Vikan - 05.05.1977, Síða 47
Minnismerki
um Washington.
„Hindenhurg" í
Laugarúsbíói
Áður en langt um líður mun
Laugarásbíó sýna kvikmyndina
„Hindenburg," en hún er byggð á
bók eftir Michael M. Nooney.
Leikstjóri er Robert Wise, en
framleiðandi The Filmmakers
Group.
Vorið 1937 hafa yfirvöld nasista
í Þýskalandi miklar áhyggjur af
því, að skemmdarverk muni verða
unnin á Zeppelin-loftfarinu Hind-
enburg, sem er í förum vestur um
haf. Loftfarið er eitt áhrifamesta
áróðurstæki nasista, en óvinir
þeirra gera fúslega allt til þess að
draga úr áhrifum þess á almenn-
ing. M.a. hafa yfirvöldum vestan
hafs og austan borist bréf með
hótunum um að loftfarinu skuli
tortímt.
Kona ein, sem segist vera
berdreymin og ófresk, heldur því
einnig fram í bréfi til sendiráðs
Þýskalands í Washington, að
Hindenburg muni farast tiltekinn
dag. Þegar hún er innt nánar eftir
þessu, segir hún að hún hafi séð
þetta í sýn og sýnir hennar hafi
svo oft komið fram, að þessi muni
eflaust rætast líka.
Þýsk yfirvöld vilja ekki taka
þessum hótunum sem algerum
tilbúningi fólks, sem sé eitthvaö
bilað andlega, en hins vegar vilja
þau ekki fresta ferð loftfarsins til
Lakehurst í New Jersey í byrjun
maí. Á hinn bóginn er svo reynt að
efla allar öryggisráðstafanir svo
sem kostur er, og í þeim tilgangi er
þekktum foringja í flughernum,
Franz Ritter að nafni, faliö sérstakt
starf í sambandi við feröina.Starf
Ritters er m.a. fólgið í að kanna
fortlð skipverja og farþega, en í
þeirra hópi þekkir hann greifafrá,
sem á daufdumba dóttur í skóla
vestan hafs. Vitað er um andúö
frúarinnar á stjórn nasista, síðan
yfirföldin lögðu hald á eyju I eigu
frúarinnar við Peenemunde á
Eystrasalti til þess að koma þar
upp leynilegri tilraunastöð. Ritter
kemst síöan að ýmsu fleiru
varðandi áhöfn og farþega loft-
farsins. Til dæmis játar einn af
áhöfninni, að hann hafi ætlaö að
eyðileggja loftfarið, þegar það
væri lent I Lakehurst.
Ýmsar tafir valda því hins vegar,
að Hindenburg verður á eftir áætl-
un, og horfur eru á því, að það
springi, meðan fólk er enn í því.
Ritter kemst loks að því, hvar
sprengjan erfalin í loftfarinu, en áð-
ur en hann getur gert hana óvirka,
springur hún í höndum hans.
Loftfarið stendur í Ijósum logum,
en þó fer betur en á horfist, því að
af 97 manns, sem innanborðs eru,
halda 62 lífi.
Með helstu hlutverk í myndinni
fara: George C. Scott (Ritter),
Anne Bancroft, William Atherton,
Gig Young, Roy Thinnes og
Burgess Meredith.
HVADIR
fÁ
^UHUM
18. TBL. VIKAN 47