Vikan - 08.07.1976, Qupperneq 17
(Kl foSjíR.
Eftir langa fjarvist er Aleta drottning nú á leiö til Þokueyja til þess aö koma á lögum og reglu I rlki
sinu. Hektor er ráöinn eikaritari hennar. Þaö veröur til þess, aö hann gleymir sjóveikinni, og auk þess
eru tvíburasysturnar mun stilltari en áður.
Gunnar jarl siglir eftir himintunglum og snýr
skipinu lengra til austurs og brátt sér til
Spánarstranda.
Þegar þau koma f nyrstu höfnina á Spáni, greiöa þau hafnartollana, og
hefja erindrekstur sinn. Hafnsögubáturinn kemur til móts viö þau, en
hafnarstjórinn fer siðan beint á fund Julians hertoga, þvl aö honum
getur hann nú fært góðar fréttir.
Fyrr meir átti hertoginn allmikil viöskipti við þokueyjaskeggja, en
hertoginn haföi ekki verið sanngjarn, svo að þokueyjaskeggjar höföu
hastt aö skipta viö hann. Nú sér hann leiö til þess að notfæra sér komu
Aletu drottningar til aö hefja verslun aftur.
© King Foatures Syndicate, Inc., 1975. World rights reserved.
Valiant og Aleta veröa forviöa, þegar
sendinefnd aöalsmanna kemur til þeirra
meö boö frá hertoganum um að dveljast I
höll hans meöan þau standi við I þorginni.
Hertoginn fylgir þeim sjálfur til hallarinnar, og fylgir hersingunni hljóöfærasláttur og lúðrablástur.
Mannfjöldinn tekur undir með hrópum og ópum. Valiant og Aleta veita þvl þó athygli, aö sumir
borgarbúar hætta sér ekki út á götuna, heldur gægjast út milli gluggahleranna. Hvers vegna?
Næsta vika — Garöar hertogans.
28. TBL. VIKAN 17