Vikan

Útgáva

Vikan - 02.01.1976, Síða 24

Vikan - 02.01.1976, Síða 24
Sigurjón, kemur I Ijós, að ekki er kastað til höndunum við leik- tjaldagerðina, sem þegar er langt á veg komin. Sigurjón fékk hand- ritið til aflestrar I vor, og eftir að hafa kynnt sér efnisþráðinn rækilega var fundað með leikstjór- anum og komist að niðurstöðu um, hvað leiktjöldin ættu að gcfa til kynna og fundinn sameigin- legur þráður. Síðan gerir Sigurjón sínar fyrstu skissur að hugmynd sinni að leik- myndinni, og eru þær oft útfærð- ar I vatnslitum. I þetta skipti urðu skissurnar það margar, að þær urðu nægur efniviður í sýn- ingu, og því ætlar Sigurjón að gefa almenningi kost á að skoða þær uppi á Mokka-kaffi á Skóla- vörðustígnum eftir ,iól. ,,Ég hef rekið mig á það” segir Sigurjón, ,,að fjöldi fólks hefur ekki hugmynd um, hvað ég er að gera I leikhúsinu. Því þótti mér hugmyndin um sýningu kjörið ta-kifæri til að kynna starfssvið mitt og allra þeirra, er að leik- myndagerð vinna.” Eftir skissunum er síðan gert módel I skala 1:20 af lcikmynd- inni. sem útfært er I spjaldapappa og balsavið. Síðan er módelleik- myndinni komið fyrir, I öðru módcli, scm er fullkomin eftirltk- ing af senu Þjóðleikhússins. Þar er leikmyndin prófuð og gengið m.a. úr skugga um, að allir leikhúsgestir, einkum og sér I lagi þcir, sem sitja á efri svölum, hafi fulla yfirsýn. Þegar leikmyndin hefur verið ákveðin, kcmur til kasta trésmíða- verkstæðisins, en þar eru öll leik- tjöldin smíðuð. í þetta sinn eru leiktjöldin bæði cinföld og ódýr, mörg hundruð kassafjalir, sem settar cru saman, mynda borgina Sesúan, en hún á það sameigin- legt með Reykjavík, að þökin eru úr bárujárni, þótt bárujárnið 1 Sesúan sé úr trcfjaplasti, sem er auðveldara I meðhöndlun. Eín og sama standandi leik- mynd verður á sviðinu allan tím- ann, en mcð ýmsum minni hátt- ar breytingum og tilfærslum mvndar hún 17 tilbrigði. Stórt og mikið tré var verið að skera út 1 einangrunarplast, þegar við heim- sóttum trésmíðaverkstæðið, en það reis síðar á scnunni I allri sinni dýrð, og við töldum strax víst, að þetta væri kirsuberjatré, sem ómissandi er I öllum kínverskum ,,Að þessu sinni vildum við hafa leikmyndina sem upprunalegasta og höfnuðum þvi að nota hinn hefðbundna mátaða striga og kus- um í staðinn að nota kassafjalir og bárujárnslíkingu úr trefjaplasti." 24 VIKAN 1. TBL. Móde! að leikmynd Góðu sá/arinnar, unnið í balsavið og spja/da papþa.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.