Vikan

Issue

Vikan - 08.07.1976, Page 3

Vikan - 08.07.1976, Page 3
Ameríku, en er nú löngu orðið sómasamlega heilnæmt, en eitt- hvað mun sálarlífið vera mengað á þessum stað, því við vorum vör- uð við að vera þar á ferli eftir sólsetur. Við fórum nú samt í land, en héldum okkur á vel upplýstum verslunargötum, og þar var allt í sómanum. Daginn eftir fréttum við þó, að einn skip- verja hefði fengið hnífsstungu í handlegg, ekki þó alvarlega. Næsta morgun vorum við komin inní skipastigann í Panamaskurðinum, og var þar ekki víðara til veggja en svo, að hæglega hefði mátt stökkva i land. Eftir rúman klukkutíma vorum við komin uppí Gatunvatn um það bil 25 metra yfir sjávar- máli. Á vatninu lágu mörg skip og biðu eftir að komast til sjávar. Við biðum þarna fram eftir degi og fórum svo að mjakast ofan í móti á ný, í átt til Kyrrahafs. Víða er mikil náttúrufegurð á þessari leið, og má segja, að maður hafi sitt á hvora hönd endana á þeim miklu fjallgörðum, Klettafjöllum og Andesfjöllum. Um kvöldið komum við til Balboa, stóðum þar aðeins við í tvær stundir, sigldum svo undir einu brúna, sem tengir Norður- og Suður-Ameríku, og út á Kyrrahaf. Síðan héldum við norðvestur með strönd Mið- Ameríku, og út á Kyrrahaf, Síðan héldum við norðvestur með strönd Mið-Ameríku, og laugar- dagsmorguninn 2. febrúar var akkerum varpað á höfninni í Acapulco i Mexíkó. Þessi staður er oft kallaður leikvöllur milljónaranna, því fjöl- margir bandarískir auðkýfingar og filmstjörnur hafa þar vetur- setu. Eiga þeir margar skraut- villur uppi í hlíðunum. Þar eru líka heilmörg hótel handa þeim, sem ekki eru eins fjáðir. Vetrar- veður er þar álíka og sumarveður við Miðjarðarhaf. Um kvöldið sáum við flokk indíána, sem kallar sig „Flying Aztecs.“ Þeir settu á svið mannfórnarhátíð azteka, og fylgdi þessu stórfeng- leg ljósadýrð og loftfimleikar. Fræg eru líka stökkin í La Que- brada, þar sem menn steypa sér úr 50 metra hæð ofan í þrönga klettarennu, en fremur munu þeir fáir, sem iðka þessa íþrótt. Um nóttina yfirgáfum við þennan dýrðarstað, héldum enn norður með landi og lögðumst að bryggju í San Pedro við Los Angeles. Þar dvöldum við þann dag og til hádegis þann næsta. og skoðuðum rauðviðarskógana miklu, Kínahverfið, og brýrnar miklu í ljósadýrð að kvöldlagi. Því miður hvíldi mikið mistur yfir þessum fallega stað, svo út- sýnis varð ekki notið sem skyldi. Síðustu dagana höfðum við ferðast í norðurátt og veður því gerst smám saman svalara, en nú var stefnan tekin suðvestur yfir Kyrrahaf og í hlýindin á ný, og að 5 dögum liðnum vorum við í Honolulu. Sumir halda, að við komuna til Hawaiieyja komi polynesiskar þokkadísir og hengi blómsveiga um háls manni, dansi húladans og séu til þæginda á allan hátt. Því miður tíðkast þessi góði siður ekki lengur, nema þá við hátíðleg tækifæri, að minnsta kosti ekki Century Bar á Canberra. þegar um svona venjulega heims- hornaflakkara er að ræða. Við sáum reyndar lítið af Honolulu nema miðborgina, og er hún harla lítið frábrugðin öðrum stórborg- um, o£ þar ber ekki mikið á inn- fæddúm. Við skoðuðum dálítinn hluta af þessari töfrandi eyju og vorum um kvöldið í veislu á Royal Hawaian hótelinu, einu því elsta og virðulegasta á Waikikiströnd- inni. Strönd þessi er fræg um víða veröld, bæði vegna fegurðar og ekki síður vegna þess, hve fjölsótt hún hefir verið af allskonar frægum persónum. Nú er þarna margt um manninn, og upp af ströndinni gnæfa hótelin svo þétt, að víða sést aðeins uppí heiðan himininn. Annars eru víða á eyj- unni fallegar víkur og sýnast fremur afskekktar. Um miðnætti létum við úr höfn, en á bryggjunni stóðu heima- menn og sungu Aloha Oe, og við sigldum út i hitabeltisnóttina suður yfir Kyrrahaf. Þegar skemmtiferðaskip er dögum saman á ferð um úthafið, fellur lífið um borð í nokkuð fastar skorður. Þetta er mikið dásemdarlíf, einkanlega þó á hinum hlýrri breiddargráðum. hnattarins. Dagurinn byrjar á því að herbergisþjónninn færir öllum te og kex í rúmið ásamt dag- blaðinu, sem er 2 síður, á annarri þeirra er prógramm dagsins, hnattstaða, veðurfar, ganghraði og annað um ferðalagið, og á hinni síðunni eru nýjustu heims- fréttir. Svo er gáð til veðurs og kannski farið í gönguferð. Á Eins og að líkum lætur í þessari höfuðborg kvikmyndanna, er kvikmyndaver það fyrsta, sem gestum er sýnt. Þar var okkur sýnt, hvernig hægt er að gera ýmsa hluti ljóslifandi á filmunni með tiltölulega einföldum brögð- um. Einnig var ekið um lúxus- hverfin í Hollywood og Beverley Hills, og mátti leiðsögukona okkar hafa sig alla við að segja, hversu margar milljónir dollara þessi og hinn bústaðurinn hefði kostað, og var hún þó vel mælsk. Um hádegi næsta dag létum við úr höfn, og eftir sólarhrings ferð sigldum viö undir Golden Gate brúna, inn í San Fransiskó flóa og lögðumst að bryggju stundu síðar. Þarna vorum við í einn sólarhring Hawaii. 28. TBL. VIKAN 3

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.