Vikan - 08.07.1976, Síða 47
— Ég þarf að skreppa til systur
minnar, sagði hún. — Ég verð
ekki lengi, og maturinn þinn
bíður á borðinu. Hvernig gekk
annars hjá þér í dag? — Vel,
sagði hann og brosti.
svalara í bænum strax og sólin
var sest. Hann hlakkaði til að
koma heim, heim til elskaðrar
konu sinnar og barnanna. Hann
stóð kyrr á kirkjutorginu eitt
andartak. Hvað heimabær hans
var nú fallegur. Túristar hvar-
vétna úr heiminum þyrptust
þangað til að njóta fegurðarinnar
og hann hafði sjálfur auga fyrir
þessari fegurð.
Meðan hann stóð þarna, kom
konan hans hlaupandi til hans, og
féll um háls honum. Þau voru enn
jafn ástfangin og fyrir tíu árum.
— Eg þarf að skreppa til systur
minnar, sagði hún. — Maturinn
þinn býður heima, og ég verð ekki
lengi. Hvernig gekk hjá þér í dag?
— Vel, sagði hann og veifaði
henni, þar sem hún hljóp f burtu,
létt í spori. Svo gekk hann af stað
upp kirkjuþrepin. Þaðan voru
ekki nema fáeinir metrar heim í
litla húsið þeirra. Nú liði ekki á
löngu, áður en draumur hans
rættist — draumur hans frá.
því hann var drengur — að
eignast eigið veitingahús, þar
sem hann ríkti og réði.
Hann ætlaði að sérhæfa sig í
spænskum réttum. Og hann
vissi afar vel, hernig hann ætlaði
að haga öllu. Túristarnir voru
örlátir á drykkjupeninga. Þetta
yrði enn auðveldara en hann
hafði haldið.
Skandinavarnir voru örlátastir
allra. Þeir lögðu hrúgu af
pesetum i lófa hans eftir matinn,
sem hann lagði sig ætíð fram um
að bera fram með sem mestum
myndarbrag. Og í dag höfðu
drykkjarpeningarnir beinlínis
streymt inn. — Þú ért hug-
rakkur maður, Antonio, og stoltur
maður. Okkur þykir fengur að því
að hafa fengið að heyra sögu þína,
sögðu þau.
^Og Antonio brosti með sjálfum
ser, þar sem hann gekk upp breið
kirkjuþrepin. Hugsa sér, að
fótbrotið sk.vldi gefa svona mikla
fjármuni af sér! Það var hægt að
fá túrista, sérstaklega skandínava
og ameríkana, til að trúa hvenj"
sem var. Hugsa sér, að margir
skyldu þykjast kannast við nafnið
hans, og sumir höfðu meira að
segja lesið um slysið á
leikvanginum, þegar mesti nauta-
bani heimsins varð að lúta í lægra
haldi fyrir nautinu.
Vat átján ára, var hann álitinn
; bestum hæfileikum gæddur af
Öllum ungum nautabönum á
Spáni. Og dag einn mætti þessi
öngi nautabani afbragðsnauti á
leikvanginum. 1 fimmtán mínútur
samfleytt var atið svo æsandi, að
áhorfendur þorðu naumast að
hraga andann. Glæsilegt nautið
8erði hverja atlöguna af annarri,
en nautabaninn stóð næstum
Srafkyrr allan tímann. Hann
Serði ekki annað en sveifla
Jikamanum léttilega undan í
; nvert sinn, er nautið renndi beint
; s hann. Stór og hvöss horn
nautsins voru aldrei nema fáeina
sentimetra frá honum. Ef honum
hlekktist hið minnsta á í leiknum,
væri hann úr sögunni.
Antonio þagnaði og leit út um
gluggann. Fólkið gekk upp og
niður kirkjuþrepin. Undir stóru
blómstrandi tré beygði kona sig
niður að kettinum og hell'ti mjólk
á skálina hans.
— Já, — hvað gerðist svo,
Pedro? spurði feiti maðurinn.
— Hvað gerðist? Fór þetta ekki
vel? Af hverju lýkurðu ekki
sögunni, Pedro?
— Ég heiti Antonio, sagði hann
lágt, — Antonio Esteban.
Síðan lauk hann sögunni.
Einmitt þegar nautið var að þvf
komið að gefast upp, varð unga
nautabananum á smáskyssa.
Þulurinn hafði orðið frá sér af
hrifningu, hrópað í hátalarann og
síðan stokkið inn á leikvanginn.
Þetta truflaði nautabanann
augnablik, en það nægði nautinu
til að grípa hann á horn sér og
fleygja honum aftur fyrir sig.
Honum tókst að forða sér undan
næstu árás nautsins, en síðan
gripu aðstoðarmenn í taumana og
felldu nautið.
Ungi nautabaninn var borinn
burtu og alger þögn ríkti á leik-
vanginum. Annar fótur hans
hafði brotnað illa.
— Upp frá því gat hann ekki
stundað nautaat, sagði Antonio
dapurlega. — Ferli hans lauk,
þegar hann var aðeins átján ára
að aldri.
Antonio Esteban hafði lokið
störfum þennan dag. Hann
sárkenndi til í fótunum, hann var
dauðþreyttur. En það varð örlítið
^kandinavískir túristar voru örlátir á drykkjupeninga.
°9 allir vildu þeir heyra söguna um piltinn, sem hefði
9etað orðið mesti nautabani á Spáni. Antonio var góður
sögumaður, en gœtti þess jafnframt vandlega, að
j ekkert vœri upp á þjónustu hans að klaga. Og
drykkjupeningarnir streymdu inn.
28. TBL. VIKAN 47