Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 08.07.1976, Qupperneq 24

Vikan - 08.07.1976, Qupperneq 24
ekkert um og hefði sjálfsagt ekkert gott af því að vita það. Ég vaknaði á gjörgsesludeild og gat til að byrja með alls ekki áttað mig á, hvar í heiminum ég var stödd. Ég man óljóst eftir einhverj- um rétt hjá mér með slöngur og rör I skrokknum hér og þar. Ég grátbað um eitthvað að drekka, og mér var rétt vatnsglas og leyft að dreypa aðeins á því. Mér skildist, að ef ég drykki mikið gæti mér orðið óglatt. Það var bókstaflega alltaf verið að gæta þess að manni yrði ekki óglatt. Mér gekk illa að drekka úr glasinu, þvl að það rakst stöðugt I fyrirferða- mikið nefið, sem nú var fjórum sinnum stærra en venjulega. Auk þess fannst mér vatnið ólystugt, því það var blóðbragð upp I mér. Eftir að gengið var úr skugga um, að ég væri vel vöknuð og allt í stakasta lagi, var mér rúllað sömu leið til baka og niður á mína stofu. Mér leið ekkert tiltakanlega illa og svaf mest allan tímann þangað til morguninn eftir. Fjölskylda min kom I heimsókn um kvöldið, en ég hafði ekki einu sinni fyrir því að opna annað augað. Ég var heppin að borða morgun- verðinn áður en ég leit I spegil, því að annars hefði ég varla komið niður matarbita. Ég var alveg gáttuð á því, hve miklu var hægt að troða I eins lítið nef og mitt. Þegar ég var búin að jafna mig eftir sjokkið, sem spegilmynd mín olli, rölti ég fram á gang og hitti þat mann með sams konar nef og mitt. Við kinkuðum kolli hvort til annars eins og tveir lundar innan um óbreytta svartfugla. Ég mætti læknunum á ganginum og flýtti mér upp I rúm, áður en þær kæmu að minni stofu. Þeit hrósuðu mér óspart fyrir dugnað að vera strax komin á ról, en minntust ekki einu orði á að bróðir minn með nefið sýndi neina umtalsverða hreysti. Frá því að ég vaknaði um morguninn hafði tægja úr tróðinu, sem lafði úr nefgöngunum aftur fyrir úf, verið að angra mig, svo að ég bað lækninn að klippa á hana. Hann kveikti á stóreflis vasaljósi og lýsti upp I mig. — Aha, sagði hann, brá skærunum á loft og klippti. En um leið þurfti hann að toga örlítið I tróðið til þess að ná á því góðu taki, svo að afleiðingin varð sú, að tróð hélt áfram að angra mig, einkum þó á matmálstímum. Stundum var ég næstum búin að gubba öllu, sem ég borðaði. Þessi dagur leið án alvarlegra verkja, og ekki þurfti ég nema einu sinni á verkjatöflum að halda. Ég eirði lítið I rúminu, því að stúlkan með hreinu raddböndin var farin heim og ég hafði engan til að tala við. Ég heimsótti sjúklinga á næstu stofum og píndi þá til að tala við mig. Margir lágu alveg rúmfastir án þess að mega svo mikið sem snúa sér við I rúminu, en aðrir höfðu fótavist. Margir höfðu lent I slysi og slasast illilega. Þeir höfðu sárabindi á ólíklegustu stöðum, og svo virtist sem engin takmörk væru fyrir því, hvað hent gæti fók. Mér fannst það hálfgerður hégómi að halda mér á spítala í 6 daga, þar sem fátt eitt amaði að mér annað en að vera með úttroðið nef. Á þessari deild var aldrei ládeyða. Hjúkrunarkonur, gangastúlkur, hjúkrunarnemar þeystu um gang- ana rúllandi matarvögnum, sjúkl- ingum og skrúbbum þvers og kruss. Ég átti I stökustu vandræðum með að læra, hvaða búningur tilheyrði hvaða starfi, en þóttist þó vita, að hjúkrunarkonur væru I hvítum einlitum búningum. Aðrar konur voru í einlitum bláum sloppum, tvílitum, bláum og hvítum með eða án kappa. Oft hef ég heyrt talað um stéttaskiptingu á spltölum, en ef svo er, þá fór hún alveg fram hjá mér, og allar konurnar voru mér jafngóðar. Matinn fékk ég á bakka upp I rúm, og alltaf var verið að pússa og skrúbba I kringum mig, laga rúmið, dusta sængina, skipta um handklæði, opna og loka glugganum, fara og koma með blóm og guð veit hvað. Og ef rnig vantað eitthvað, var bara að hringja bjöllunni. Og svo gat maður sofið lon og don. Ekki þurfti maður að kvarta. Á öðrum degi leið mér ekki sem verst, en neyddist þó til þess að þiggja 6 verkjatöflur, þar sem þrýstingurinn I nefinu ágerðist stöðugt. Það var heldur ekki laust við að ég væri farin að þjást af sjóndepru, og höfuðverk hafði ég I ofanálag. En þrátt fyrir þennan krankleika hélt ég áfram að rölta um og hrella aðra sjúklinga með málæði mlnu. Næsta dag lagðist kona I auða rúmið við hliðina á mlnu, og hún tjáði mér, að hún væri með óhrein raddbönd, sem yrðu hreinsuð á morgun tii þess að mýkja röddina. Ég spurði hana, hvort hún hefði pantað ákveðna rödd, og hún svarað strax. — Já, röddina hennar Guðrúnar Á. Ég þurfti auðvitað að sofa með opinn munninn allar nætur, og á morgnana vaknaði ég þurr og bólgin I munninum, rétt eins og ég hefði eytt nóttinni I Sahara eyði- mörkinni. Á þriðja degi fannst mér þrýstingurinn I nefinu orðinn svo hrikalegur, að ég hélt, að augun ætluðu út úr höfðinu á mér, og ég taldi víst, að ég væri að verða blind. Ég bað um verkjatöflur á klukku- tímafresti og bar mig aumlega. Ég talaði mikið við vin minn með 6ISSOR SULLRA55 SIlL kavanagu & FRANK FLETCUER 24 VIKAN 28. TBL.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.