
valsstöðum, það væri svo gaman
að hitta fólk á þessum aldri,
sem ætti börn á svipuðum aldri og
þau sjálf, og við fórum bara að
tala um börnin okkar.
Bjóðið þið fólki oft hingað
heim ?
— Flestar meiri háttar móttökur
fara fram I Höfða, en persónulegri
boð höldum við hér heima. Ég
annast þau að miklu leyti sjálf,
en fæ’ auðvitað aðstoð.
— Nú ert þú i þeirri aðstöðu,
að þú ert eiginlega dæmd í þína
stöðu sem borgarstjórafrú. Þitt
starf er einskonar fylgistarf borg-
1. TBL. VIKAN 5