Vikan

Eksemplar

Vikan - 08.07.1976, Side 5

Vikan - 08.07.1976, Side 5
Sydney Cove, en þar er aðal mið- stöð fyrir ferjubátana, sem sífellt eru á þönum um höfnina. Og merkilegir hlutir blasa við á báðar hendur, annarsvegar hafnarbrúin, sem á sínum tíma var eitt hinna mestu mannvirkja, og hinummegin óperuhúsið eins og þanin segl, eitt sérkennilegasta og umdeildasta hús veraldar. Við vorum 2 daga í Sydney, og að morgni hins fyrra dags lögðum við upp í ferð til Bláfjalla, sem eru sögð fegursti staður i nágrenni Sydney. En þá tókst nú Tiger Balm Garden í Hong Kong. sérlega góð, og hefir leikið viða um heim, meðal annars á Edin- borgarhátíðinni, við góðan orð- stír. Einnig hélt hún hljómleika um borð um kvöldið við mikla hrifningu. Eyjaskeggjar eru sagðir ákaflega músikalskir, og er þetta vingjarnlegasta fólk, þótt forfeður þeirra hafi líklega flestir verió mannætur. Skammt frá Suva er Orkidíu- eyja, þar er einskonar byggða- safn, þar sem fornir siðir eru i heiðri hafðir, að vísu ekki mannát, en Kavadrykk fær maður að fornum sið sem tákn gestrisni og vináttu. Svo dansa þeir sína fornu dansa og eru allvígalegir í stríðsmálningunni. Áður fyrr stóð sæförum stuggur af eyjum þess- um og áttu á hættu að vera étnir, ef þeim skolaði þar á land, en nú fiykkist þangað ferðafólk, aðal- lega'fráÁstralíuogNýja.Sjálandi. Um hverfis Fijieyjar eru einhver víðáttumestu kóralrif í heimi, og má skoða litadýrð þeirra í bátum með glerbotni. Suva er á Viti Levu, stærstu eynni í klasanum. Þar er fjöllótt mjög, snarbrattir tindar, þétt vaxnir frumskógi og fjalllendið vegalaust og að mestu ófært, og er öll byggðin við strendurnar. Þar er dæmigert hitabeltisloftslag, heitt og rakt, og eins og hendi sé veifað er komin hellidemba og eftir fáar mínútur glaðasólskin á ný. Á ræktarlandi vaxa aðallega kókoshnetur og sykur. í þessum mikla gróðurreit dvöldum við í 2 daga, héldum svo enn í suðurátt og komum til Auck- land á Nýja Sjálandi eftir þriggja daga ferð þriðjudaginn 26. febrúar. Þótt fjarlægð sé ekki mikil frá Fijieyjum til Nýja Sjálands, er mjög ólíkt um að litast. Hitabeltis- gróðurinn á fyrrnefndum stað er slíkur, að vart má sjá, hvar frum- skógurinn endar og ræktar- landið byrjar. Á Nýja Sjálandi er aftur á móti komið suður úr hita- beltinu og loftslag temprað. Landið er vel ræktað og allt svo snyrtilegt, að af ber og ber vott um almenna velmegun. Auk þess er náttúrufegurð í þessu landi meiri en víðast annarsstaðar. Það er ekki mikið meira en öld síðan evrópumenn tóku að ráði að byggja landið, og sló þá í marga harða brýnu milli þeirra og maóríanna, sem fyrir voru, en þeir voru hraustir menn, stoltir og herskáir og átu féndur sína. Þeir voru með fiabrigðum list- fengir, og víða má sjá tréskurðar- verk þeirra. Nú ríkir friður í landi, og hvítir menn og brúnir eru jafnir fyrir lögum. Langflest- Mauritius. ir landnemanna komu frá Bret- landi, og það er eins með þá eins og landa okkar í Vesturheimi, að þegar þeir ferðast til Bretlands kalla þeir það að fara heim. Um kvöldið kom flokkur maória um borð og sýndi þjóð- dansa, og í rökkrinu næsta dag létum við úr höfn. Fjöldi segl- báta, fylgdi okkur út úr sund- unum, en á sundum og fjörðum þar eru skilyrði fyrir seglsport alveg frábær. Um nóttina fórum við hjá norðurodda Nýja Sjálands og tókum stefnu vestur yfir Tasmanhaf. Síðdegis á laugardag 2. mars risu gulir klettahöfðar á bæði borð, Sydney Heads, þar sem opnast innsiglingin til Port Jack- son, en við þann mikla fjörð er stærsta borg Ástralíu, Sydney. Fjörður þessi er langur, og út frá honum ganga ótal víkur og vogar, og báðum megin hans, mest þó að sunnanverðu, stendur borgin. Við lögðumst að bryggju í ekki betur til en svo, að á miðri leið kom hvellur, það var sprungið á afturhjóli. Ekkert varadekk var með í ferðinni, en bílstjórinn stöðvaði bíl og bað fyrir skilaboð, og nokkru seinna kom bíll með varadekk. Fljótt og vel gekk að skipta um hjól, en þá tók ennþá verra við. Bíllinn neitaði að fara í gang, hvort sem farið var að honum með góðu eða illu, og þar við sat. Einhverra hluta vegna var ógjörningur að fá annan bíl, og þarna máttum við dúsa í eina 6 tíma. Staðurinn var sá ljótasti og leiðinlegasti á allri leiðinni, kvos, þar sem ekkert var að sjá nema gras og girðingar. Auk þess var heitt og lítið til svölunar þorsta. Loks kom gamall skrjóður og flutti okkur til skips, og þar með var dagurinn algjör- lega farinn til spillis. Þetta hefði þótt léleg þjónusta á íslandi. Næsta dag skoðuðum við það markverðasta í borginni og við höfnina, og undir kvöld létum við úr höfn. Um þetta leyti gengu fellibyljir við austurströnd Ástraliu og ollu nokkru tjóni á ströndinni. Blés því allsnarplega fyrstu tvo dagana, en svo komum við í Kóralhafið, og þá datt allt í dúna- logn, og var blíðviðri alla leiðina til Hong Kong, en þangað var 9 daga sigling frá Sydney. Nú sáust mörg ný andlit um borð, því um það bil 500 farþegar luku ferð sinni í Ástralíu og álíka margir komu í þeirra stað. Einnig kom nýr skemmtikraftur um borð: Gríðarmikið rafmagnsorgel ásamt orgelleikara, sem lék óska- lög á kvöldin við mikla hrifningu. Sömuleiðis voru skipstjóraskipti. Föstudaginn 8. mars fórum við um SanktiGeorgssund á milli Nýja Bretlands og Nýja Irlands spölkorn fyrir austan Nýju Gíneu. Við sigldum rétt hjá höfuðborg- inni, Rabaul, án þess að hafa þar viðkomu. Rabaul er umkringd eldfjöllum, sem tóku að gjósa eina nótt árið 1927. Borgin huldist ösku og vikri, en íbúarnir voru í snatri fluttir burtu, og gekk það' svo fljótt og vel, að hvítu íbúarnir sögðu, að aðeins hefðu farist tveir menn og 300 innfæddir, en land- nemar lifðu þarna lúxuslífi og höfðu tamið mannæturnar og gert þær að þrælum sinum. Gróðurmagnið er slíkt á þess- um slóðum, að upp úr öskunni blómstraði allt enn meir en fyrr, og brátt var allt í fullum gangi á ný. En svo kom stríðið, og japanir og bandaríkjamenn börðust þarna af mikilli hörku, og allt var eyðilagt, sem hægt var að eyði- leggja. Nú er friðsamlegt á ný, en eyjarnar eru að fá sjálfstæði, og enginn veit, hvernig því reiðir af. Degi síðar fórum við f annað sinn yfir miðbaug, en í þetta sinn var ekkert haldið uppá daginn. Aðfaranótt 13. mars fórum við um Babuyansund, nyrst í Filippseyja- klasanum og komum til Hong Kong daginn eftir. Við lágum við bryggju í „Ocean Terminal“. Þar liggur leiðin í land í gegnum hús eitt mikið, sem hefir að geyma 110 verslanir, fullar af hinum fjölbreyttasta varningi. Yfirleitt mjög fallegum og vönduðum. Datt mér í hug að sumir kaupglaðir íslendingar myndu aldrei komast lengra en í þetta hús. Fljótlega dreif kínverja að með varning sinn, og „promenaði" dekkið og ýmsir gangar innan dyra urðu á svipstundu einn meiriháttar markaður. Gerðu þar margir góð kaup. Klæðskerar fengu einn sal til umráða, tóku mál, fóru í land, komu aftur og mátuðu og komu svo með fötin tilbúin daginn eftir. Við dvöldum 2 daga í Hong Kong og og skoðuðum það mark- verðasta, litum inní Alþýðulýð- veldið, skoðuðum Hong Kong eyju og sigldum með djúnka til Aberdeen, sem er fljótandi þorp. Þar býr fólk alla sína ævi i bátum, og sagt er, að sumir stígi aldrei fæti á þurrt land. Það munu búa um 80 þúsund manns í bátum þessum. Þarna borðuðum við gómsæta kínverska máltið í afar skrautlegu fljótandi veitingahúsi. Þð er mikill ys og þys í Hong Kong, enda einn þéttbýlasti staður veraldar. 28. TBL. VIKAN 5

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.