Vikan - 05.05.1977, Page 40
I eldhúskróknum
Er ritvélin heimilistæki?
. Þessari spurningu skaut upp
í kolli mínum, er ég lyfti 12 kílóa
þungri ritvélinni upp á borðið.
Þetta er forláta rafmagnsritvél
með breiðum valsi og myndi
líklega lenda í hópi skrifstofu-
véla í ritvélabúð. En þar sem
ritvélin mín hefur ekki á
skrifstofu komið, síðan hún
komst í mína eigu fyrir fjórum
árum, held ég, að ég verði að
kalla hana heimilistæki.
Ritvélin er eitt af þeim
heimilistækjum, sem ég vildi
síst missa, því ég er löngu
orðin ófær um að skrifa
læsilega rithönd. Svona er það
með svo margt. Maður verður
smám saman háður tækninni
og stendur svo uppi bjargar-
laus, ef hún bregst. Enn
streitist ég við að leggja saman
og margfalda í huganum eða á
blaði, þótt ég viti, að einn
góðan veðurdag muni ég
beygja mig fyrir vasatölvunni,
sem hvílir í skrifborðsskúff-
unni.
' Rúm öld er liðin, síðan fyrsta
ritvélin kom á markaðinn, það
er að segja fyrsta ritvélin, sem
eitthvað líktist þeirri, sem við
þekkjum í dag. Áður höfðu
margar tilraunir verið gerðar til
að búa til handhægar skrif-
vélar, bæði fyrir blinda og
sjáandi, en engin þeirra hafði
náð almennum vinsældum.
Þeir, sem taldir eru feður
ritvélarinnar voru tveir banda-
ríkjamenn, Sholes og Glidden,
og komu þeir uppfinningu sinni
á framfæri við Remington
byssu- og saumavélaverk-
smiðjurnar i New York. Samn-
ingur var undirritaður 1. mars
1873, og hefur sá dagur síðan
verið talinn „fæðingardagur"
ritvélarinnar. Forsvarsmenn
Remington voru víst ekki
sérlega bjartsýnir á, að þetta
apparat myndi slá í gegn, en
svo varð, og kom síðan hver
endurbætt útgáfan af annarri
— og enn er verið að
endurbæta ritvélarnar og koma
með eitthvað nýtt.
Og ritvélin var
kölluð frelsari konunnar...
Þegar ritvélin átti 100 ára
afmæli, komst ég á skemmti-
lega sýningu, sem haldin var á
gömlum ritvélum á erlendri
grund. Var þar margt skraut-
legra safngripa, og minnist ég
þaðan sérstaklega tveggja rit-
véla. Á annarri var hægt að
loka leturborðinu með útflúr-
uðu loki, svipað og á píanói, en
á hinni var leturborðið í
hálfhring. Var ástæðan sögð
sú, að það hafi verið talið mjög
gott fyrir líkamsbyggingu
ungra stúlkna að halda oln-
bogunum langt frá bolnum.
Ekki vantaði umhyggjuna fyrir
kvenfólkinu!
Áður en ritvélar komu á
markaðinn önnuðust karlar öll
skrifstofustörf. En við komu
ritvélarinnar brá svo við, að
farið var að ráða kvenfólk til
starfa á skrifstofum. Þetta þótti
að vonum talsverð upphefð
fyrir stúlkur, og var ritvélin
jafnvel nefnd „frelsari kon-
unnar". En á þeirri öld, sem
liðin er, hafa vopnin snúist svo
rækilega í höndum kvenna, að
víða á skrifstofum eru þær
orðnar nokkurs konar þrælar
ritvélarinnar. Þar sitja þær og
pikka, daginn út og daginn inn,
að mestu eftir forsögn karla —
að sjálfsögðu. Er fátítt að sjá
karlmann í vélritunarsölum
stórfyrirtækja, enda ræður
karlmaður sig tæplega til vél-
ritunarstarfa, nema hann sé
blindur, eða á annan hátt
þannig fatlaður, að hann geti
ekki gengið til hefðbundinna
karlaverka.
Þótt ég vinni ekki á neins
konar skrifstofu sem stendur,
hefur ritvélin á mér býsna föst
tök. Ég ætla þó að reyna að
losa mig og leggja hana til
hliðar um sinn og yfirgefa
eldhúskrókinn.
Sumar er í nánd, og þá þarf
að hyggja aö ýmsu utandyra.
Því er ekki seinna vænna að
fara að huga að öðru heimilis-
tæki — sláttuvélinni.
Þ.Á.
Náttúrgripasafnið gæti varðveitt
gripinn til minja um ást islendinga í
íslenskri náttúru.
Þama er líka að finna einn fisk,
sem reyndar var veiddur í Kariba-
hafi af sendiherranum Thor Thors.
Blessuð sé hans minning.
Þama er líka að finna agalega
grimmt tigrisdýr „frá Java,” sem
gefið var á sínum tíma af íslend-
ingnum Björgúlfi Ölafssyni lækni.
Blessuð sé hans minning.
Og svo er risaskjaldbakan, sem
heitir leðurskjaldbaka og ferðaðist á
eigin spýtur alla leið hingað — og
dó. Sennilega af hræðslu við íbúa
Steingrímsfjarðar, því þar veiddist
hún í vörpu á sínum tíma,
steindauð.
Þar er líka merkilegur gripur, —
íslenskur haförn, sem dó hjálpar-
laust fyrir nokkmm ámm. Kannski
bara úr leiðindum.
Og svo em líka margir aðrir
islenskir fuglar, sem hafa fundist
hér og hvar.
En þeir hafa kannski ekki fundið
neinn fisk hér við land eða á landi.
Ekki einu sinni dauðan fisk. Og
skordýrin em hvort sem er svo
mörg, að það tekur því varla að
setja þau á söfn. ísbirni er líka
hægt að fara og skoða á hinu
dýrasafninu á Skólavörðustígnum.
— Ætli þetta eigi að vera til að
leiða hugann frá þessari hræði-
legu rödd hennar?
— Þú segir okkur aldrei neitt í
fréttum í bréfunum þínum....!
40VIKAN 18. TBL.