Vikan


Vikan - 19.05.1977, Síða 9

Vikan - 19.05.1977, Síða 9
— Hvaða djöfulskap eruð þið mamma þín nú að brugga? ★ ★ ★ Það voru tvær kerlingar ( Louisville í Kentucky, sem erfðu 115 þúsund dali við andlát geitar, sem var eign fjarskyldrar frænku þeirra. + Þegar markvörð fótboltaliðs greindi a um mark við framvörð hins liðsins í Mexicó City, þá hljóp framvörðurinn beint til búnings- klefans, kom aftur með skamm- byssu í höndunum og skaut mörgum skotum í markmanninn. + Ameríkanar drekka að meðaltali (eða eyða) um 270 lítrum vatns á hverjum degi. ★ — Það væri ekki amalegt, að geta sagt þetta! — Ég veit vel hvað ég á að gera, ég veit bara ekki hvernig ég á að gera það! I NÆSTU lflKU VIÐTAL VIÐ JÖHANN G. ,,Það er svolítil saga á bak við þetta lag. Ég settist einu sinni niður í viðurvist vinkonu minnar ogbróður og sagði: Nú ætla ég að semja dæmigert vinsældarlag — og samdi „Don’ttry tofoolme.” Svo ætlaðiégbaraað gleyma þvi, enþau vildu, aðéghirtiþað." Þettaer örlítið sýnishornúr viðtali við Jóhann G., sem birtist í næstu Viku. Jóhann þekkjaallir, semeitthvað eru inni i popptónlistinni, hann semur lög og texta og syngur svo og leikur á sum hljóðfærin sjálfur. Vinsælasta lagið hans um þessar mundir er hins vegar i annarra höndum: ,,Fiskurinn hennar Stinu” í flutningi Hauka. AMERÍSKI DRAUMURINN HOLDI KLÆDDUR NýjastastjarnaníHollywood, Sylvester ,,Sly"Stallone, sem skrifaði handrit Oscarsverðlaunamyndarinnar „Rocky,” stjórnaði myndinni og lék sjálfur aðalhlut- verkið, veit svo sannarlega, hvað það er að öðlast frægð. Stallone er fæddur í New York og var algjörlega óþekktur, þar til fyrir nokkrum mánuðum, að „Rocky” færði honum frægðina og það, svo um munaði. Hver er þessi dökkhærði þéttvaxni maður, sem getur leikið ástarsenurog hnefaleikasenur jöfnum höndum? Hann er ameríski draumurinn holdi klæddur. Það er grein um Stallone i næstu Viku. ÞAÐ VAR FYRIR 60 ÁRUM Þessa vordaga eru stúdentar viðs vegar um landið sem óðast að fá hvítu kollana sína. Reyndar er sú athöfn ekki lengureinsárstiðabundin ogfyrrum.þegarallirsettuupp húfurnar i kringum 17. júní. Menntaskólunum hefur fjölgað, ogsumireigaþaðjafnveltilaðútskrifa stúdenta á miðjum vetri. ! næsta blaði má lesa frásögn Vilhjálms Þ. Gíslasonar fyrrverandi útvarpsstjóra, þar sem hann minnist gamalla skóladaga í Menntaskólanum í Reykjavík, en Vilhjálmur og bekkjarfélagar hans eiga einmitt 60 ára stúdentsafmæli nú i vor. VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson, Anna Kristine Magnúsdóttir, Guðmundur Karlsson, Sigurjón Jóhannsson. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn. auglýsingar. afgreiðsla og dreifing i Síðumúla 12. Símar 35320—35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 350. Áskriftarverð kr. 3.900 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, eða kr. 7.370 fyrir 26 tölublöð hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar: Nóvember, febrúar, mai, ágúst. 20. TBL.VIKAN 9

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.