Vikan - 08.07.1976, Síða 52
Sértilboð
SÉRTILBOÐ HÓTEL EDDU
SUMARIÐ 1976.
Síðastliðið sumartóku EDDU —
hótelin upp þá nýbreytni að veita
afslátt þeim, er pöntuðu og
greiddu fyrirfram fyrir 7 nátta
gistingu, og varð þetta mjög
vinsælt. Nokkur hundruð manns
notfærðu sér þetta tilboð, velflest-
ir til að fara hringinn kringum
Eddu
landið. Nú i sumar vilja EDDU-
hótelin fremur stuðla að því, að
menn skoði betur einstaka lands-
hluta , og auglýsa því nýtt sér-
tilboð HÓTEL EDDU fyrir sumarið
1976: — Veittur er 30% afsláttur
af gistingu og morgunverði þeim
er dvelja samfleytt í 3 nætur eða
lengur á sama hóteli, og þeir hinir
sömu fá þá einnig 15% afslátt af
öllum mat í veitingasölum, meðan
þeir dveljast á hótelunum. Kostar
þá gisting í 3 nætur í tveggja
manna herbergi ásamt morgun-
verði kr. 4.500 á mann, en t.d. í 7
næturkr. 10.500 á mann. Gisting í
Húsmæðraskólanum aö Laugar-
vatni er nokkru dýrari, enda öll
herbergin þar með sérsnyrtingu
og steypibaði.
Börn fá afslátt af þessu sérverði
eftir sömu reglum og gilda um
barna-afslátt af almennu verðlagi
á EDDU-hótelunum.
VEITINGAHÚSIÐ VALASKJÁLF
EGILSSTÖÐUM
FERÐAF0LK!
Athugið að í héraðsheimilinu VALASKJÁLF fæst heitur og kaldur matur
allan daginn alla daga.
Einnig kaffi, brauð, kökur og margt fleira.
Útbúum heitan og kaldan veizlumat.
Smurt brauð og snittur.
Sendum heim ef óskað er.
Aðstaða fyrir fundi og veizluhöld, kvikmyndasýningar.
Sundlaug á staðnum.
Sætaferðir til og frá Homafirði, Akureyri, Seyðisfirði (Færeyjaferjan).
VEITINGAHÚSIÐ VALASKJÁLF
EGILSSTÖÐUM
Símar: 97-1262, 97-1261.
NESTIi Fossvogi
Austur, vestur, suður eða norður'
Hvert sem ferðinni er heitið,
er NESTI í leið.
Góða ferð!
Essol
VÖRUR
OG MÓNU8TA
NESTIáArtúnshöfía
NESTI i Fossvogi
NESTIvid El lidaár
ALMENNT UM EDDU-HÓTEL.
Á EDDU-hótelunum munu í
sumar eins og endranær fást allar
algengar veitingar, að undanskild-
um hótelunum að Reykjum og á
Akureyri, en þar er aðeins veittur
morgunverður og kvöldkaffi. Her-
bergi eru allsstaðar björt og vistleg,
setustofur (oft búnar sjónvarpi)
eru til afnota fyrir hótelgesti og
sundlaugar ýmist á staðnum eða í
næsta nágrenni. í Húsmæðraskól-
anum að Laugarvatni fylgir bað
hverju herbergi auk þess sem
sauna er í húsi.nu, en annarsstaðar
er handlaug með heitu og köldu
vatni í hverju herbergi. Verð á
gistingu en allsstaöar hið saman,
eða kr. 3.200 á nóttu fyrir tveggja
manna herbergi, en kr. 2.450 fyrir
eins manns herbergi án baðs.
Morgunverður kostar kr. 550. Þó
kostar gisting I Húsmæðraskól-
anum á Laugarvatni kr. 5.500 fyrir
tveggja manna herbergi og kr.
4.200 fyrir eins manns herbergi.
NÝTT EDDU HÓTEL.
Nýtt hótel bættist í sumar í
flokk EDDU-hótela, en þann 16.
júní tók til starfa glæsilegt
EDDU-hótel I heimavist Mennta-
skólans á Ísafirði og verður opið til
25. ágúst. Með því er stórbætt
aðstaða ferðafólks til að kynnast
hinni stórbrotnu náttúrufegurð
Vestfjarðanna, en oft á tíðum
hefur verið erfitt, að sumarlagi, að
fá inni á þeim fáu hótelum, sem
starfrækt eru á Vestfjarðakjálkan-
um. EDDU-hótelin eru þá samtals
orðin 10talsins á 9 stöðum á land-
inu og fara hér á eftir helstu
upplýsingar um hvert þeirra:
Auðvitað máttu hafa þínar eig
in skoðanir. Þaö eina sem ég
fer fram á er að þú hafir þær
annars staöar en hér heima.
52 VIKAN 28. TBL.