Vikan - 05.05.1977, Page 35
r
Nú hefur verið
búið til tæki, sem er f'
eins konar sam-
bland af þyrlu
og loftbelg.
Útkoman er loft-
belgskraninn,
og hann hefur þegar
verið notaður Q
nokkuð í ^
tilraunaskyni. » x
Vængirnir á loftbelgskrananum eru knúnir áfram í
hringi áf fjórum hreyflum. Stjórnklefinn undir
Krani með 50
hagkvæmasta farartæki loftsins,
tonn af eldsneyti í stað flutnings gæti flogið
umhverfis jörðina.
loftbelgnum skapar 40% af lyftikrafti kranans.
Afganginn sjá vængirnir um. Mesti hraöi sem
kraninn getur náð mun verða 75 km/klst. Þessi
samsetning loftbelgs og hreyfla gerir kranann að
LOFTBELGUR
LYFTIKRAFTUR
VÆNGJANNA:
‘60%
HÁMARKSHRAÐI
75 KM/KLST
HREYFLAR
STJÓRNKLEFI
UMHVERFIS JÖRÐINA MEÐ FULLFERMI AF
ELDSNEYTI
Loftbelgskraninn svifur uppíloftið.Stór, röndóttur
loftbelgur með fjórum skrúfuspöðum, sem ganga
út úr hliðunum. Þessi helíumfyllti loftbelgur er hluti
af lyftikrana. Vængirnir, sem snúa belgnum tíu
hringi á mínútu, eru hinn hlutinn. Stjórnandinn
stýrir loftbelgskrananum úr sérstöku stjórnhýsi
neðan I belgnum, og er þetta einna líkast því að
stjórna þyrlu. Til þess að lyfta 50 tonna þunga þarf
loftbelg, sem er45 m I þvermál, og vængirnir þurfa
að vera 34 m langir og 5,5 m breiðir.
LYFTIKRAFTUR
í DAG: 50 TONN
LYFTIKRAFTUR Í FRAMTÍÐINNI
1000 TONN
Þaðverðursennilega nóg fyrir loftbelgskranana að
gera I framtíðinni. Þeir gætu til dæmis flutt ósköpin
öll af vatni til þess að koma I veg fyrir skógarelda
og eins mætti nota þá til þess að afferma skip. Þeir
munu þó verða hvaö hentugastir I sambandi við
byggingaiðnaðinn. Fullbyggð hús yrðu þá flutt frá
sérstökum verksmiðjum, þar sem þau væru
framleidd, og þeim komið fyrir á viðeigandi
stöðum. Algjör bylting I byggingatækni. i
Sovétríkjunum er stærsta þyrla I heimi, en hún
getur flutt 44 tonn í einu. Hún jafnast þó engan
veginn á við loftbelgskrana framtíðarinnar —
undratæki, sem munu geta flutt meira en 1000
tonn I einu.
Texti: Anders Palm ileikningar: Sune Envall